Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 26
Helgarblað 14.–17. ágúst 201526 Fólk Viðtal F ríða tekur á móti mér, faðm- lagið er hlýtt og brosið bjart og maginn framstæður. Hún á von á sínu öðru barni með eiginmanninum, Arnari Gíslasyni kynjafræðingi, en fyrir eiga þau dótturina Ronju sem er 7 ára. Við byrjum á að spjalla um það sem Fríða er að gera í dag. „Ég byrjaði fyrir 4 árum að vinna með Kvenréttindafélaginu en er nýorðin formaður þess. Félagið hefur á undanförnum árum haft ákveðin verkefni en ekki mikinn sýnileika í samfélaginu eða umræðunni. Verk- efnin hafa til dæmis falist í umsögn- um fyrir Alþingi, um hin og þessi frumvörp og einstaka yfirlýsingar verið sendar út. Með tímanum höf- um við þróast út í að verða meira sýnilegar og það hagsmunafélag sem ég held að Bríet Bjarnhéðinsdóttir hafi verið að stofna, fyrir 107 árum. Bríet var rosaleg hugsjónamann- eskja og ég held að hún hafi hugsað mjög langt, ekki bara fyrir sig og ekki bara um samtímann, heldur fyrir heildina og framtíðina. Núna höfum við verið að rífa félagið upp, skerpa röddina.“ Stuðningur við mannréttinda- baráttu Ég spyr Fríðu um hvert skilgreint hlutverk félagsins sé. „Að vernda réttindi kvenna, berjast fyrir aukn- um réttindum kvenna og vera eins konar akkeri, eða hjartalína sem hef- ur náð að vera til í gegnum tíðina þó að allskonar önnur félög hafi starf- að um lengri eða skemmri tíma. Þar get ég nefnt rauðsokkur, kvennalist- ann, Bríet og femínistafélagið – allt kvennaöfl sem hafa komið fram í baráttunni. Kvenréttindafélagið hef- ur oft verið á mikilli skjön við rót- tæk félög og það hafa orðið árekstrar milli mismunandi félaga í kvenna- baráttu gegnum tíðina. Baráttan breytist líka mikið með tíðarand- anum. Núna eru hinsegin málefni mikið á döfinni og mesta gróskan í mannréttindabaráttu á Íslandi er líklega þar um þessar mundir. Nýjar skilgreiningar á kynhneigð og kyn- ferði eru að koma fram og fólk er að opna fyrir nýjan skilning á því hvert það er. Við erum að læra að allskon- ar hlutir séu til sem við vissum lítið um áður. Kvenréttindafélagið þarf að fylgjast með því sem er að gerast og vera í takti við, og styðjandi fyrir þá baráttu. Hún tengist mikið kvenna- baráttu eins og reyndar öll barátta jaðarhópa.“ Miðaldra hægrimaður spyr Ég ákveð að bregða mér í líki mið- aldra karlmanns á hægri kantinum eitt stundarkorn og spyr Fríðu að því hvort jafnrétti sé ekki náð. Fríða brosir góðlátlega og byrjar svo að út- skýra hvers vegna hún telur að svo sé alls ekki. „Núna er ég til dæmis nýbyrjuð í verkefni hjá RIFF kvikmyndahátíð- inni og er að skoða þátt menningar- innar sem ég hef ekki áður komið að – kvikmyndagerð. Ástandið þar seg- ir mér ýmislegt um að jafnrétti sé langt frá því að vera komið á í sam- félaginu. Nýlega birtist listi yfir topp- myndir síðustu 5 ára á Íslandi. Það eru allt karlamyndir, neðst eru tvær kvennamyndir. Tölurnar eru sláandi. Í samfélaginu er mikil virðing borin fyrir kvikmyndagerð og hún er mik- ilvægur miðill fyrir hugmyndir og menningu og allt sem er að gerast í samtímanum. Þetta þarf því að leið- rétta svo raddir kvenna fái að heyrast til jafns við raddir karla. Annað dæmi sem ég get nefnt er byltingin sem hófst í Beauty tips hópnum á facebook varðandi opna umræðu um kynferðisbrot. Sú opn- un sýnir mjög skýrt hvað kynferðsof- beldi er kynjað og í hvaða mæli konur eru kúgaðar og það á kerfis- bundinn hátt. Þó að það sé ekki ein- hver einn sem stjórnar, þá er þetta kerfisbundin kúgun. Maður sér það á að lesa þessar frásagnir, það er ekki til manneskja sem fær ekki sjokk við að lesa þetta, þetta er svo sláandi. Það eru engin mörk á því hvað hef- ur komið fyrir konur. Hvar þær hafa orðið fyrir ofbeldi, í sínu nánasta umhverfi, í aðstæðum