Fréttatíminn - 14.05.2016, Qupperneq 14
Okkur tókst ekki að fokka systeminu
Í spjalli við Halldóru Geir-
harðsdóttur um endurkomu
Risaeðlunnar ber ýmislegt
á góma. Ofbeldi, sköpunar-
kraftur, hlutgerðar og
kantskornar konur og svo
„fokking ‘68 kynslóðin“ sem
neitar að afhenda máttinn til
arfbera sinna.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Okkur Möggu Stínu finnst al-
veg rosalega fyndið að lesa þessa
texta í dag. Við erum eiginlega í
sjokki,“ segir Halldóra Geirharðs-
dóttir, leikkona, leikstjóri og saxó-
fónleikari með meiru aðspurð um
texta Risaeðlunnar en svo hefst til
að mynda lagið Von; Mig langaði
að drepa hann en hann var uppi í
sveit. Og í enskri þýðingu; I wanted
to kill him but he was out of date,
squeese his life out, stab him like
a goat. He was a beambeam, I was
getting hot. Always on a bicycle, I
think his name was Matthew!
Lengi að fatta ójafnréttið
„Það er reiði, ofbeldi og húmor í
nærri öllum textunum en fullkom-
ið meðvitundarleysi um hvaðan
það kemur. Ég held að þegar það
er svona mikið ofbeldi í texta þá sé
maður að reyna að búa sér til pláss,
andrými til að vera til. En við vor-
um alls ekki meðvitaðar um það þá,
þetta var í undirmeðvitundinni. Við
erum afsprengi ‘68 kynslóðarinn-
ar og héldum í alvöru að það væri
komið jafnrétti. Þegar við vorum að
spila þá trúðum við því einlæglega
að við værum öll jöfn því við höfð-
um alveg nóg pláss í hljómsveitinni.
Það var þegar við svo stigum út á
vinnumarkaðinn sem þetta fór allt
að koma betur í ljós. Allt í einu voru
vinum okkar boðin hærri laun en
okkur og það var komið öðruvísi
fram við þá. Ég var einstæð móð-
ir en þeir voru „fyrirvinnur”, seg-
ir Halldóra og bætir því við að það
hafi tekið hana langan tíma að fatta
þetta. „Eiginlega ógeðslega langan
tíma. Ég fattaði þetta þegar ég var
rúmlega þrítug og ég varð gáttuð,
ég bara trúði þessu ekki."
Hlutgerðar og kantskornar
Halldóra og Magga Stína eiga báðar
dætur á þrítugsaldri og segir Hall-
dóra frábært að fylgjast með þeim
átta sig á hlutum sem þær sjálfar
voru svo grandalausar um. „Munur-
inn á þeim og okkur er að þær vita
að það er ekki jafnrétti. Þær eru svo
miklu meðvitaðri um stöðu sína og
tengdari við undirvitund sína. Þegar
dætur okkar eru í Free the nipple
og Druslugöngunni þá segjumst við
ekki vera búnar að þessu fyrir þær
heldur spyrjum við okkur af hverju
þær hafa ennþá þörf fyrir þetta. Við
vorum úr að ofan í sundi og okkur
fannst bara asnalegt að fara ekki úr
að ofan. En svo kom klámið og konur
voru hlutgerðar og kantskornar. Það
kom bakslag og við vorum granda-
lausar,“ segir Halldóra og minnist
þess þegar súlustaðirnir komu fyrst
til Íslands. „Mér fannst þeir bara
áhugaverðir því mín kynslóð hafði
engar forsendur til að átta sig á því
hvað væri mansal. Við hugsuðum
ekki um öll lögin sem liggja undir.
Ekki halda því nokkurn tíma fram
að þín kynslóð sé með þetta. Aldrei.
