Fréttatíminn - 14.05.2016, Síða 22
Daði segist stundum
gleyma því að dóttir
þeirra hafi einhverntíma
verið öðruvísi en hún er
nú. „Hún er bara stelpan okkar og
þetta hefur ekki verið jafn flókið og
við bjuggumst við.“
Foreldrarnir segjast í raun alltaf
hafa vitað að Gabríela væri stelpa og
þess vegna hafi ferlið verið áreynslu-
laust og eðlilegt. „Hún leitaði í allt
sem gæti kallast stelpulegt frá því
hún var pínulítil. Hún var alltaf að
fá lánuð föt frá vinkonum sínum og
klæða sig upp. Hún lék sér með dúkk-
ur og Barbie og hreifst af öllu sem
glitraði. Okkur fannst ekkert að því.
Við bjuggumst alveg eins við því að
áhugi hennar á þessu myndi hverfa,”
segir María. „Ég reyndi stundum að
draga úr þessu, þegar hún varð að-
eins eldri. Ég vildi vernda hana og
var hræddur um að henni yrði strítt.
Sem dæmi gat verið snúið að gefa
henni afmælisgjafir. Við vissum al-
veg hvað hana langaði í en vorum
smeyk við að ota að henni dóti sem
gæti þótt of stelpulegt. Við vildum
ekki ýta undir þetta,“ segir Daði.
Fyrstu æviár Gabríelu bjó fjöl-
skyldan í Ólafsvík en þegar hún varð
fjögurra ára fluttu þau til Keflavíkur.
„Á þessum tíma klæddist Gabríela
alltaf kjólum eða pilsum heima hjá
sér en við vorum vön að senda hana
í hlutlausari fötum í leikskólann. Það
varð henni til happs að koma inn í
leikskóla Hjallastefnunnar í Keflavík.
Kynin eru aðskilin í skólanum og all-
ir krakkarnir ganga í skólabúning-
um. Árið sem hún byrjaði komu í
fyrsta skipti pils við skólabúningana.
Hún var sett í strákahóp en fékk að
vera í pilsi. Leikskólakennaranum
fannst það alveg sjálfsagt og krakk-
arnir kipptu sér ekkert upp við það,”
segir María.
Gabríela fékk að vera nákvæmlega
eins og hún vildi. Þegar krakkarn-
ir höfðu kynnst henni setti enginn
spurningamerki við það þegar hún
ári síðar, var látin skipta yfir í stelpu-
hópinn.
„Það styrkti hana rosalega og við
fundum hvað hún varð miklu sátt-
ari,“ segir María. „Hún passaði bet-
ur þar.“
Daði og María segja að þetta dæmi
lýsi reynslu þeirra af því ala upp
Gabríelu. Þau hafi stundum reynt að
halda aftur að henni, en þegar þau
leyfðu henni að vera eins og henni
leið best, þá fundu þau vel hvað það
gerði henni gott.
„Þegar við fluttum svo í bæinn,
með hana sex ára gamla, var ég að-
eins strangari við hana. Ég reyndi að
draga úr þessu stelpulega sem hún
sýndi svo mikinn áhuga, og passaði
að hún færi í strákalegri föt þegar við
vorum úti á meðal fólks. Ég óttað-
ist að hún yrði fyrir aðkasti á skóla-
lóðinni. Það varð til þess að hún
fjarlægðist mig sífellt meira,” segir
Daði. „Ég fann það sjálfur að ég var
að mála mig út í horn. Hún treysti
mér ekki jafn vel og áður. Þegar ég
kom heim úr vinnunni á daginn þá
hætti hún að leika sér í stelpulegum
leikjum um leið. Hún leitaði meira í
mömmu sína en mig og mér fannst
ég vera að missa hana frá mér. Ég
áttaði mig á því að ég væri bara að
flækja hlutina með því að streitast á
móti,” segir Daði.
