Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 11
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 2015 Fréttir 11 Hægt gengur að bora göngin Vaðlaheiðargöng lengdust um fjórtán metra í síðustu viku V aðlaheiðargöng lengd- ust um fjórtán metra í síð- ustu viku en verktakar unnu þá við gerð útskots og bergþéttingar í göngunum Eyja- fjarðarmegin. Göngin voru þá 4.739 metra löng og því búið að bora 60,8 prósent af heildarlengd þeirra. Framvindan í síðustu viku var 16 metrum minni en vikuna áður þegar göngin lengdust um 30 metra. Til samanburðar þá náðu verktakar í göngunum að bora að meðaltali 60– 70 metra áður en stóra heitavatns- æðin opnaðist Eyjafjarðarmegin í febrúar 2014. Eins og komið hef- ur fram þá hefur tekist að draga úr flæði heits vatns inn í göngin en enn streyma um 100 lítrar út úr göngun- um á hverri sekúndu. Um 260 lítrar af köldu vatni renna síðan á hverri sekúndu út úr sprungunni sem opnaðist Fnjóskadalsmegin í apr- íl síðastliðnum. Vatnsflaumurinn nam í apríl rúmum 500 lítrum á sekúndu og því ljóst að dregið hef- ur talsvert úr honum. Samkvæmt Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga minnkar rennslið nú um tvo lítra á sekúndu á hverjum degi. Útlit er fyrir að vatnsleki í göngunum komi til með að seinka opnun ganganna um rúmt ár, eins og kom fram í DV í maí síðastliðn- um. Þau verði í fyrsta lagi opnuð haustið 2017 en ekki í desember á næsta ári eins og upphaflega var stefnt að. n haraldur@dv.is úrval nýrra og nýlegra sendibíla 2011 Renault Trafic L1H1 - Stuttur. Ekinn aðeins 47 þús. km. - Þjónustubók - Einn eigandi - Aksturs- tölva - Armpúði - Fjarlægðarskynjarar - Fjarstýrð- ar samlæsingar - Geislaspilari - Litað gler - Líknar- belgir - Loftkæling - Rafdrifnar rúður - Rafdrifnir speglar - Útvarp - Vökvastýri - Þjófavörn. okkar verð: 2.390.000,- án vsk. (2.963.600,- með vsk.) bíllinn er á staðnum á frábæru verði! renaUlT TraFiC sTUTTUr HEIMILIS ÞVOTTUR 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is Við tökum við hefðbundnum heimilisþvotti. Við þvoum, þurrkum og brjótum saman þvottinn þinn. Lítil vél 1.890 kr. Millistór vél 2.590 kr. Stór vél 3.490 kr. Fólk með geðraskanir í húsnæðisvanda Sveitarfélög með umsjón frá 2011 Fólk flytji lögheimili sín til Reykjavíkur „Reykjavíkurborg stendur mjög framarlega í þessum efnum en borgin tók alveg við þessum málum árið 2011, frá ríkinu, gagnvart íbúum í Reykjavík. Það liggur heilmikil vinna við að koma á búsetukjörnum fyrir geðfatlaða,“ segir Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri Þjónustu heim hjá Reykjavíkurborg. Hún segir útreikninga sem gerðir voru þegar málaflokk- urinn var færður frá ríki til sveitarfélaga ekki hafa staðist. Eftirspurn eftir búsetu í bú- setukjörnum hafi verið meiri en gert var ráð fyrir við yfir- færsluna. „Biðlistar eftir búsetu eru langir. Reykjavíkurborg hef- ur hins vegar farið af stað með átaksverkefni og reynt að sporna við því að biðlistar myndist og að fólk sé ekki með búsetu á geðdeild.“ Búsetukjarnar í Reykjavík fyrir fólk sem á við geðræn vandamál að stríða eru alls 15 talsins og búa þar rúmlega 100 manns. „Borgin getur hins vegar ekki fjármagnað svona heimili endalaust, þjónustan þyrfti því að vera margbreytilegri og svo erum við alltaf að þrýsta á ríkið að setja meira fjármagn í þessi mál og að það viðurkenni að þörfin sé meiri.