Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 22
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 201522 Fólk Viðtal
tíma sínum en á þessum árum starfaði
hún sem aðalbókari og síðar fjármála-
fulltrúi hjá Sauðárkróksbæ. Í ágúst í
fyrra var sagt frá því í fjölmiðlum að
rúmlega fertug kona hefði verið hand-
tekin fyrir að draga að sér 26 milljónir
í starfi hjá Sauðárkróksbæ. Þessi kona
var Þórunn. Fjárdrátturinn byrjaði
árið 2009 og stóð yfir í fjögur ár.
„Ég hafði aðgang að nokkur
hundr uð milljónum í starfi mínu. Ég
man þegar ég gerði þetta fyrst – mér
fannst það spennandi – og ég ætlaði
alltaf að borga peninginn til baka. Ég
leit á þá sem lán til að byrja með, svo
var þetta komið langt yfir öll mörk. Ég
skil ekki að háskólamenntaðir endur-
skoðendur frá KPMG skyldu ekki sjá
þetta. Þeir fóru í gegnum þrjú árs-
uppgjör án þess að sjá að það vantaði
margar milljónir í reksturinn. Auð-
vitað átti ég aldrei að gera þetta og ég
vildi svo innilega að þeir hefðu séð
þetta fyrr.“
Húsleit og handtaka
Mikil vanlíðan fylgdi fjárdrættinum
og að lokum kom að því að hún sá sér
ekki fært að sinna starfi sínu lengur.
„Ég sagði upp starfi mínu, fór heim og
svo beið ég bara eftir því að það kæm-
ist upp um mig. Ég vissi að dagurinn
mundi renna upp – ég stal 26 millj-
ónum! Biðin tók þrjá mánuði. Hinn 1.
apríl 2014 bankaði her manna upp á
hjá mér. Þeir veifuðu blaði með hús-
leitarheimild og ruddust inn. Börn-
unum mínum var vísað út og mér
var skipað að setjast á stól. Ég spurði
hvort þetta væri aprílgabb. Þetta var
áfall en líka ótrúlegur léttir – ég var
búin að bíða eftir þessum degi. Fólk-
ið mitt vissi ekkert hvað var í gangi.
Ég fékk að kalla út um gluggann að ég
mundi hringja í þau seinna.“
Mennirnir með húsleitarheim-
ildina voru frá saksóknara fyrir sunn-
an, þeir héldu að Þórunn hefði jafn-
vel falið peningana og leituðu vel og
vandlega á öllu heimilinu. Sími Þór-
unnar og tölvur voru gerðar upp-
tækar og sjálf var hún handtekin.
„Ég var sett inn í lögreglubíl og
keyrð 50 metra spöl á lögreglustöð-
ina. Þar beið ég í dálítinn tíma eft-
ir Stefáni Ólafssyni lögfræðingi, sem
kom frá Blönduósi. Ég játaði brot
mín strax og hann birtist. Hann var
yndislegur frá fyrstu stundu og hefur
reynst mér mjög vel.“
Eftir yfirheyrslu og játningu var
Þórunni sleppt og við tók erfið-
ur tími með fjölskyldunni. „Maður-
inn minn varð mjög reiður – skiljan-
lega. Við tókum strax ákvörðun um
að segja börnunum sannleikann og
leyfa þeim að spyrja þeirra spurninga
sem mundu kvikna. Þarna voru yngri
börnin okkar 16 og 17 ára. Þarna um
kvöldið upplifði ég að sonur minn
stóð upp sextán ára gamall og faðm-
aði mömmu sína. Þegar maðurinn
minn jafnaði sig á reiðinni helltist
yfir hann mikil sorg. Við hættum að
sofa í sama herbergi – ég vil samt ekki
meina að þetta hafi verið ástæðan fyr-
ir skilnaði okkar. Hjónabandið okkar
var eins og barmafullt glas sem stóð á
borðbrún og það þurfti ekki mikið til
að kollsteypa því.“
Búin að eyðileggja allt
En hvernig líður konu sem er nýbúin
að játa tugmilljóna fjárdrátt og stend-
ur frammi fyrir ráðvilltri fjölskyldu
sinni? „Mér fannst ég búin að eyði-
leggja allt. Við fengum aðstoð sál-
fræðings, Ingvars Guðmundssonar,
hittum hann saman og hvort í sínu
lagi. Hann benti mér á að ég þyrfti að
losna við þunglyndislyfin hið fyrsta og
hefur aðstoðað mig við niðurtröppun
þeirra. Þetta er búið að vera eins og
að hætta á eiturlyfjum. Ég hef feng-
ið alls konar líkamleg fráhvarfsein-
kenni, kippi og svitaköst, titring og
kulda, ógleði og svima. Sem betur
fer er ég nánast komin á leiðarenda.