sem áttu að vera öruggar, í skólum, í leikskól- um, á heimilum og alls staðar. Allt þetta er að koma fram og sýnir á mjög sterkan hátt að við búum ekki við jafnrétti. Sameinuðu þjóðirnar hafa verið að benda á að Ísland er ekki að standa sig aðallega á tveim- ur sviðum, hvernig tekist er á við, eða ekki tekist á við, kynferðisbrota- mál í dómskerfinu, og launamálin. Launamunur er ennþá mjög mikill og það sýnir að við erum ekki búin að ná jafnrétti. Svo verð ég að nefna að umönnun barna er alls ekki jafnt skipt í samfélaginu, það er að gerast smám saman að feður taki fæðingar- orlof til jafns við konur, en ennþá „bitna“ barneignir að mestu leyti á konum, frama þeirra, launum, fram- tíðarhorfum og öllu hinu. Ef þú ert kona á ákveðnum aldri, er gert ráð fyrir að þú sért ekki alveg eins traust- ur vinnukraftur og karl í sömu stöðu. Ég verð samt að segja að það var ver- ið að ráða mig núna í verkefni hjá Reykjavíkurborg – kasólétta – ég var geðveikt hissa og glöð. Það var ekki spurt um neitt varðandi það, bara tekið sem hluta af lífinu. Skál fyrir því.“ Fóstureyðingar baráttumál Fríða segir mér næst frá helstu ver- kefnum Kvenréttindafélags Íslands um þessar mundir. „Við tókum upp umræðuna um fóstureyðingar á að- alfundi félagsins og gáfum í kjölfar hans út samþykkt. Fundurinn var stórmerkilegur því að þegar sam- ræðurnar byrjuðu vorum við alls ekki sammála. Þarna komu allar mýturnar fram – hvað ef konur fara að nota þetta sem getnaðarvörn, hvað með að fara í svæfingu, er það ekki hættulegt og öll runan af gamal- grónu mýtunum um fóstureyðingar. Við fórum í gegnum þessi mál – tók- um umræðuna – manneskja sem var alveg á móti frjálsu aðgengi að fóst- ureyðingum gat fengið upplýsingar og endurmetið sitt álit. Örfáar voru því á móti þegar samþykktin var tek- in til atkvæðagreiðslu.“ Að sögn Fríðu gengur barátta fé- lagsins út á að fóstureyðingar eigi að vera ákvörðun konunnar. „Fóstur- eyðingar ganga út á að konur ráði yfir sínum líkama og á meðan við getum ekki látið báða aðila taka ábyrgð á þungun, það virðist ekki vera hægt að setja samfélagið upp þannig - þá er meginábyrgðin á manneskju og setur hana í allt aðra stöðu en hina manneskjuna sem tók þátt í þessari þungun. Þetta getur þess vegna ekki verið jafnt.“ Amnesty og vændið Fréttir af ályktun Amnesty International um lögleiðingu vænd- is og tengdrar starfsemi hefur verið mikið í umræðu síðustu daga. Mér leikur forvitni á að vita hver afstaða Fríðu er í því máli. „Vændi er mál sem ég hef rann- sakað og skoðað og hef mikinn áhuga á. bæði vændi og vændiskaupum. Það vantar svo í umræðuna hvað kaupin eru skaðleg – það er ekki bara skaðlegt að vera í vændi og selja sig, heldur líka fyrir unga óreynda leit- andi í kynlífi að kaupa vændi.“ Við höldum áfram að tala saman um vændi og talið berst að sænsku leiðinni sem var sett í íslensk lög árið 2009 og gerir vændiskaup ólögleg en söluna ekki. „Það voru að koma nýjar tölur frá Noregi um það hvernig sænska leiðin hefur virkað þar í landi. Það sem hefur átt sér stað eftir að lögin voru innleidd þar er að ungir menn, 14–20 ára, eru ekki lengur að kaupa sér vændi. Þetta er mjög gott dæmi Hún er blóðheitur femínisti, formaður Kvenréttinda- félags Íslands, mannfræðingur og mögulega Íslendinga fróðust um vændi og mansalsmál. Fríða Rós Valdimarsdóttir bauð Ragnheiði Eiríksdóttur blaðamanni í huggulegt kaffi á skrifstofu Kvenréttindafélagsins á Hallveigarstöðum þar sem myndir af femínískum formæðrum prýða veggi. „Ég fékk femíníska vitrun“ Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Vitrun hjá ömmu og afa Þegar Fríða var unglingur fór hún að spá í femínisma eftir vitrun heima hjá ömmu og afa. Mynd SigtRygguR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.