Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 13
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 2015 Fréttir 13 Dalshrauni 13 220 Hafnarfirði Sími 565 2292 Settu fókusinn á Þýsk gæði í gegn Sumarútsalan hafin í Hjólaspretti 20 - 50% afsláttur af völdum hjólum Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir Rykmoppur og sápuþykkni frá Pioneer Eclipse sem eru hágæða amerískar hreinsi- vörur. Teppahreinsivörur frá HOST Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942 Frábærar þýskar ryksugur frá SEBO Decitex er merki með allar hugsanlegar moppur og klúta í þrifin. UNGER gluggaþvottavörur, allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með: Marpól er með mikið úrval af litlum frábærum gólfþvottavélum Tilboð fyrir hótel og gistiheimili í apríl/maí! Slökkviliðið ekki búið undir mikinn eldsvoða í Hvalfjarðargöngum n Engin brunavarnaræfing í áratug Bindur vonir við tvöföldun Jón Viðar bindur miklar vonir við að Hvalfjarðargöngin verði tvö­ földuð, eins og umræða hefur ver­ ið uppi um. Þá verði auðveldara fyr­ ir slökkviliðsmenn að athafna sig ef alvarlegt slys verður þar. „Það eitt og sér eykur möguleika, bæði þeirra sem lenda í einhverju atviki í göngum og eins líka björg­ unaraðila að ná árangri,“ segir hann. Slökkviliðsmenn myndu þá fara ofan í þau göng þar sem ekkert vandamál væri til staðar og þaðan færu þeir yfir í hin göngin í gegnum þvergöng. Þau yrðu samt ekki það stór að hægt væri að keyra í gegn­ um þau. „Hvalfjarðargöngin eru erfitt ver­ kefni fyrir viðbragðsaðila og þess vegna er gífurlega mikilvægt að menn virði þau fyrirmæli sem eru í gangi varðandi göngin, eins og með hraða ökutækja og hvenær má flytja ákveðinn farm í gegnum göngin og í hvaða magni. Eins þarf maður að vera þolinmóður þegar maður fer í gegn og virða fjarlægð á milli bíla,“ segir hann. Engin göng næstu fjögur ár Gylfi Þórðarson segir að ekki verði ráðist í tvöföldun Hvalfjarðarganga að frumkvæði Spalar. Engin göng séu á dagskrá næstu fjögur árin. „Spölur á og rekur þessi göng þang­ að til þau eru orðin skuldlaus og búið er að greiða allt sem þarf að greiða. Það er áætlað að það verði fyrir mitt ár 2019,“ segir hann. Eftir það ákveður ríkið hvort það vilji tvö­ föld göng. „Þetta er allt spurning um peninga og hvað umferðin vex mik­ ið.“ Tíu ár frá síðustu æfingu Síðasta björgunaræfing var fram­ kvæmd í Hvalfjarðargöngum árið 2005, eða fyrir áratug síðan. Í bruna­ varnaráætlun Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar sem gildir frá 2012 til 2016 segir að halda þurfi reglulegar æfingar í göngunum, til dæmis annað hvert ár. Í reglugerð Umhverfisráðuneytisins um bruna­ varnir í samgöngumannvirkjum frá árinu 2004 segir sömuleiðis að slökkviliðsstjóri skuli reglulega halda æfingar með eiganda samgöngu­ mannvirkis og lögreglu í samræmi við fyrirmæli viðbragðsáætlunar. Jón Viðar segir það rétt að langt sé um liðið frá síðustu björgunaræf­ ingu. Í staðinn hafi verið haldn­ ar minni æfingar, svokallaðar fjar­ skiptaæfingar. „Stærri, umfangsmikil æfing hefur ekki verið haldin lengi í göngunum og í raun og veru er kom­ inn tími á það. Menn hafa haft á bak við eyrað að fara í það, í kjölfar þess að það er búið að endurskoða við­ bragðsáætlunina,“ segir hann og vonast eftir því