Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 23
Helgarblað 14.–17. ágúst 2015 Umræða 23 Fyrir hvað eru Íslendingar að refsa Rússum? Í slensk stjórnvöld styðja refsiað- gerðir Evrópusambandsins gagn- vart Rússlandi. Gamlir kalda- stríðsmenn, sem eru búnir að gleyma því að Sovétkommúnism- inn er liðinn undir lok en muna það eitt að boðorðið er að hata Rússland, fagna meintri samstöðu gegn Rúss- um. Ekki deili ég þeim samfögnuði. Ekki vegna mannréttindabrota Byrjum á því að spyrja hvers vegna Evrópusambandið, með stuðningi Íslands, vill refsa Rússum? Er það vegna þess að rússnesk stjórnvöld virða ekki lýðréttindi í Rússlandi, til dæmis réttindi samkynhneigðra? Nei, sú er ekki ástæðan. Er það vegna þess að Rússar eru almennt ógn- un við grannríki sín? Nei, sú er ekki ástæðan, hún er miklu þrengri og einskorðast við Úkraínu. Er það þá vegna þess að Rússar hafi haft for- göngu um að steypa lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum af stóli þar í landi? Nei, það voru Bandaríkin, Evrópusambandið og NATÓ sem gerðu það með því að bola réttkjörn- um forseta frá með valdi í febrúar 2014. Þar komu rússnesk stjórnvöld hvergi nærri. Hver skuli eiga Krím- skagann? Er það ef til vill vegna uppreisnar aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkra- ínu sem refsiaðgerðum er nú beint að Moskvuvaldinu? Já, nú við erum að hitna. Er það þá vegna stuðnings Rússa við þessa rússnesku-mælandi aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkra- ínu? Já. Og kannski fyrst og fremst vegna þess að Pútín og félagar inn- limuðu Krímskagann í Rússland? Bingó, rétt svar! Rússland virðir með öðrum orðum ekki rétt landamæri Úkraínu. Þarna erum við komin að kjarna máls: Hver skuli eiga Krím- skagann. ESB, NATÓ og Ísland vilja að Úkraínustjórn fari áfram með eignarhaldið á Krímskaganum, sem Nikita Krústjoff, leiðtogi Sovétríkj- anna, færði henni í hendur árið 1954 og ákvað þannig með þessari gjöf sinni hvar landamærin skuli dregin. Vilji íbúanna skiptir engu máli. En þótt svarið sé fundið skulum við spyrja áfram. Skiptir það ESB og NATÓ máli hvað íbúar Krímskag- ans vilja? Nei, það skiptir engu máli. Enda hefur þrívegis komið fram í þjóðaratkvæðagreiðslu að undir miðstjórnarvald Úkraínu vilja Krím- verjar – eða meirihluti þeirra – ekki heyra. Þetta var fyrst árið 1991og síðan aftur 1994. Síðasta atkvæða- greiðslan, 2014, var síðan undir byssukjöftum Moskvuvaldsins. Er Evrópusambandið og NATÓ ef til vill að mótmæla byssukjaftaofbeldi? Nei, það stenst varla að byssukjaft- ar sem slíkir trufli ESB og NATÓ í þessu máli því þegar stjórnvöld á Krím lýstu á miðju ári 1992 yfir að sjálfstæði Krím myndi ráðast af niðurstöðum fyrirhugaðrar þjóðar- atkvæðagreiðslu þá um haustið, þá sagði Úkraínuþing slíka þjóðarat- kvæðagreiðslu ólögmæta og þáver- andi forseti Úkraínu hefur staðfest í fjölmiðlum að Krímbúum hafi ver- ið hótað hernaðaraðgerðum. Með öðrum orðum, byssukjaftarnir voru gerðir þeim sýnilegir. Við svo búið var fallið frá atkvæðagreiðslunni og beið hún til ársins 1994 en þá kom vilji íbúanna í ljós þótt spurningarn- ar væru nú loðnari. Sá vilji var ekki í samræmi við vilja ESB og NATÓ. Hagsmunir umheimsins Umheimurinn spyr fyrst og síð- ast um eigin hagsmuni þegar Úkra- ína er annars vegar og þar túlkar hver eftir sínu höfði. Rússar telja sér ógnað vegna aukinna áhrifa Evrópusambandsins og NATÓ í aust- urvegi, og ESB og NATÓ vilja fyr- ir sitt leyti treysta áhrif sín á þessu svæði. Þannig hafa hin síðastnefndu beitt sér gegn því að Úkraína treysti böndin við Moskvu og jafnvel þegar til álita