Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 33
Vikublað 27.–28. maí 2015 Lífsstíll 21 Þú munt svitna Þú svitnar mikið í hot jóga og því skaltu klæða þig í samræmi við það. Vertu í léttum fatnaði sem þornar fljótt. Hlýrabolur og stuttbuxur henta mjög vel. Best er að fjárfesta í eigin jógadýnu, en slíkar dýnur er stund- um hægt að fá lánaðar í líkamsræktarstöðvum. Stórt handklæði getur líka komið í stað dýnu. Hvíldu þig Þér verður mjög mjög heitt og getur þótt það óþægi- legt. Ef þig fer að svima eða finnur fyrir öðrum óþægindum í höfði skaltu hiklaust gera hlé á æfingum og hvíla þig. Það er mjög mikil- vægt að muna þetta og kennarinn minnir ef- laust á það reglulega í tímanum. Rétt mataræði Ef þú ert að fara í hot jóga síðdegis skaltu gæta þess að borða næringar- ríkan mat yfir daginn. En jafnframt er gott að hafa í huga að borða ekki klukkutímum fyrir jógatímann. En ef hungrið er mikið skaltu fá þér hálfan banana, kókosvatn eða eitthvað í þeim dúr. Drekktu vatn Aldrei mæta í hot jóga nema hafa með með þér flösku af vatni. Það er mikilvægt að drekka á meðan jógað er stundað, bæði til að fá sem mest út úr æfingunum og til að koma í veg fyrir svima og önnur óþægindi. Byggðu upp vöðva Hitinn í herberginu þar sem hot jóga er stundað gerir að verkum að vöðvar þínir verða sveigjanlegri og því áttu auðveldara með að auka liðleika þinn. En hot jóga snýst ekki bara um að svitna og auka liðleika, heldur líka að byggja upp vöðva Skemmtu þér Þó að allt þetta skipti máli í hot jóga þá er mikilvægast að þú njótir líkams- ræktarinnar og skemmtir þér. Þegar upp er staðið skiptir það mestu máli, bæði fyrir líkama og sál. Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Grjótharður vinnufatnaður Skyrta Einstaklega þægileg flónelskyrta. Með brjóstvösum og einum símavasa. Bómullarstyrk- ingar í ermastroffi og öxlum Buxur Rassvasar, vasar fyrir hnépúða, síma- og pennavasi og lykkja fyrir hamar. Gallar Með útvíkkunarfaldi í bakið, brjóstvasi, innaná-vasi, pennavasi, rassvasi, vasar fyrir hnépúða og símavasi. Flexitec öryggisskór Mjög stöðugir Premium-skór með alveg einstökum Flexitec- sóla sem var hannaður sam- kvæmt ráðum bæklunarlæknis. Mjúkskels jakki Tveir hliðarvasar og brjóstvasi með rennilás. Franskur rennilás á ermum. Vatns- heldni 3000mm. Jakkar Vatteraður, teygja í baki, hetta sem hægt er að taka af með rennilás, loftgöt með rennilás undir höndum, stroff um úlnliði og hægt að þrengja með frönskum rennilás, vasar eru allir með rennilás og teygja í mitti að framan, endurskin. Smíðavesti Yfirfelldur rennilás. Smíðavasara að framan og aftan. Sterkir beltishankar. Tölur og lykkjur fyrir verkfæri J óga er ákaflega góð líkamsrækt sem hefur róandi áhrif á hugann. Hot jóga er svo afbrigði af þeirri líkamsrækt og eins og nafnið gefur til kynna þá er það stundað í meiri hita en hið fyrrnefnda. Hitastig- ið í herberginu er yfirleitt haft um 32 til 40 gráður. Af þeirri ástæðu veigra margir sér við að fara í hot jóga, þó að það geti verið afskaplega notalegt. En það er nauðsynlegt að mæta undirbúinn í tímann og með rétt viðhorf. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga áður en farið er í hot jóga. n Ekki hræðast hot jóga n Vertu í réttum fatnaði n Passaðu mataræðið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.