Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Blaðsíða 41
Helgarblað 14.–17. ágúst 2015 Skrýtið Sakamál 37
30 ár í fangelsi – án dóms
n Jerry Hartfield fékk loksins að mæta fyrir rétt n Töfðu málið í sex ár eftir að villan komst upp
J
erry Hartfield fékk í vikunni
loksins annað tækifæri til að
standa í dómsal og svara til
saka fyrir glæp sem hann seg-
ist ekki hafa framið. Hartfield
hefur beðið í 35 ár eftir þessu tæki-
færi, en hann hefur, tæknilega, setið
í fangelsi án dóms og laga í þessi 35
ár vegna mistaka við meðferð máls
hans.
Annar fangi hjálpaði honum
Það var árið 1977 sem hann var
ákærður og dæmdur fyrir morðið á
Eunice Low, 55 ára konu sem starfaði
við að selja strætisvagnafarmiða. Yf-
irréttur í Texas ómerkti dóminn yfir
Hartfield árið 1980 vegna vandamála
við það hvernig kviðdómurinn, sem
sakfelldi hann, hafði verið valinn og
krafðist þess að ný réttarhöld færu
fram.
Þremur árum síðar ákvað ríkis-
stjóri Texas að dómurinn ætti ekki að
vera dauðadómur, heldur lífstíðar-
fangelsi. Vandamálið er að í raun
var enginn dómur til að breyta þegar
ríkisstjórinn ákvað þetta, þar sem
fyrri dómur hafði verið ómerktur og
engin ný réttarhöld höfðu farið fram.
Hartfield sat samt áfram í fangelsi og
ekkert fréttist af nýjum réttarhöld-
um. Það var svo árið 2006 sem annar
fangi benti honum á að hann sæti í
raun í fangelsi án dóms og laga og að
enginn eiginlegur dómur hefði fallið.
Hirðuleysi
En hvernig getur svona gerst? Sak-
sóknari segist vissulega vera ábyrg-
ur en vísar ábyrgðinni einnig á Hart-
field sjálfan og segir að hann hefði
sjálfur átt að láta í sér heyra miklu
fyrr. Vandamálið er að Hartfield er
alvarlega þroskahamlaður og hef-
ur afar lága greindarvísitölu. Þegar
málið var tekið fyrir sagði dómarinn
að allir hefðu brugðist. „Hirðuleysi
saksóknaraembættisins varð til þess
að málið tafðist í þrjátíu ár. Þrátt fyrir
það liggja mistökin einnig hjá Hart-
field sem sýndi ekki fram á það með
skýrum hætti að hann vildi að rétt-
arhöldin yrðu haldin sem allra fyrst,“
sagði hann.
Verjandi Hartfield segir þá ótrú-
legt að maðurinn skyldi geta verið
í fangelsinu allan þennan tíma án
þess að nokkur áttaði sig á aðstæð-
um. Biðin hefði verið ótrúleg og jafn-
framt ófyrirgefanleg. Hann reyndi
að fá Hartfield lausan þar sem brot-
ið hefði verið á stjórnarskrárbundn-
um réttindum hans, en dómari og
saksóknari segja báðir að Hartfield
hefði sjálfur átt að óska eftir því að
réttarhöldin yrðu haldin.
Það var ekki fyrr en árið 2009 sem
staðfest var að Hartfield sæti í fang-
elsi án þess að hafa hlotið dóm. Það
var hins vegar ekki fyrr en í ár sem
ákveðið var að taka málið upp aft-
ur. Í millitíðinni sat Hartfield í fang-
elsi. „Ég hef ekki kennt neinum um
þetta og er ekki reiður. Ég vil bara að
þetta verði gert rétt svo ég geti haldið
áfram með líf mitt. Ég lifi í guðsótta
og hann leyfir mér ekki að vera bitur,“
sagði hann árið 2013 þegar fjallað
var um málið.
Morðið á Eunice Low
Eunice Low var myrt á grimmilegan
hátt. Hún hafði verið barin til bana
með haka, svo stungin með brotinni
glerflösku. Sá sem myrti hana beitti
hana svo kynferðislegu ofbeldi eftir
að hún var látin.
Fingraför Hartfield fundust á
strætisvagnamiða rétt hjá morð-
staðnum. Hann játaði á sig morðið
en hefur síðan haldið því staðfast-
lega fram að hann hafi verið neyddur
til að játa og þvingaður af lögreglu-
mönnum.
Ljóst er að réttarhöldin verða erf-
ið og án efa langdregin. Mikið af vitn-
um, sem kölluð voru fyrir réttinn árið
1977, eru látin eða finnast ekki. Þá
hefur eitthvað af sönnunargögnum
týnst eða skemmst. n
Bíður dóms Hartfield segist vilja að málið verði afgreitt svo hann geti haldið áfram með líf sitt.„Ég vil bara að
þetta verði gert
rétt svo ég geti haldið
áfram með líf mitt
Annar fangi aðstoðaði hann Það var annar fangi sem tók eftir því að Hartfield hefði í raun aldrei verið dæmdur. Mynd úr safni
stór-
útsala
allt að 70% afsláttur
af vönduðum
útihúsgögnum fyrir
íslenskar aðstæður
Kauptúni 3, 210 Garðabær | S. 771 3800
Opið: mán.-föS. 12-18 OG lau. 12-16
www.signature.is