Ég er ennþá á örlitlum skammti og sé
fram á að vera orðin lyfjalaus í ágúst.“
Manneskja í speglinum
Þórunn lýsir því sem miklum létti að
losna undan lyfjunum. „Allt í einu fór
ég að sjá manneskju í speglinum. Ég
uppgötvaði að ég hafði ekki séð mig
svo árum skipti. Þetta var léttir en
á sama tíma talsvert áfall. Það voru
nánast engir speglar á heimilinu og
núna finnst mér eins og ég hafi aldrei
séð meira en svörtu punktana í aug-
unum þá sjaldan að ég leit í spegil
– ég sá ekki persónu. Ég málaði mig
aldrei því ég sá mig ekki.“
Ég spyr Þórunni hvaða tilfinningar
þetta hafi framkallað. Þótti henni
vænt um það sem hún sá eða fann
hún fyrir gömlu sjálfsfyrirlitningunni?
„Mér þótti ekki vænt um það sem ég
sá. Það er þó byrjað að lagast núna. Ég
hélt að þessi manneskja myndi bara
hverfa aftur, en hún er þarna ennþá
og ég er byrjuð að vinna í að kynn-
ast henni. Ég á mikla sjálfsvinnu fram
undan. Ég er til dæmis nýbúin að læra
að það er í lagi að eiga slæma daga og
það er í lagi að gera mistök.“
Ekki velkomin á AA-fund
Þórunn fór í meðferð við spilafíkn
hjá SÁÁ og á meðan hún bjó enn á
Sauðárkróki sótti hún 12 spora fundi
á Akureyri með öðrum spilafíklum á
hverjum laugardegi.
„Ég var með mikla fordóma til að
byrja með. Var eina konan í hópnum
og fannst karlarnir allir hálfskrýtn-
ir og vitlausir. Það rjátlaðist af mér
þegar ég sá að við vorum öll með
svipaða reynslu og sama vandamálið.
Ég spurði hvort ég mætti mæta á AA-
fundi á Sauðárkróki en þangað var ég
ekki velkomin.“
Ákæra og dómur
Í ágúst 2014 var ákæran gefin út.
Ákæruvaldið krafðist refsingar og
þess að Þórunn myndi endurgreiða
þær 26 milljónir sem hún dró að sér.
„Það stóð til að Héraðsdómur
Norðurlands vestra myndi taka mál-
ið fyrir, en sem betur fer var ákveðið
að færa þinghaldið. Ég er mjög þakk-
lát fyrir það. Dómurinn er til húsa á
mínum gamla vinnustað og umhverf-
ið stóð allt of nærri mér. Þetta er stórt
vandamál í svona litlum samfélögum.“
Dómurinn féll í byrjun janú-
ar á þessu ári. Þórunn fékk samtals
þriggja mánaða dóm og þar af að sitja
í fangelsi í einn mánuð. Einnig á hún
að endurgreiða milljónirnar 26 sem
hurfu úr bókhaldi bæjarfélagsins.
Hrakin burt úr heimabænum
Dvölin í heimabænum varð æ erfiðari
eftir að dómurinn féll og brot Þórunn-
ar varð opinbert.
„Ég frétti af alls kyns umtali um
mig. Fólk var hneykslað á því að ég léti
hreinlega sjá mig úti í búð. Ég veit ekki
hvar ég hefði átt að sækja mat fyrir
fjölskylduna annars – og það var ým-
islegt mjög rætið og alls konar ósann-
indi sem ég heyrði utan að mér.“
Við þetta fór Þórunn að einangra
sig í ríkara mæli og fór minna og
minna út úr húsi. „Það er dásamlegt
að tilheyra svona litlu samfélagi og ala
börnin sín upp en ef eitthvað svona
kemur upp á ertu tekin af lífi. Þetta var
mjög erfitt en á sama tíma fékk ég að
kynnast því hverjir raunverulega eru
vinir mínir. Ég ætlaði að þrjóskast
við og ekki láta hrekja mig úr
bænum, ef mér hefði tekist það
hefði ég orðið „heimaskrýtin“.
Það versta var þegar ég fékk
skriflegt bréf um að ég væri ekki
velkomin í hlaupahópnum. Þá
gafst ég nánast upp
og upplifði algjört
niðurbrot.“
Þarna fór
Þórunn að
hugsa alvar-
lega um að
flytja suður
og þau hjón-
in ræddu
æ oftar um
skilnað. Ég
spyr hana
hvort hún hafi
einhvern tíma
verið nálægt því
að tékka endan-
lega út – að enda
líf sitt. „Já, ég neita
því ekki. Ég man
sérstaklega eftir
einu skipti þegar
ég komst næst því.