að björgunaræfing verði haldin í haust. Slík æfing myndi kosta margar milljónir en Jón Viðar segir málið ekki snúast um kostnað eða hver eigi að greiða fyrir hana. „Það hefur ver­ ið mikið í gangi hjá öllum. Það hafa verið úrbætur í gangi hjá Speli varð­ andi hin og þessi öryggisatriði og menn hafa verið að bíða eftir að það klárist. Núna er það komið fyrir horn. Svo hefur líka verið mikið álag á við­ bragðsaðilum. Við vorum í nokkur ár með upp í loft samninga við sjúkra­ flutningana og þá riðlast öll starf­ semin. En það eru allir sammála um að það megi gera betur.“ Strandar á peningum Þráinn segir að margoft hafi ver­ ið rætt um að halda björgunaræf­ ingar í Hvalfjarðargöngunum. „Það er búið að tala um það ár eftir ár að halda æfingar en því hefur ekki verið hrint í framkvæmd,“ segir hann og tel­ ur málið stranda á peningum. „Mér eru skammtaðir peningar af sveitar­ félögunum Akranesi og Hvalfjarðar­ sveit og maður er að reyna að halda þessu gangandi,“ segir hann. Standast þarf kröfur frá Mann­ virkjastofnun. Til dæmis þurfa slökkviliðsmenn að standast læknis­ skoðun með því að fara í þrekpróf, auk þess sem halda þarf ákveðið margar slökkviliðsæfingar á ári. Því sé ekki peningur á lausu til að fara í um­ fangsmikla björgunaræfingu í Hval­ fjarðargöngum. „Það er að mörgu að hyggja,“ segir Þráinn. Spurður út í björgunaræfingarnar segir Gylfi að þeim þurfi að fjölga. „Við höfum í gegnum árin ýtt mikið á eftir því að hafa örari æfingar. Þetta fór að­ eins af stað fyrir einu til tveimur árum og vonandi verður ein góð áður en við hættum.“ Aðspurður segir hann að brunavarnarmál Hvalfjarðarganga séu í samræmi við reglur ESB. „Þar af leiðandi hlýtur allt að vera fullnægj­ andi, þó að eflaust sé alltaf möguleiki á að fara fram úr reglunum. Það hefur enginn gert athugasemdir við bruna­ varnirnar nú á síðari árum.“ n Rafmagnsbíll Tveir rafmagnsbílar eru til taks hjá Slökkviliðinu á Akranesi. Aðeins annar þeirra er nothæfur. F lugfélagið Air Greenland hefur keypt 30% hlut í þyrlu­ þjónustunni Norðurflugi fyrir tvö hundruð milljón­ ir króna. Með kaupunum tekur Norðurflug yfir tvær þyrlur frá Air Greenland auk þess sem önnur verður í láni í vetur og næsta sum­ ar. Þannig mun þyrlum í rekstri Norðurflugs fjölga úr tveimur í fimm. Það var mbl.is sem greindi frá málinu á vef sínum í gær. Þar er haft eftir Birgi Ómari Haraldssyni, framkvæmdastjóra Norðurflugs, að fé lög in hafi átt í góðu sam starfi í tæp lega fimm ár en fyr ir tækið hef ur meðal annars áður verið með þyrlurn ar tvær frá Air Green­ land í láni. Mik ill vöxt ur hef ur verið í starf­ semi Norður flugs á liðnum árum sem hef ur notið góðs af aukn um fjölda ferðamanna. „Vöxt ur inn frá ár inu 2009 er mjög áhuga verður en þá byrjuðum við að bjóða upp á þess ar vin sælu pakka ferðir,“ seg­ ir Birg ir í samtali við mbl.is, en áður fyrr hafi aðeins verið rukkað fyr ir hverja klukku stund í lofti. Á heimasíðu Norður flugs eru sex tán mis mun andi pakka ferðir í boði, sem kosta allt frá 25.500 krón um til 399.900 krón ur á mann. n Kaupir 30% hlut í Norðurflugi fyrir 200 milljónir Fá tvær þyrlur frá Air Greenland með kaupunum Norðurflug Þyrluflugmenn Norðurflugs á flugi yfir eldgosinu í Holuhrauni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.