Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Qupperneq 23
Helgarblað 14.–17. ágúst 2015 Umræða 23
Fyrir hvað eru Íslendingar
að refsa Rússum?
Í
slensk stjórnvöld styðja refsiað-
gerðir Evrópusambandsins gagn-
vart Rússlandi. Gamlir kalda-
stríðsmenn, sem eru búnir að
gleyma því að Sovétkommúnism-
inn er liðinn undir lok en muna það
eitt að boðorðið er að hata Rússland,
fagna meintri samstöðu gegn Rúss-
um. Ekki deili ég þeim samfögnuði.
Ekki vegna mannréttindabrota
Byrjum á því að spyrja hvers vegna
Evrópusambandið, með stuðningi
Íslands, vill refsa Rússum? Er það
vegna þess að rússnesk stjórnvöld
virða ekki lýðréttindi í Rússlandi, til
dæmis réttindi samkynhneigðra?
Nei, sú er ekki ástæðan. Er það vegna
þess að Rússar eru almennt ógn-
un við grannríki sín? Nei, sú er ekki
ástæðan, hún er miklu þrengri og
einskorðast við Úkraínu. Er það þá
vegna þess að Rússar hafi haft for-
göngu um að steypa lýðræðislega
kjörnum stjórnvöldum af stóli þar
í landi? Nei, það voru Bandaríkin,
Evrópusambandið og NATÓ sem
gerðu það með því að bola réttkjörn-
um forseta frá með valdi í febrúar
2014. Þar komu rússnesk stjórnvöld
hvergi nærri. Hver skuli eiga Krím-
skagann?
Er það ef til vill vegna uppreisnar
aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkra-
ínu sem refsiaðgerðum er nú beint
að Moskvuvaldinu? Já, nú við erum
að hitna. Er það þá vegna stuðnings
Rússa við þessa rússnesku-mælandi
aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkra-
ínu? Já. Og kannski fyrst og fremst
vegna þess að Pútín og félagar inn-
limuðu Krímskagann í Rússland?
Bingó, rétt svar! Rússland virðir með
öðrum orðum ekki rétt landamæri
Úkraínu. Þarna erum við komin að
kjarna máls: Hver skuli eiga Krím-
skagann. ESB, NATÓ og Ísland vilja
að Úkraínustjórn fari áfram með
eignarhaldið á Krímskaganum, sem
Nikita Krústjoff, leiðtogi Sovétríkj-
anna, færði henni í hendur árið 1954
og ákvað þannig með þessari gjöf
sinni hvar landamærin skuli dregin.
Vilji íbúanna skiptir engu máli.
En þótt svarið sé fundið skulum
við spyrja áfram. Skiptir það ESB og
NATÓ máli hvað íbúar Krímskag-
ans vilja? Nei, það skiptir engu máli.
Enda hefur þrívegis komið fram í
þjóðaratkvæðagreiðslu að undir
miðstjórnarvald Úkraínu vilja Krím-
verjar – eða meirihluti þeirra – ekki
heyra. Þetta var fyrst árið 1991og
síðan aftur 1994. Síðasta atkvæða-
greiðslan, 2014, var síðan undir
byssukjöftum Moskvuvaldsins. Er
Evrópusambandið og NATÓ ef til
vill að mótmæla byssukjaftaofbeldi?
Nei, það stenst varla að byssukjaft-
ar sem slíkir trufli ESB og NATÓ í
þessu máli því þegar stjórnvöld á
Krím lýstu á miðju ári 1992 yfir að
sjálfstæði Krím myndi ráðast af
niðurstöðum fyrirhugaðrar þjóðar-
atkvæðagreiðslu þá um haustið, þá
sagði Úkraínuþing slíka þjóðarat-
kvæðagreiðslu ólögmæta og þáver-
andi forseti Úkraínu hefur staðfest í
fjölmiðlum að Krímbúum hafi ver-
ið hótað hernaðaraðgerðum. Með
öðrum orðum, byssukjaftarnir voru
gerðir þeim sýnilegir. Við svo búið
var fallið frá atkvæðagreiðslunni og
beið hún til ársins 1994 en þá kom
vilji íbúanna í ljós þótt spurningarn-
ar væru nú loðnari. Sá vilji var ekki í
samræmi við vilja ESB og NATÓ.
Hagsmunir umheimsins
Umheimurinn spyr fyrst og síð-
ast um eigin hagsmuni þegar Úkra-
ína er annars vegar og þar túlkar
hver eftir sínu höfði. Rússar telja
sér ógnað vegna aukinna áhrifa
Evrópusambandsins og NATÓ í aust-
urvegi, og ESB og NATÓ vilja fyr-
ir sitt leyti treysta áhrif sín á þessu
svæði. Þannig hafa hin síðastnefndu
beitt sér gegn því að Úkraína treysti
böndin við Moskvu og jafnvel þegar
til álita kom að austurhéruð Úkra-
ínu yrðu sjálfstjórnarríki innan
landamæra Úkraínu hafa þau ekki
viljað una því þegar til kastanna hef-
ur komið, þar sem ætla mætti að þar
með yrðu treyst tengsl austurhluta
Úkraínu við Moskvu.
