Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 12
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 201512 Fréttir
J
ón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri höfuðborgarsvæðis-
ins, segir að slökkviliðið myndi
eiga mjög erfitt með að bregð-
ast við ef mikill eldsvoði eða
sprenging yrði í Hvalfjarðargöngun-
um. Slökkviliðsstjórinn vill að göngin
verði tvöfölduð til að auka öryggi og
auðvelda aðkomu björgunarmanna,
en Spölur, eigandi ganganna, segir
það ekki á dagskrá næstu fjögur árin
hið minnsta. Engin björgunaræfing
hefur verið haldin í göngunum síð-
astliðin tíu ár.
„Þetta er verkefni, að fara inn í
göngin og bregðast við eldsvoða, sem
við eigum ofsalega erfitt með að ráða
við. Ekki bara við heldur slökkvilið al-
mennt. Þegar þú ferð í björgunarað-
gerð í gegnum göng sem eru eitt rör
í sjálfu sér er það erfitt verkefni að
glíma við. Við erum ekki með öflugan
búnað sérstaklega í það,“ segir hann.
Kemst ofsalega stutt inn í
göngin
Stutt er síðan sprenging varð í neðan-
sjávargöngunum Skatestraum í Nor-
egi þegar tengivagn losnaði frá olíu-
flutningabíl og rakst utan í vegg.
Bíllinn var að flytja 16.500 lítra af
eldsneyti þegar óhappið varð. Nítján
manns komust út úr göngunum og
enginn slasaðist alvarlega en sex fóru
á sjúkrahús eftir að hafa andað að
sér reyk. Göngin eru um 1.900 metra
löng en Hvalfjarðargöng eru 5.770
metrar, þar af eru 3.750 metrar und-
ir sjó. Um 5.300 ökutæki óku að jafn-
aði um göngin á hverjum sólarhring
í fyrra.
„Í Noregi réð slökkviliðið illa við
þetta verkefni og þannig er stað-
an mjög víða, sérstaklega í göngum
sem eru orðin ákveðið gömul,“ seg-
ir Jón Viðar en Hvalfjarðargöngin
voru opnuð sumarið 1998, eða fyrir
sautján árum.
Jón Viðar segir að slökkviliðs-
menn komist bara ákveðið langt inn
í Hvalfjarðargöng ef þar verður alvar-
legt slys. Í reykköfun dugar magn-
ið á loftkútunum aðeins í ákveðinn
tíma. „Þú kemst ofsalega stutt inn og
þarft að vera á öruggu svæði þegar
þú skiptir um kút. Ein hugmynd var
að þú gætir verið með stærra loft-
hylki þannig að þú gætir verið leng-
ur inni. Eins að þú færir hraðar yfir ef
þú værir á rafmagnsbíl heldur en að
vera fótgangandi,“ segir slökkviliðs-
stjórinn.
Annar bíllinn tilbúinn til notk-
unar
Spölur keypti tvo slíka bíla, sem eru
svipaðir golfbílum, fyrir þremur
árum en aðeins annar þeirra er tilbú-
inn til notkunar. Öðrum var ætlað að
vera vestanmegin ganganna og hin-
um sunnanmegin. Enn sem komið
er eru þó báðir vestanmegin, á Akra-
nesi.
Að sögn Gylfa Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Spalar, var annar bíll-
inn mjög fljótt tilbúinn til notkun-
ar. „Við kostuðum nauðsynlegar
breytingar sem þurfti að gera á hon-
um. Það stóð til boða fyrir hinn bíl-
inn líka og stendur enn. Það er ekki
á hreinu hvaða útfærslu þeir vilja og
þar að auki eru þeir ekki tilbúnir með
húsnæði,“ segir hann og á við slökkvi-
liðið á höfuðborgarsvæðinu. Gylfi
telur líklegt að bíllinn verði geymdur
í nýrri slökkvistöð í Mosfellsbæ.
Tvívegis hafa slökkviliðsmenn
á Akranesi farið á rafmagnsbílnum
sem er tilbúinn niður í göngin til að
prófa hvernig hann virkar. „Þetta létt-
ir okkur að þurfa ekki að labba niður,“
segir Þráinn Ólafsson, slökkviliðs-
stjóri á Akranesi.
Farið inn vestanmegin vegna
vindáttar
Þráinn tekur fram að ef mikill elds-
voði eða sprenging verður í Hval-
fjarðargöngunum þá þyrfti að fara
inn um göngin vestanmegin vegna
vindáttarinnar sem sé í suður. „Það
er bara lögmál í göngunum. Það er
meiri möguleiki að gera eitthvað
að vestanverðu vegna þess að hit-
inn er meiri að sunnanverðu. Þess
vegna leitar hann suður. Við eigum
alla vega möguleika á að gera eitt-
hvað þeim megin en þá þurfum við
að flytja mannskap yfir. Við ráðum
ekkert við það einir, það er vonlaust,“
segir hann. Slökkviliðsmenn frá höf-
uðborgarsvæðinu þyrftu þá að keyra
Hvalfjörðinn til að aðstoða kollega
sína af Akranesi eða þá að þyrla yrði
notuð til að flytja mannskap á milli
staða. „Við þurfum að gera miklu
betur í þessum málum,“ segir Þráinn.
Einn í fullu starfi á Akranesi
Hann segir öryggismyndavélakerf-
ið samt sem áður gott í Hvalfjarðar-
göngum, auk þess sem Spölur hafi
útvegað Slökkviliði Akraness og
Hvalfjarðarsveitar hitamyndavél
sem getur greint hita í 400 metra fjar-
lægð.
Margt þurfi þó að lagfæra hvað
varðar brunavarnarmál á svæð-
inu þar í kring og þar skipi stóriðj-
an sem er í næsta nágrenni sinn sess.
Til dæmis er Þráinn eini slökkviliðs-
maðurinn í fullu starfi á Akranesi og
kalla þarf á hina sem eru í hlutastarfi
ef eitthvað kemur upp á. Það hafi
sinn áhrif á viðbragðstímann og úr
þessu þurfi að bæta.
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A
Opið alla verslunar-
mannahelgina
Laugardag, sunnudag og mánudag frá
11-17
Slökkviliðið ekki búið undir mikinn
eldsvoða í Hvalfjarðargöngum
n Búnaður og aðstæður af skornum skammti n Slökkviliðsstjóri bindur vonir við tvöföld göng
Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðs-
stjóri höfuðborgarsvæðisins telur að erfitt
yrði að bregðast við miklum eldsvoða eða
sprengingu í Hvalfjarðargöngum.
Gylfi Þórðarson Segir að kallað hafi verið
eftir fleiri björgunaræfingum á síðustu árum.
„Þetta er verk-
efni sem við eig-
um ofsalega erfitt með
að ráða við. Ekki bara við
heldur slökkvilið almennt.
Þegar þú ferð í björgunar-
aðgerð í gegnum göng
sem eru eitt rör í sjálfu sér
er það erfitt verkefni að
glíma við
Hvalfjarðargöng Engin björgunaræfing hefur verið haldin í Hvalfjarðargöngum í áratug.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is