Fréttatíminn - 04.12.2015, Blaðsíða 8
H lutverk D-vítamíns í bein-heilsu er vel þekkt en D-vít-amín virðist einnig geta haft
áhrif á fleira, eins og geðheilsu. Þessi
grein sem við vorum að birta styður
þá kenningu að samband sé milli D-
vítamínskorts og þunglyndis,“ segir
Ingibjörg Gunnarsdóttir forstöðu-
maður Rannsóknarstofu í næring-
arfræði og yfirnæringarfræðingur
Landspítala Háskólasjúkrahúss en
hún er verkefnisstjóri íslenska hluta
Evrópuverkefnisins MooDFOOD. 14
rannsóknarstofnanir í 9 löndum taka
þátt í MooDFOOD verkefninu sem
fjallar um tengsl næringarástands og
þunglyndis og er umfang verkefnis-
ins um 1,4 milljarðar króna.
Nýta sér gögn Hjartaverndar
„Evrópusambandið kallar reglulega
eftir ákveðnum tegundum af rann-
sóknum á þeim sviðum þar sem
talið er að staða þekkingar sé ekki
nægilega mikil,“ segir Ingibjörg en
árið 2013 var kallað eftir hugmynd-
um að rannsóknum á sviði næringar
og þunglyndis. Rannsóknarhópur-
inn MooDFOOD varð fyrir valinu
en Hjartavernd og Rannsóknar-
stofa í næringarfræði eru fulltrúar
Íslands í hópnum.
„Okkar aðkoma í verkefninu er
fyrst og fremst í faraldsfræði þar
sem við notum gögn úr öldrunar-
rannsókn Hjartaverndar en þar er
meðal annars að finna upplýsingar
um styrk D-vítamíns í blóði, fitu-
sýrusamsetningu í rauðum blóð-
kornum, fæðuval og þyngdarbreyt-
ingar allt niður í barnæsku. “
Stórir skammtar hjálpa ekki
Fyrstu niðurstöður íslenska hluta
verkefnisins birtust í Journal of
Nutritional Science í vikunni. Þar
er sýnt fram á það að þeir sem mæl-
ast með lágt D-vítmín í blóði eru lík-
legri til þess að hafa verið þunglynd-
ir á einhverjum tímapunkti. „Okkar
greiningar benda samt ekki til þess
að fólk myndi hafa gagn af mjög
stórum skömmtum af D-vítamíni til
þess að bæta geðið, heldur eru það
eingöngu þeir sem eru mjög lágir
sem voru líklegri til að vera þung-
lyndir. Margir samverkandi þættir
geta haft áhrif á D-vítamín í blóði,
en það virðist mikilvægt að koma
öllum upp fyrir 30 nmól/l, meðan
hærri D-vítamín gildi myndu líklega
ekki skila bættri geðheilsu miðað
við niðurstöður rannsóknarinnar.
Þannig að allir ættu að taka inn eitt-
hvað af D-vítamíni en kannski ekki
allt of mikið.“
Mælir með síld og laxi um jólin
Ingibjörg segir að verkefnið sé í full-
um gangi þar sem meðal annars sé
verið að nota gögn sem liggja fyrir
víða um Evrópu til að skoða tengsl
á milli næringarástands og þung-
lyndis í stórum faraldsfræðilegum
rannsóknum og að bráðlega fari
fleiri greinar að birtast. Undirbún-
ingur íhlutandi rannsóknar stendur
einnig yfir, þar sem markmiðið er
að rannsaka áhrif næringarmeð-
ferðar á geðheilsu.
En fáum við nægt D-vítamín úr
matnum, þar sem sólarljósið er ekk-
ert þessa dagana?
„Næstu mánuði þegar ekkert er
sólarljósið þurfum við að fá D-vítam-
ín úr matnum, bætiefnum eða lýsi og
það er mikilvægt að fólk passi upp á
þetta. Við erum mjög gjörn á að taka
vítamín og lýsi á morgnanna og ef
það gleymist þennan morguninn þá
er það svo fast í okkur að við þurfum
að bíða til næsta morguns, en auðvi-
tað má þá bara taka það í hádeginu
eða um kvöldið. Það að velja D-vít-
amínbætta mjólk kemur okkur ansi
langt, þannig að ef fólk velur hana
frekar en þá venjulega þá hjálpar það
til við að halda D-vítamíngildum í
blóði innan eðlilegra marka. Þetta
er kannski sérstaklega mikilvægt
fyrir þá sem gleyma oft að taka D-
vítamín sem bætiefni. En svo er ráð-
lagt að borða feitan fisk reglulega og
við getum gert vel við okkur með síld
og laxi um jólin .“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ný rannsókn bendir
til mikilvægis D-víta-
míns fyrir geðheilsu
Heilbrigðismál Tengsl næringar og geðHeilsu
Ný íslensk rannsókn, sem birt var í Journal of Nutritional Science í vikunni, styður þá kenningu
að samband sé milli D-vítamínskorts og þunglyndis. Rannsóknin er hluti af risavaxna samevr-
ópska verkefninu MooDFOOD. Ingibjörg Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri íslenska hlutans, segir
niðurstöður benda til þess að stórir skammtar af D-vítamini hjálpi ekki til að bæta geðið, heldur
sé mikilvægt að halda sér rétt ofan við lágmarksmörk. Allir ættu því að taka inn D-vítamín en
ekki of mikið.
Ingibjörg Gunnarsdóttir er forstöðumaður Rannsóknastofu í næringarfræði, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands og
yfirnæringarfræðingur Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hún er verkefnisstjóri íslenska hluta Evrópuverkefnisins Mood Food
sem fjallar um tengls næringarástands og þunglyndis. Mynd/Hari
ICEMART · AUSTURSTRÆTI 5 · NEÐRI HÆÐ Í VERSLUN
ICEWEAR MAGASÍN · OPIÐ ALLA DAGA
ÍSLENSKU
HANDVERKI
OG HÖNNUN
Full búð af...
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
8 fréttir Helgin 4.-6. desember 2015