Það hlýtur alltaf að vera eitt lag í
viðbót því það er bara eðli heims-
ins. En að sama skapi segi ég að kyn-
slóðin fyrir ofan mig kenndi mér allt
sem ég kann. Ég er ekki hálfviti. En
við verðum að afhenda máttinn til
næstu kynslóðar. Það gerir þú ekki
með því að slá á fingurna á þeim og
segja þeim að þau séu hálfvitar, eins
og fokking ‘68 kynslóðin er að gera
í dag.“
Fokk the system
„Mér finnst svakalega áhugavert að
skoða kynslóðirnar og hvernig við
afhendum máttinn okkar áfram. Nú
er ég að verða fimmtug og í fyrra
leikstýrði ég farsa og það var rosa
gaman. En leikstjóra af kynslóðinni
fyrir ofan mig fannst hann knúinn
til að segja mér að maður skyldi
nú ekki halda að maður gæti bara
leikstýrt þó maður væri menntað-
ur leikari. Samt fór meiri hluti hans
kynslóðar ekki í leikstjóranám, og
þarna var ég búin að vera útskrifað-
ur leikari í tuttugu ár. Stundum líð-
ur mér eins öll okkar vinna, minnar
kynslóðar, hafi farið í að láta kyn-
slóðina fyrir ofan okkur vita að við
bærum virðingu fyrir þeim. Af-
hverju eru þau svona hrædd um að
við berum ekki virðingu fyrir þeim
og þeirra verkum? Við settum þá
plötu ekki á fóninn, þau settu hana
sjálf á! Þau hafa aldrei afhent okkur
völdin,“ segir Halldóra og grínast
með að hún sé uppfull af samsær-
iskenningum þessa dagana, annað
sé varla hægt. „Við erum af fokk the
system-kynslóðinni en samt hefur
okkur ekki tekist að ýta eldri kyn-
slóðinni frá, samanber Davíð og
Óla. Þeir bara ætla ekki að afhenda
næstu kynslóð völdin. Það er eitt-
hvað mikið að þessari kynslóð fyrir
ofan okkur. Og ég er sannfærð um
að jafnaldrar mínir, Sigmundur og
Bjarni Ben, séu brúður hennar.“
Spila ekki í fimmtugsafmælum
Ætlar Risaeðlan þá að fara að fokka
í systeminu?
„Nei,“ segir Halldóra og hlær. „Það
sem við ætlum að gera er upprifjun,
ekki hreyfiafl. Þetta er pínku eins
og að fara í tímavél og átta sig á úr
hverju við erum búin til og hvaðan
við komum. Horfa á það og skilja
það á öðrum stað, sem fullorðið
fólk. Risaeðlan byggðist alltaf upp
á frumsköpun og við gætum aldrei
þrifist öðruvísi. Nú vilja allir fá okk-
ur til að spila í fimmtugsafmælum en
það er algjörlega andstætt eðli okk-
ar, við gætum það ekki. Við myndum
deyja í höndunum á sjálfum okkur ef
við byrjuðum að spila þetta prógram
aftur og aftur. Við tókum boðinu um
að vera með á Aldrei fór ég suður og
af því að við vorum búin að leggja
það á okkur að rifja þetta allt upp þá
ákváðum við að hafa eina tónleika í
bænum. Fyrir fokk the system kyn-
slóðina...sem tókst ekki að fokka í
systeminu.“
Risaeðlan hætti fyrir tuttugu
árum síðan en ákvað að æfa upp
gamla prógrammið eftir gott boð
um að spila á Aldrei fór ég suður í
vetur. Hún verður með tónleika í
Gamla Bíói þann 19. maí næstkom-
andi.
Við erum
af Fokk the
system-kyn-
slóðinni en
samt hefur
okkur ekki tek-
ist að ýta eldri
kynslóðinni
frá, samanber
Davíð og Óla.
Risaeðlan er skipuð
þeim Möggu Stínu
söngkonu og fið-
luleikara, Halldóru
Geirharðsdóttur
söngkonu og saxó-
fónleikara, Ívari
Bongó Ragnars-
syni bassaleikara,
Þórarni Kristjáns-
syni trommara og
Sigurði Guðmunds-
syni gítarleikara.
Hljómsveitin var
stofnuð 1984 og gaf
út plötuna Fame and
Fossils árið 1990.
Sveitin starfaði með
hléum næstu árin
en gaf þó út plötuna
Efta! árið 1996 og
urðu útgáfutónleik-
ar þeirrar plötu að
eiginlegum lokatón-
leikum sveitarinnar.
14 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016