kom að austurhéruð Úkra- ínu yrðu sjálfstjórnarríki innan landamæra Úkraínu hafa þau ekki viljað una því þegar til kastanna hef- ur komið, þar sem ætla mætti að þar með yrðu treyst tengsl austurhluta Úkraínu við Moskvu. Í fangelsi fyrir að tala málið sitt En stóra málið, sem reyndar samein- ar ríki heims í einni allsherjar sam- tryggingu, nema þegar það hentar ekki einstöku sinnum eins og Rúss- um nú gagnvart Krímskaganum – er að varðveita óbreytt landamæri heimsins. Um þessa grunnreglu geta öll valdaöfl sameinast og gildir þá einu hversu vitlaus landamærin eru – hvort sem þau eru frá nýlendutím- anum eða vegna seinni tíma ofbeldis og þaðan af síður skiptir varðhunda þessarar reglu ekki nokkru minnsta máli hver vilji íbúa er. Bretar sýndu reyndar gott fordæmi með því að heimila þjóðaratkvæðagreiðslu í Skotlandi en það gerir Madrid ekki gagnvart Katalóníu eða Baskalandi þar sem fólk var látið sitja í fangelsi fyrir það eitt að tala tungumál sitt. Þetta er ekki lengra síðan en svo að í mínum vinahópi eru Baskar sem voru fangelsaðir fyrir þessar sakir og Kúrda þekki ég marga sem fram á þennan tíma hafa setið í tyrknesk- um fangelsum fyrir að tala sitt eigið tungumál. Hvað vill Gunnar Bragi Lavrov? Nú er það nýjasta nýtt að utanríkis- ráðherra Íslands, sem andheitur hef- ur talað fyrir refsiaðgerðum gegn Rússum, vill hitta Sergei Lavrov, ut- anríkisráðherra Rússlands. Á slíkum fundi má okkar manni ekki verða tví- saga. Ef hann ætlar að draga í land án þess að tala því máli einnig á sam- stöðufundum ESB og NATÓ í Kæn- ugarði, þá setur Ísland niður. Mín ósk er sú að Ísland fordæmi refsiað- gerðirnar en hvetji til friðsamlegrar lausnar í Úkraínu með valddreifingu í þá veru sem Minsk-samkomulagið kvað á um og jafnframt að í öllum til- vikum verði vilji íbúanna hafður að leiðarljósi en ekki hagsmunir stór- velda. Það er vesælt hlutskipti Ís- lands að vera hvutti í þeirra ól. n „Á slíkum fundi má okkar manni ekki verða tvísaga Ögmundur Jónasson alþingismaður Kjallari 1 Fékk leyfi hjá foreldr-unum til að leiða dætur þeirra í gildru með Facebook: Sjáðu myndbandið YouTube- stjarnan Coby Persin birti athyglisverða samfélagstilraun á síðu sinni sem hefur vakið athygli út um allan heim. Lesið 41.771 2 Lögreglan setti upp vegatálma í Ólafsvík og stöðvaði strætó: Ráku erlenda ferðamenn út en leit- uðu á öllum Íslendingunum Pan Thorarensen, skipuleggjandi tón- leikahátíðarinnar Extreme Chill Festival, sem var haldin á Hellissandi á Snæfells- nesi um helgina, er mjög ósáttur við framgöngu lögreglunnar á Vesturlandi. Lesið: 30.186 3 Missti systur sína í hörmulegu slysi Heiða Guðný Ásgeirsdóttir tók við búi foreldra sinna á Ljótar- stöðum aðeins 23 ára gömul, töluvert fyrr en hún ætlaði sér. Hún sagði frá því í helgarviðtali DV að hún hefði misst systur sína í hörmulegu slysi þegar þær voru á unglingsaldri. „Hún hrapaði í Hjörleifs- höfða 17 ára gömul,“ segir Heiða Guðný. Lesið: 35.053 4 ,„Við höfum báðar verið í þykjustunni-leik“ „Við höfum báðar verið í þykjustunni-leik í langan tíma, til að fitta inn í þennan kassa, þetta gagnkyn- hneigða norm,“ segir María Rut Kristinsdóttir, en hún og Ingileif Friðriksdóttir eru ungar og ástfangnar. Lesið: 26.769 Mest lesið á DV.is María Rut Kristinsdóttir fann ástina. – DV Loksins meikuðu hlutirnir einhvern sens. Þorsteinn Már Baldvinsson um útflutningsbann Rússa. – DV Ég leyfi mér að fullyrða það að bannið bitnar verst á Íslandi. Rúna K. Tetzschner endurheimti listaverkin sín. – DV Tókst að endurheimta flestar myndirnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.