Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Síða 43
Helgarblað 14.–17. ágúst 2015 Fólk 39
Við elskum umslög
- en prentum allt mögulegt
• Nafnspjöld
• Reikninga
• Veggspjöld
• Bréfsefni
• Einblöðunga
• Borðstanda
• Bæklinga
• Markpóst
• Ársskýrslur
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is
Flutti til Sjanghæ
með fjölskylduna
n Þróunarstjóri CCP í Kína n Margt ólíkt í menningunni n Spennt fyrir sýndarveruleika
Á
næstunni er væntanleg-
ur fyrsti leikurinn frá CCP
sem spilaður er á farsíma.
Leikurinn heitir Gunjack
og gerist í heiminum New
Eden sem er innan stóra EVE On-
line-heimsins. Spilarar spila leik-
inn í sýndarheimi með hjálp sér-
stakra sýndarveruleika–gleraugna
sem síminn er festur í – en leik-
urinn kemur út fyrir Samsung síma
og Gear VR gleraugu sama fyrirtæk-
is. Með símann fyrir augunum stíg-
ur spilarinn inn í sýndarheim og
tekur að sér hlutverk Gunjack sem
er vopnaður byssum og öðrum skot-
vopnum og ver námuútstöð fyrir
óvinum. „Þegar síminn er kominn á
réttan stað, og þú inn í sýndarheim-
inn, ferðu af stað í stjórnklefa og
tilfinningin er eins og þú sért að-
alkarakterinn í leiknum,“ segir Stef-
anía G. Halldórsdóttir, þróunarstjóri
CCP í Kína.
Sýndarheimar á siglingu
„Þú sérð hans sjónarhorn, get-
ur horft niður í kjöltuna, séð allan
stjórnklefann og allt umhverfið.
Óvinir koma svo aðvífandi og þitt
hlutverk er að nota tvær byssur á
stjórnklefanum til að skjóta þá nið-
ur,“ segir Stefanía og bætir því við
að inni í sýndarveruleika sé hægt
að gera margt spennandi og skapa
magnaða upplifun af leik.
Stefanía segir að nýi leikurinn
sé ekki endilega þróaður með not-
endur EVE í huga. „Hann kemur úr
annarri átt. Sýndarheimar eins og
þessi eru á mjög hraðri siglingu í dag
og þróast hratt. Á næstunni munu
ýmiss konar ný tæki til að stunda
þessa leiki koma á markaðinn. Við
erum að taka skref inn í næstu bylgju
í leikjaþróun, en á sama tíma mun-
um við halda áfram vinnunni með
hina leikina okkar.“
Það má með sanni segja að síðan
CCP gaf út sinn fyrsta leik, EVE On-
line, árið 2003, hafi fyrirtækinu vaxið
fiskur um hrygg. Í dag starfa um 300
manns innan þess og starfsstöðv-
ar eru í Reykjavík, Akureyri, Atlanta,
Newcastle og Sjanghæ.
Nýtt líf í stórborg
Stefanía flutti fyrir hálfu öðru ári
með fjölskyldu sína til Sjanghæ til
að starfa fyrir CCP. „Ég byrjaði sem
deildarstjóri í leikjahönnun hjá Eve
Online á Íslandi og varð síðan þró-
unarstjóri sama leiks í íslenska teym-
inu. Maðurinn minn vinnur líka hjá
CCP og við fluttum til Sjanghæ með
börnin okkar þrjú, sem eru 15, 10
og 3 ára.“ Stefanía, sem starfar núna
sem þróunarstjóri fyrir allt stúdíóið í
Kína, segir það hafa verið ansi flókið
að flytja með fjölskylduna í framandi
land. „Við tölum ekki tungumálið og
hér tala fáir ensku. Strákarnir okk-
ar, sem eru eldri, eru í alþjóðlegum
skóla og tala ensku þar. Það var erfitt
fyrir þá í byrjun að læra allt á ensku,
en þetta er orðið ljómandi fínt núna.
Litla stelpan okkar fór í kínverskan
leikskóla, þar er reyndar kennd enska
líka, en hún er núna farin að tala kín-
versku eins og þarf miðað við henn-
ar aldur – það er mjög krúttlegt.“ Stef-
anía segir að fjölskyldan reyni að vera
eins opin og jákvæð eins og þau frek-
ast geta, en ýmislegt í menningunni
sé mjög ólíkt því sem við eigum að
venjast á Íslandi. „Þetta er gríðarleg
stórborg og hér er til dæmis ekki mik-
ið um gras á opnum svæðum. Það
krefst þess vegna skipulags að finna
tækifæri fyrir börnin að leika sér úti.“
CCP-menningin
Á skrifstofu CCP í Sjanghæ starfa 63
starfsmenn, þar af tveir Íslendingar,
Stefanía og maðurinn hennar. „Við
reynum að hafa svipaða vinnu-
menningu hér og í höfuðstöðvun-
um í Reykjavík. Fólk vinnur oft langa
vinnudaga en við komum til móts
við það og viljum að öllum líði vel,“
segir Stefanía að lokum. n
„Við erum að taka
skref inn í næstu
bylgju í leikjaþróun.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Mikilfengleg grafík Hér sést stjórnklefi Gunjack utan frá.
Stjórnklefinn Svona er útsýnið úr klefanum.
Stefanía G.
Halldórs-
dóttir Menn-
ingin í Kína ólík
þeirri íslensku.
MyNd SiGtRyGGuR ARi