Í fangelsi fyrir að tala málið sitt
En stóra málið, sem reyndar samein-
ar ríki heims í einni allsherjar sam-
tryggingu, nema þegar það hentar
ekki einstöku sinnum eins og Rúss-
um nú gagnvart Krímskaganum –
er að varðveita óbreytt landamæri
heimsins. Um þessa grunnreglu geta
öll valdaöfl sameinast og gildir þá
einu hversu vitlaus landamærin eru
– hvort sem þau eru frá nýlendutím-
anum eða vegna seinni tíma ofbeldis
og þaðan af síður skiptir varðhunda
þessarar reglu ekki nokkru minnsta
máli hver vilji íbúa er. Bretar sýndu
reyndar gott fordæmi með því að
heimila þjóðaratkvæðagreiðslu í
Skotlandi en það gerir Madrid ekki
gagnvart Katalóníu eða Baskalandi
þar sem fólk var látið sitja í fangelsi
fyrir það eitt að tala tungumál sitt.
Þetta er ekki lengra síðan en svo að
í mínum vinahópi eru Baskar sem
voru fangelsaðir fyrir þessar sakir
og Kúrda þekki ég marga sem fram
á þennan tíma hafa setið í tyrknesk-
um fangelsum fyrir að tala sitt eigið
tungumál.
Hvað vill Gunnar Bragi Lavrov?
Nú er það nýjasta nýtt að utanríkis-
ráðherra Íslands, sem andheitur hef-
ur talað fyrir refsiaðgerðum gegn
Rússum, vill hitta Sergei Lavrov, ut-
anríkisráðherra Rússlands. Á slíkum
fundi má okkar manni ekki verða tví-
saga. Ef hann ætlar að draga í land án
þess að tala því máli einnig á sam-
stöðufundum ESB og NATÓ í Kæn-
ugarði, þá setur Ísland niður. Mín
ósk er sú að Ísland fordæmi refsiað-
gerðirnar en hvetji til friðsamlegrar
lausnar í Úkraínu með valddreifingu
í þá veru sem Minsk-samkomulagið
kvað á um og jafnframt að í öllum til-
vikum verði vilji íbúanna hafður að
leiðarljósi en ekki hagsmunir stór-
velda. Það er vesælt hlutskipti Ís-
lands að vera hvutti í þeirra ól. n
„Á slíkum fundi má
okkar manni ekki
verða tvísaga
Ögmundur Jónasson
alþingismaður
Kjallari
1 Fékk leyfi hjá foreldr-unum til að leiða dætur
þeirra í gildru með Facebook:
Sjáðu myndbandið YouTube-
stjarnan Coby Persin birti athyglisverða
samfélagstilraun á síðu sinni sem hefur
vakið athygli út um allan heim.
Lesið 41.771
2 Lögreglan setti upp vegatálma í Ólafsvík
og stöðvaði strætó: Ráku
erlenda ferðamenn út en leit-
uðu á öllum Íslendingunum
Pan Thorarensen, skipuleggjandi tón-
leikahátíðarinnar Extreme Chill Festival,
sem var haldin á Hellissandi á Snæfells-
nesi um helgina, er mjög ósáttur við
framgöngu lögreglunnar á Vesturlandi.
Lesið: 30.186
3 Missti systur sína í hörmulegu slysi
Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir tók
við búi foreldra
sinna á Ljótar-
stöðum aðeins
23 ára gömul,
töluvert fyrr en
hún ætlaði sér.
Hún sagði frá því í
helgarviðtali DV að hún hefði misst systur
sína í hörmulegu slysi þegar þær voru á
unglingsaldri. „Hún hrapaði í Hjörleifs-
höfða 17 ára gömul,“ segir Heiða Guðný.
Lesið: 35.053
4 ,„Við höfum báðar verið í þykjustunni-leik“
„Við höfum
báðar verið í
þykjustunni-leik
í langan tíma,
til að fitta inn í
þennan kassa,
þetta gagnkyn-
hneigða norm,“
segir María Rut Kristinsdóttir, en hún
og Ingileif Friðriksdóttir eru ungar og
ástfangnar.
Lesið: 26.769
Mest lesið
á DV.is
María Rut Kristinsdóttir fann ástina. – DV
Loksins meikuðu
hlutirnir einhvern sens.
Þorsteinn Már Baldvinsson um útflutningsbann Rússa. – DV
Ég leyfi mér að fullyrða það að
bannið bitnar verst á Íslandi.
Rúna K. Tetzschner endurheimti listaverkin sín. – DV
Tókst að endurheimta
flestar myndirnar.