Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Blaðsíða 17
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 2015 Umræða 17 Reynir Pétur, Forrest Gump og lífið í borginni við bara tveimur mönnum, sem var þó að því leyti heimilislegt að þeir heilsuðu mér báðir með handa- bandi, en þetta voru þeir Lalli Johns og Sævar heitinn Ciesielski. Endurnýjun lífdaganna Á þessum tíma spáði því enginn að miðbær Reykjavíkur ætti eftir að ganga í endurnýju lífdaganna. Þess vegna er vert að bera þetta saman við hvernig hann er orðinn nú, fjórt- án árum seinna. Það merkilega er að núna er Laugavegurinn og raun- ar allur miðbærinn farinn að minna miklu meira á Ku´damm í Berlín og þannig götur þar sem lífið blómstr- ar. Og við ættum að hafa það í huga þegar við látum túrismann fara í taugarnar á okkur, með öllum sín- um hótelum og lundabúðum. Hinn kosturinn er kannski sá að mið- bærinn veslist upp og grotni nið- ur á ný. Nú orðið er stórkostlegt að ráfa á góðum degi eða kvöldi um þessar slóðir: gegnum bæinn, Aust- urvöllinn, niðrað höfn, hvort sem það er hjá Hörpu þar sem alltaf er mannmergð, eða Suðurbugtina, hjá Slippnum, út á Granda, alls staðar er líf og fjör. Það þyrfti að byggja meira; það er lýti á hafnarsvæðinu að hafa alla þessa stóru óbyggðu grunna ná- lægt Hörpunni, þá þarf að fylla með stórum og fallegum húsum. Jafnvel þó að Landsbankinn vilji byggja, þá er óþarfi að afskrifa þá hugmynd að óathuguðu máli með ópum og for- mælingum; Landsbankinn hefur byggt sér mörg hús á landinu í gegn- um tíðina sem eru bæjarprýði þar sem þau standa. Nýi arkitektúrinn Annars er merkilegt hvað fólk bregst yfirleitt ókvæða við þegar koma upp hugmyndir um að byggja ný hús í borginni. Það er eins og menn vilji bara helst byggja gömul hús. Að sjálf- sögðu á ekki að rífa gömul falleg hús til að byggja ný, það hefur verið gert allt of mikið af því í gegnum tíðina því miður, en auðar lóðir á að byggja með nýjum húsum, það hefur alltaf verið gert. Eftir miðbæjarbrunann 1915 voru byggð við Austurstræti nútímaleg stórhýsi í anda síns tíma, engum datt í hug að endurreisa þau gömlu, eða reyna að hafa nýju hús- in í anda kofaþyrpingarinnar í kring. Eða þegar Hótel Borg var byggð. Eða Nathan og Ólsenhúsið, sem flest- ir kenna við Reykjavíkurapótek. Við eigum mikið af flottum arkitektum og auðvitað eiga þeir að fá að hanna eftir sínu höfði þar sem slíkt þarf að gera. Iðnaðarbankahúsið við Lækj- argötu á að hverfa, það hefur lengi staðið mjög undarlega og á skjön, öll húsin í kring hurfu í stórum bruna fyrir næstum hálfri öld. Það birtist hugmynd að hótelbyggingu á reitn- um, nútímaleg og fín, en sjaldan hefur maður heyrt annað eins rama- kvein og þá var rekið upp. Vissulega þarf að taka tillit til fornleifa á svæð- inu, og maður sér ekki hvers vegna það á ekki að vera hægt, gamlar rúst- ir voru innlimaðar í nýbyggingu úti í Aðalstræti fyrir nokkrum árum, öll- um til sóma. Hvergi hefur verið meira byggt innanum eldri byggð en í Berlín á liðnum áratugum, og næstum án undantekninga hafa það verið nú- tímaleg hús, mörg stórglæsileg, og er borgin á ný að verða ein hin veg- legasta í álfunni. Þannig eigum við líka að hugsa, skoða heiminn með opnum huga: það hefði Reynir Pétur gert. n „Það var bókstaf- lega enginn á ferli á Laugaveginum, og það sem meira er, mörg hús- anna stóðu tóm, verslanir voru farnar. Reynir Pétur „Allir gengu á eftir hinum glaðværa og brosmilda manni sem fremstur fór og hafði þá gengið allan hringveginn.“ MyNd RóbERt REyNissoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.