“ Berglind segir að þar sem flestir búsetukjarnar séu í Reykjavík séu dæmi um að fólk úr öðrum landshlutum flytji lögheimili sín til Reykja- víkur svo það geti fengið þar þjónustu. Álagið geti því oft verið mikið. Eftirspurn eftir þjónustu í Hafnarfirði „Við erum með einn búsetukjarna, í Hafnarfirði, fyrir einstaklinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða en reynum líka að útdeila félags- legu húsnæði til þeirra. Eftirspurnin er til staðar, hér eru einstaklingar sem þurfa mikla þjónustu,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjöl- skylduþjónustu Hafnarfjarðar. „Sveitarfélögin tóku við þjónustunni árið 2011. Við erum að reyna eins og við mögulega getum að efla þjón- ustu við geðfatlaða. Auðvitað óska sveitarfélögin eftir frekara fé og það er af skornum skammti. Mikið þarf að byggja upp, þar á meðal atvinnu- mál fyrir fólk sem á við geðræn vandamál að stríða. Málaflokkurinn sveltur af ríkinu „Við höfum tekið frá lóð við Arnarnesvog þar sem byggja á búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. Ekki er ákveðið hvort það verði einungis fyrir þá sem glíma við geðræn vanda- mál,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Enn hafa ekki verið reistir byggða- kjarnar í Garðabæ. „Það að byggja er auðvitað kostnaðarsamt. Ýmislegt er enn óuppgert varðandi það hvað sveitarfélögin eigi að fá mikið fé fyrir að taka yfir þessa þjónustu. Við eigum því enn von á lagfæringu þar að lútandi og verður það fé notað í þessi mál.“ Gunnar segir að þegar málefni geðfatlaðs fólks hafi verið flutt yfir til sveitarfélaga hafi legið fyrir ákveðin stefnumótun af hálfu velferð- arráðuneytisins. „Það er svo sem minnsta mál að búa til stefnumótun í ráðuneytum og ætla öðrum að fylgja því eftir, fjármagnið verður hins vegar að fylgja með. Ef sveitarfélög landsins ættu að fara eftir þessari stefnumótun þyrfti meira fé til. Þessi málaflokkur hefur hins vegar ver- ið sveltur af ríkinu,“ segir Gunnar og bætir við: „Það er jafnvel til tals hjá sumum sveitarfélögum að skila þessum málaflokki aftur til ríkisins.“ Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á framkvæmd þjónustu við þá sem eiga við geðræn vandamál að stríða fluttist frá ríki til sveitarfélaga í byrjun árs 2011. Líkt og María Einisdóttir benti á hefur gengið misjafnlega að starfrækja slíka þjónustu hjá sveitarfélögum landsins, búsetukjarna þar á meðal. sér, heyra raddir eða líður mjög illa, þótt þeir séu ekki bráðveikir. Það er þá sem endurhæfingin þarf að taka við.“ Afleitt að þjónustu- keðjan sé ekki liprari „Auðvitað skýtur það skökku við að fólk sem hefur fengið endurhæf- ingu þurfi að bíða á Landspítalan- um í mörg ár því engin búsetuúrræði eru fyrir hendi. Þegar þú ert fær um að búa á eigin vegum í búsetukjarna sættirðu þig varla við að bíða á spít- ala,“ segir María. „Það er ömurlegt að bíða. Biðin fer illa með fólk og fólki fer aftur. Vonleysið hellist yfir það, sem er bæði slæmt fyrir geðheilsu þeirra og sjálfsmynd.“ Hún segir það raunar vera óviðunandi að geta ekki útskrifað fólk af endurhæfingardeildum og að allir ættu að geta útskrifast. „Fyrir þennan hóp er bara ekkert sem tek- ur við nógu fljótt. Hinn möguleik- inn væri að útskrifa fólk út á götu.“ Afleitt sé að þjónustukeðjan sé ekki liprari en svo. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.