Þá var ég að keyra
til Reykjavíkur til að
fara í meðferðina hjá
SÁÁ. Ég var næstum
því búin að keyra fram-
an á flutningabíl sem
keyrði á móti mér. Ég stoppaði bílinn
og þurfti að jafna mig og anda. Það
sem kom í veg fyrir að ég gerði þetta
var missir sem dóttir mín hafði nýlega
upplifað. Vinkona hennar lést í skelfi-
legu slysi sem átti sér stað á þenn-
an hátt – ég gat ekki lagt þetta á hana.
Sem betur fer varð sú hugsun yfir-
sterkari.“
Unglingar yndislegir
Þórunn fann sér fleiri og fleiri afsakan-
ir til að þurfa ekki að fara út úr húsi og
tók minni og minni þátt í lífinu. „Það
eina sem kom mér út úr húsi var að
ég fór í Fjölbrautaskólann til að vinna
mig í átt að stúdentsprófi. Krakkarn-
ir tóku mér frábærlega og voru for-
dómalaus þrátt fyrir að eflaust vissu
þau mína sögu. Þau hvöttu mig til að
taka þátt í félagslífi og sýndu mér ótrú-
lega hlýju. Þeir urðu mínir félagslegu
bjargvættir. Unglingar eru í algjöru
uppáhaldi hjá mér eftir þessa reynslu.“
„Auðvitað þykir mér mjög vænt
u Skagafjörð og Sauðárkrók. Það eru
mínir heimahagar og þar á ég mína
ættingja og rætur. Ég er flutt burtu
núna, en ég fer og mun halda áfram
að fara reglulega að heimsækja mitt
fólk. Hlýja tilfinningin sem altekur
mig þegar ég keyri niður Þverfjallið
og sé eyjarnar á firðinum er einstök.
Ég mun samt ekki mæta á Sæluvikuna
eða þorrablót – hvað þá skella mér á
barinn.“
Ég spyr Þórunni hvernig tilfinn-
ing það sé að hafa verið hrakin burt úr
heimabæ sínum. „Ég er mjög leið yfir
því og iðrast þess sem ég gerði. Ég vildi
óska að ég hefði ekki gert þetta og ég
vildi óska að spilafíknin hefði ekki hel-
tekið mig með þessum afleiðingum.
Á sama tíma er ég sár yfir því að ég fái
ekki tækifæri til þess að bæta mig og
verða betri manneskja í augum sam-
félagsins.“
Nýir tímar og óvissa
Í haust ætlar Þórunn í leiðsögu-
mannanám. Framtíðin er að öðru
leyti óviss þar sem úrræði fyrir kon-
ur til að sitja af sér fangelsisdóma á
Íslandi eru engin um þessar mundir.
„Ég er að læra að lifa í núinu – ég get
ekki haft áhrif á neitt annað. Ég kvíði
því ekki að sitja í fangelsi, finnst ég al-
veg eiga það skilið og get auðvitað tek-
ið því. Auðvitað er erfitt að vita ekkert
hvernig þetta verður eða hvenær það
skellur á. Ég skulda þessar 26 milljón-
ir en í dag á ég engan pening og engar
eignir svo um þann hluta ríkir líka
mikil óvissa. Það hefur hjálp-
að mér mikið að læra aðferð-
ir hugrænnar atferlismeðferð-
ar, ég get farið í matvörubúð
núna og horft framan í fólk,
hleyp ekki í gegn eins og áður,
dauðhrædd um að einhver
taki eftir mér. Uppbyggingin er
rétt að byrja, ég vissi að ég ætl-
aði í sjósund í dag, svo í viðtal,
en ekkert meira. Ég finn fyr-
ir meira umburðarlyndi,
ég var áður svo hrædd
við höfnun að ég
brynjaði mig, fannst
margir vera bján-
ar og gaf fólki ekki
séns. Núna ætla ég
að gefa öllum séns.
Fíknin blundar í
mér, hún er enn-
þá verk efni, en
núna vonast ég
til að fá einhverja
góða fíkn, líkams-
rækt eða eitthvað.“
En var þessi
reynsla jákvæð að
einhverju leyti? „Ég
veit ekkert hvert ég
stefni, ég finn já-
kvæðar breytingar
en mikla óvissu líka
og þrátt fyrir allt lít
ég björtum augum
á framtíðina.“ n
„Ég gerði
ekkert
nema að spila
– það átti hug
minn allan
Gamlárskvöld 2010 Þarna
var Þórunn orðin 130 kíló og
heilsan farin að gefa sig.
„Fíknin blundar
innra með mér“
Þórunn gerir sér grein
fyrir því að baráttunni
við fíknina er ekki lokið.
ATN Zebra 16
Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin
• Diesel
• Vinnuhæð: 16,4m
• Pallhæð: 14,4m
• Lágrétt útskot: 9,3m
• Lyftigeta: 230kg
• Aukabúnaður: Rafmagns-
og lofttenglar í körfu.
• Til afgreiðslu strax
Ýmsar aðrar ATN spjót- og
skæralyftur til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara.