Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 25
Kynningarblað - Sumarnámskeið 9Vikublað 27.–28. maí 2015
S
ú umræða sem átti sér stað
árið 2006 var framtíðarfyrir-
komulag náms í listdansi á
Íslandi. Því var haldið fram,
að einkareknir listdansskól-
ar hefðu enga burði til að bjóða nám
á framhaldsskólastigi, til undir-
búnings háskólanáms eða atvinnu-
mennsku í greininni.
Þetta þótti Guðbjörgu Astrid
vera mikill misskilningur sem svo
hefur komið berlega í ljós frá stofn-
un Klassíska listdansskólans þann
16. janúar 1994. Hann hefur eflst
með hverju starfsári. Skólinn býður
upp á nám fyrir nemendur í öllum
aldursflokkum, allt frá forskóla- og
grunnskólastigi og upp í framhalds-
skóla þar sem hægt er að ljúka námi
á listdansbraut í menntaskólum
landsins með 51 einingu. Undir-
búningurinn sem Klassíski list-
dansskólinn veitir gefur nemend-
um hans góða möguleika að öðrum
æðri stofnunum.
Sem dæmi um árangur námsins
má nefna, að útskrifaðir nemend-
ur frá Klassíska listdansskólanum
hafa farið í frekara framhaldsnám.
Margir þeirra starfa sem dansar-
ar, danshöfundar, kennarar (hjá
Listaháskólanum, Háskóla Íslands,
Klassíska listdansskólanum og víð-
ar). Margir hverjir hafa fengið flotta
styrki til stærri verkefna á erlendri
grund og margt fleira.
Námið sem Klassíski listdans-
skólinn býður upp á var þróað af
erlendum kennurum í samráði við
Guðbjörgu Astrid, stofnanda skól-
ans og skólastjóra. Hún nam list-
dans í Reykjavík, Ósló og London
en dansaði sem atvinnudansari við
óperuna í Gautaborg og við ballett-
inn í Opera Frankfurt Am Main.
Forskóla- og grunnskólastig
skólans starfa í Álfabakka 14A
(Mjódd) og býður upp á ballettnám
fyrir börn frá þriggja ára aldri. Þegar
lengra líður á dansnámið bætist nú-
tíma listdans við dansþjálfun þeirra.
Framhaldsbraut skólans er til
húsa á Grensásvegi 14 og býður upp
á klassíska- og nútímalistdansbraut.
Nemendur kynnast þar ólíkri tækni
innan listdansins. Lögð er áhersla á
tækni og reynslu og hafa nemendur
skólans tekið þátt í hinum ýmsu við-
burðum. Nemendur hafa til dæmis
tekið þátt og sýnt á viðburðum eins
og Safnanótt, 17. júní, Unglist og
Barnamenningarhátíð í Hörpu-
nni. Skólinn stendur fyrir tveimur
sýningum á ári og er önnur þeirra
haldin í Borgarleikhúsinu.
Markmið skólans frá upphafi
hefur verið að veita nemendum sín-
um listdansnám í hæsta gæðaflokki,
með áherslum sem endurspeglast í
slagorði skólans: Metnaður - hvatn-
ing - árangur.
Nánari upplýsingar má fá í síma
534-9030, netfanginu gudbjorg@
ballet.is og á heimasíðunni ballet.is
Skráningu fyrir haustönn 2015
lýkur mánudaginn 31. ágúst nk. n
Markmið að veita nemendum
listdansnám í hæsta gæðaflokki
Einkunnarorð Klassíska listdansskólans eru metnaður, hvatning og árangur
Einkunnarorð
Klassíska list-
dansskólans
n Metnaður
n Þjálfun
n Hvatning
n Vellíðan
n Árangur
Vorsýning 2014
Vorsýning 2014