Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 48
Helgarblað 14.–17. ágúst 201544 Menning
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
ALLAR GERÐIR
LÍMMIÐA
Nánari upplýsingar á
www.pmt.is eða í síma 567 8888
Fagna hálfri öld frá
komu Armstrongs
Um hundrað listamenn koma fram á Jazzhátíð
Á
miðvikudag hófst Jazzhá-
tíð sem haldin er í 26. sinn í
Reykjavík. Hátt í hundrað tón-
listarmenn – íslenskir, sænskir,
norskir, þýskir, ítalskir, banda-
rískir og svo framvegis – koma fram á
um tuttugu tónleikum í Hörpu. Sér-
stök áhersla er lögð á konur í djass-
tónlist, nýsköpun, íslenska útgáfu og
samstarfsverkefni innlendra og er-
lendra djasstónlistarmanna. Þá munu
átta útgáfutónleikar verða haldnir
sem hluti af hátíðinni.
Lokatónleikar Jazzhátíðarinnar
sem fara fram klukkan 16.00 á sunnu-
dag í Norðurljósasal Hörpu eru til-
einkaðir trompetleikaranum Lou-
is Armstrong, en hálf öld er frá því
að trompetleikarinn hélt goðsagna-
kennda og áhrifamikla tónleika í Há-
skólabíói.
Á tónleikunum verða flutt mörg
af þekktustu verkunum frá ferli Lou-
is Armstrong, með áherslu á efnisskrá
hans með All-Stars hljómsveitinni frá
1947 til lokadags. Þá verður flutt efni
frá fyrstu spilaárum Armstrong þegar
hann hljóðritaði með hljómsveitum
sínum Hot Five og Hot Seven. Ragn-
heiður Gröndal og Sigtryggur Baldurs-
son syngja við undirleik hljómsveit-
ar sem er skipuð Snorra Sigurðarsyni
(trompet), Hauki Gröndal (saxófónn,
klarinett), Samúel Jóni Samúels-
syni (básúna), Önnu Grétu Sigurðar-
dóttur (píanó), Matthíasi Hemstock
(trommur) og Tómasi R. Einarssyni
(kontrabassi). Þá mun Vernharður
Linnet djasssérfræðingur fjalla um
sögu Louis Armstrongs. n
Metsölulisti
Eymundsson
5.– 11. ágúst 2015
Allar bækur
1 LeynigarðurJohanna Basford
2 Konan í lestinniPaula Hawkins
3 Enchanted Forest Johanna Basford
4 Framúrskarandi vinkona Elena Ferrante
5 M. Marotta's Animal Kingdom
Millie Marotta
6 Iceland Small World- lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
7 KrakkaskrattarAnne Cathrine Riebnitzsky
8 Iceland In a Bag Ýmsir höfundar
9 NicelandKristján Ingi Einarsson
10 Secret Garden Johanna Basford
Joanna Basford
Á
dögunum kom út langþráð
önnur breiðskífa rokksveit-
arinnar Agent Fresco. Destri-
er kemur fimm árum eftir
hina kraftmiklu A Long Time
Listening. Flóknar taktbreytingar, vel
slípað þungur rokkgítarinn, dramat-
ískur söngur en poppaðar laglínur
blönduðust saman í undarlega gríp-
andi kokteil sem vakti umtalsverða
athygli.
Agent Fresco var stofnuð árið
2008 af þremur strákum sem námu
hljóðfæraleik í tónlistarskóla FÍH.
Þeir fengu flippaðasta gaurinn í
skólanum til að taka að sér sönginn
og tveimur vikum síðar sigraði hún
Músíktilraunir. Stuttskífan Lightbulb
Universe kom út í desember sama ár,
en fyrsta breiðskífan árið 2010.
Nú eru liðin tæp fimm ár og næsta
plata loksins tilbúin. DV hitti Þórarin
Guðnason gítarleikara, Hrafnkel Örn
Guðjónsson trommara, Vigni Rafn
Hilmarsson bassaleikara og, Arnór
Dan Arnarson söngvara á heimili þess
síðastnefnda. Þar drukku þeir kók
með klaka, borðuðu heilsusúkkulaði
og ræddu um langa og dramatíska
fæðingu stríðshestsins Destrier.