Um þetta leyti byrjaði Gabríela
í Vatnsendaskóla í Kópavogi og að
sögn foreldranna fékk hún heims-
ins besta kennara, Ragnheiði Jónu
Laufdal Aðalsteinsdóttur. „Hún var
alveg frábær og reyndist okkur vel í
öllu ferlinu. Hún fékk styrk til að fara
á ráðstefnu um transkrakka í Banda-
ríkjunum og námsráðgjafi skólans
fór með. Ragnheiður Jóna bjó til
fræðsluefni fyrir aðra kennara um
þetta og stóð þétt við bakið á okk-
ur í öllu ferlinu. Ég man til dæmis
að hún mætti í karlmannsfötum á
einhverjum búningadegi, svo Gabrí-
ela yrði öruggari með sig. Hún varð
okkar helsti stuðningsmaður í þessu
öllu. Henni finnst svo mikilvægt að
allir fái að vera eins, og ekki fastir í
einhverjum kynjahlutverkum,” seg-
ir María.
Þau segja að í samráði við kennar-
ann og Gabríelu hafi verið ákveðið, á
miðju skólaári í öðrum bekk, að upp-
lýsa foreldra skólasystkina hennar
um að hún væri stelpa. Sendur var
tölvupóstur á foreldrana, svo var
haldinn foreldrafundur og krökk-
unum sagt frá því að Gabríel héti
Gabríela.
„Þá höfðum við kallað hana Gabrí-
elu heima í langan tíma og þörf
hennar varð alltaf sterkari. Um leið
og hún fékk að breyta um nafn var
eins og meiri ró kæmi yfir hana,“
segir María.
„Já, og við sáum hvað hún varð
sáttari. Þessi ýkta þörf fyrir eitthvað
bleikt og stelpulegt varð afslapp-
aðri og hún komst í meira jafnvægi.
Ég hafði miklað fyrir mér hvernig
krakkarnir myndu bregðast við. En
breytingin var miklu auðveldari en
ég hafði ímyndað mér,“ segir Daði.
Þau segja bekkjarfélagana hafa
þekkt Gabríelu vel og ekkert kippt
sér upp við breytinguna.
Svo kom að því að Gabríela fékk
nýjan kennara. Sú fékk að vita að
það væri stelpa í bekknum sem væri
fæddur strákur. „Nýi kennarinn vildi
alls ekki vita hvaða stelpa það var.
Eftir heila viku með bekknum höfðu
henni dottið tvær eða þrjár stelpur í
hug, en engin þeirra var Gabríela,”
segir María.
Þau neita því þó ekki að það hafi
komið hnökrar í ferlinu. Því eldri
sem Gabríela varð, áttaði hún sig
betur á líffræðilegum staðreyndum.
„Og það hafa komið tímabil þar sem
hún hefur verið döpur. Til dæm-
is þegar hún áttaði sig á því að hún
gæti ekki gengið með barn. Það var
svolítið áfall að átta sig á því að hún
væri kannski ekki að öllu leyti eins
og hinar stelpurnar,“ segir Daði.
Þau segja að í Gabríelu megi stund-
um greina undirliggjandi kvíða yfir
því sem er í vændum.
„En á heildina litið er hún ham-
ingjusamur krakki. Það koma hæðir
og lægðir aldrei efi. Hún vill hvetja
aðra krakka áfram og deila sinni
reynslu. Við vorum auðvitað hrædd
við það líka, eins og öll önnur skref,
en tökum undir það með henni að
það sé mikilvægt að tala um hlutina.“
Á heildina litið er hún
hamingjusamur krakki.
Það koma hæðir og
lægðir aldrei efi.
22 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016
Hún hefur aldrei efast
María Bjarnadóttir og Daði Már Ingvarsson segja það hafa verið
náttúrulegt ferli þegar Gabríela dóttir þeirra opinberaði fyrir
umheiminum að hún væri í raun stelpa.
Foreldrar og systkini Gabríelu styðja hana heilshugar í því sem hún vill gera. Frá
vinstri: Hrefna Ósk, Gabríela María, María, Daði Már og Daníel Már.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
LONDON f rá
7.999 kr.*
DUBLIN f rá
7.999 kr.*
STOKKHÓLMUR f rá
7.999 kr.*
AMSTERDAM f rá
9.999 kr.*
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
BRISTOL f rá
7.999 kr.*
HVERT
VILTU
FARA?
maí - okt .
sept . - des .
maí - des .
jún í - des .
jún í - sept .