Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 6
SHAPE DELUXE
heilsurúm
m/classic botni
Shape deluxe heilsurúm:
• Lagar sig fullkom lega að líkama þínum
• 26 cm þykk heilsudýna
• 2 cm latexlag bólstrað í áklæði
• 4 cm gel memoryfoam
• 4 cm shape memoryfoam
• Non-slip efni á botni dýnunnar
• Engir rykmaurar
• 5 ára ábyrgð!
• Ofnæmisprófuð
• Burstaðir stálfætur
Stærð cm. Fullt verð Jólatilboð
100x200 129.900 103.920
120x200 164.900 131.920
140x200 184.900 147.920
160x200 209.900 167.920
180x200 234.900 187.920
Jólatilboð 20% afsláttur
NATURE’S DIAMOND
heilsurúm
25%
AFSLÁTTUR
Nature’s Diamond heilsudýna
með Classic botni og löppum
nú á jólatilboði í Dorma.
Verðdæmi:
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 204.900 kr.
Aðeins 153.675 kr.
Jólatilboð 180 x 200 cm
Aukahlutur á
mynd: rúmgafl.
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
MEIRA Á
dorma.is
Aðeins 19.900 kr.
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
Hafðu það
notalegt um jólin
Komdu í Dorma
Val um svart eða hvítt PU
leður eða grátt áklæði á botni.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
20%
AFSLÁTTUR
JÓLA-
TILBOÐ
Fundur Fjórir Flóttamenn taka til máls ásamt Fulltrúum rauða krossins
Flóttamenn segja sögu sína á leiksviði
F jórir flóttamenn segja sína sögu á stóra sviði Borgarleikhússins á laugardaginn. Auk þeirra taka þrír
fyrirlesarar frá Rauða krossinum til máls.
Skipuleggjendur segja að þarna eigi að
vera einlæg samverustund sem er öllum
opin og að kostnaðarlausu. Málefni flótta-
manna hafa verið mikið í umræðunni að
undanförnu og því ætti að vera áhugavert
að heyra sjónarmið flóttafólks.
Leikararnir Halldóra Geirharðsdóttir
og Bergur Þór Ingólfsson halda utan um
dagskrána sem hefst klukkan 13 á laugar-
daginn.
„Ekkert er leikhúsinu óviðkomandi.
Það er musteri skemmtunar og gleði en
um leið musteri mannúðar og mannskiln-
ings. Hlutverk þess er meðal annars að
varpa ljósi á málefni líðandi stundar, rýna
í samtímann bæði með leiksýningum og
einnig með öðrum hætti með því að halda
á lofti vitsmunalegri umræðu um þjóðfé-
lagið, stjórnmálin, menningu og listir. Það
sem brennur á fólki um allan heim þessi
misserin er hinn stórbrotni flóttamanna-
straumur,“ segir í tilkynningu frá Borgar-
leikhúsinu.
Fjórir flóttamenn segja sögu sína á fjölum Borgarleikhússins
klukkan 13 á laugardag.
Halldóra Geirharðsdóttir.
samgöngur millilandaFlug Frekar um aðaldal en eyjaFjörð
Húsavíkurflugvöllur
betri kostur en Akureyri?
Tvisvar nýverið hefur beinu millilandaflugi til Akureyrar verið beint til Keflavíkur vegna veðurskil-
yrða eða þess að óvanir flugmenn treystu sér ekki til að lenda.
H úsavíkurflugvöllur í Aðaldal hentar mun betur til milli-landaflugs en Akureyrar-
flugvöllur, að því er fram kemur í
leiðara Hermanns Aðalsteinssonar,
ritstjóra þingeyska vefmiðilsins
641, þar sem hann ræðir umfjöllun
undanfarið um kosti Húsavíkur-
flugvallar (Aðaldalsflugvallar) um-
fram kosti flugvallarins á Akureyri
í sambandi við millilandaflug. „Það
hefur komið a.m.k. tvisvar fyrir nú
nýlega,“ segir Hermann, „að lenda
hafi þurft á Keflavíkurflugvelli við
heimkomu þegar til stóð að lenda
á Akureyrarflugvelli, vegna veður-
skilyrða, eða þá að óvanir flugmenn
þorðu ekki að lenda á Akureyrar-
flugvelli.“
„Í framhaldi af þessu hafa eðli-
lega vaknað upp spurningar um
hvort ekki væri nær að horfa til
Húsavíkurf lugvallar sem betri
kosts fyrir beint millilandaflug fyrir
Norðlendinga. A.m.k. einn bæjar-
fulltrúi á Akureyri hefur velt þess-
ari spurningu upp og er það fagn-
aðarefni þegar Akureyringar sjálfir
eru farnir að sjá það sem augljóst
hefur verið í augum okkar Þingey-
inga lengi, að Húsvíkurflugvöllur er
einfaldlega mun betri kostur fyrir
millilandaflug heldur en Akureyrar-
flugvöllur.“
Hermann rekur síðan ástæður
þess, meðal annars að með tilkomu
Vaðlaheiðarganga verður aksturs-
tími frá Akureyri til Húsavíkurflug-
vallar innan við 40 mínútur sem er
svipað og fyrir fólk á höfuðborgar-
svæðinu að aka til Keflavíkur. Auð-
velt er að lengja Húsavíkurflugvöll
í báða enda, nóg pláss, engar bygg-
ingar og engin há fjöll í næsta ná-
grenni. Núverandi þjóðveg, sem
liggur við norðurenda brautarinnar,
væri hægt að leggja í stokk undir
brautina.
„Stærsta vandamál Akureyrar-
f lugvallar er staðsetning hans í
þröngum Eyjafirðinum. Sama hvað
gert er við þann völl að þá lækka
fjöllin sem umkringja hann ekk-
ert,“ sagði Friðrik Sigurðsson, for-
seti sveitarstjórnar Norðurþings
og flugrekstarfræðingur, í viðtali
á sjónvarpstöðinni Hringbraut ný-
verið, sem vísað er til í veffréttinni.
Hins vegar er, segir enn fremur,
langt í há fjöll í nágrenni Húsavíkur-
flugvallar og lágar heiðar í nágrenni
hans ættu ekki að vera til vandræða
í aðflugi fyrir stórar flugvélar. Því er
svo bætt við í umfjöllun þingeyska
vefmiðilsins að veðurfarsleg skil-
yrði séu betri við Húsavíkurflugvöll
en Akureyrarflugvöll.
Ritstjóri 641 bendir þó á að beint
millilandaflug frá Húsavíkurvelli
sé ekki raunhæfur kostur í dag. Til
þess skorti ýmislegt. „Lengja þarf
flugbrautina svo að hún nái 2300
metrum, en í dag er brautin 1600
metrar. Bæta þarf búnað við Húsa-
víkurflugvöll til þess að beint milli-
landaflug um völlinn geti orðið að
veruleika. Bent hefur verið á það
að það skorti burðarþolsmat fyrir
Húsavíkurflugvöll og því ekki ljóst
hvernig hann þolir stórar flugvélar.
Úr því þarf að bæta, segir Hermann.
Líklega þyrfti að stækka flugstöðina
eða byggja nýja, svo hún gæti nýst
gagnvart vegabréfaeftirliti, vopna-
leit og aðskilnaði farþega. Svo þyrfti
að tryggja aðgengi að þotueldsneyti.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Langt er í há fjöll í nágrenni Húsavíkurflugvallar. Mynd/Húsavíkurflugvöllur
6 fréttir Helgin 4.-6. desember 2015