Flókin lög sem eldast vel
Tóti: Ég byrjaði að semja fyrir
plötuna 2011 og nokkur laganna á
plötunni eru alveg frá þeim tíma. En
ég held að það sé bara til merkis um
að tónlistin eldist vel að hún sé ekki
orðin þreytt núna! Svo voru lög að
detta inn næstu árin, til 2013.
Arnór: Við vinnum á annan hátt
en flestar aðrar hljómsveitir. Vign-
ir og Keli eru aðeins komnir inn í
lagasmíðarnar en yfirleitt semur Tóti
grunnana að lögunum einn, tekur
upp og sendir á mig. Í lok 2013 vor-
um við með flest lögin tilbúin, sum-
arið áður var Tóti alveg á fullu að
klára að semja.
Hvernig koma lögin til þín?
Tóti: Það er rosalega misjafnt. Ég er
yfirleitt að vinna með eitthvað mús-
íkalskt konsept í hverju lagi. Ég er
með banka af svoleiðis hugmynd-
um í símanum, sem ég hef tekið
upp bara þegar ég er úti að labba
eða heyri eitthvað áhugavert. Ég
hripa allt niður og sest seinna niður
og vinn úr hugmyndunum. Þá sem
ég grunn að hljóðfærapörtunum og
sendi á Arnór og hann semur laglín-
ur og texta – og það tekur mislanga
tíma. Svo æfum við lögin og breytum
þeim þá eitthvað aðeins.
Þannig að lögin verða aldrei til í
æfingahúsnæðinu?
Tóti: Nei. Þetta er kannski svo-
lítið sérstakt fyrir rokkhljómsveit,
en er venjan í fullt af annarri tónlist.
Ég veit eiginlega ekki hvort það væri
hægt að semja svona tónlist margir
saman. Ég held að maður myndi
aldrei ná sama flækjustigi. Mér
finnst svolítið leiðinlegt hvað mikið
af tónlist í dag eru bara lúppur sem
eru stöðugt að breytast örlítið. Það
er allavega eitthvað sem heillar mig
alls ekki.
Kvíði og reiði
Elstu lögin á plötunni eru samin
stuttu eftir að síðasta plata kom út
og því kannski meiri tenging við fyrri
plötuna en í textunum.
Arnór: Á A Long Time Listening
var ég að fjalla um það sem ég hafði
upplifað árin áður, þegar ég flutti
heim til Íslands frá útlöndum og
missti pabba minn úr krabbameini.
Ég hafði gengið í gegnum sorgarferli
sem mér fannst áhugavert og við þró-
uðum heildarkonsept í kringum það.
Það sem ég er að fást við á þessari
plötu er líkamsárás sem ég varð fyrir
árið 2012. Ég er ekki bara að einblína
á hana heldur fjallar hún um allt það
sem kom út úr henni. Þetta var eitt-
hvað sem breytti mér mikið. En það
var líka mjög áhugavert og listamað-
urinn inni í mér vildi túlka þessar til-
finningar – reiði sem ég hafði aldrei
fundið fyrir áður. Nafnið á plötunni
tengist þessu. Ég var búinn að vera
með þetta orð lengi á heilanum mér
finnst það svo fallegt, en á sama tíma
„muscular“ og stórt. Það er svo ná-
lægt Destroyer, en orðið þýðir stríðs-
hestur. Með A Long Time Listening
hafði ég melt tilfinningarnar áður
en með þessa plötu fór ég bara strax
að reyna að semja um þær. Ég áttaði
mig ekki á því hvað ég þurfti að vinna
mikið í sjálfum mér fyrst. Ég var mjög
lélegur í að stoppa og anda. Ég eyddi
mörgum nóttum í að vinna í átta tíma
án pásu en ekkert gott kom úr því. Ég
leyfði mér ekki að fara út í bjór með
Löng og ErFið Fæðing stríðshEsts
n Destrier, önnur breiðskífa Agent Fresco, er komin út n Fimm ár frá síðustu plötu n Kvíði og reiði söngvarans móta tónlistina
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Nýtt upphaf Góðir dómar um nýju plötuna með Agent Fresco hrúgast inn og sveitin stefnir á tónleikaferðir um Evrópu og Bandaríkin.
MyNdir SiGtryGGur Ari