Fréttatíminn - 14.05.2016, Qupperneq 54
Rammstein og Metallica
Á æfingum lyftir Dagmar 90 kíló-
um í réttstöðu en í keppnum lyftir
hún eitthvað meira. Þá vel yfir 100
kílóum. Hún segist annars ekkert
vera að leggja þyngdina neitt sér-
staklega á minnið, enda lyfti hún
sér til skemmtunar. „Ég er samt
sterk,“ segir hún ákveðin og skellir
upp úr. Og það fer ekkert á milli
mála. „Annars segir Ingimundur
mér bara hvað ég á að gera og ég
geri það,“ bætir hún við og vísar
þar til þjálfarans. „Svo hlustar
maður á Rammstein og Metallica
áður en maður lyftir. Stillir tón-
listina hátt og verður alveg brjálað-
ur í skapinu. Það gírar mann ansi
vel upp.“
Mætti tveimur tímum of seint
Lauryn Hill var heldur betur óvinsæl á dögunum þegar hún mætti
tveimur klukkustundum of seint á sína eigin tónleika í Atlanta. Þegar hún
mætti loksins púuðu áhorfendur á hana en hún byrjaði svo að syngja. Eftir
40 mínútur var slökkt á hljóðnemanum hennar því staðurinn lokaði kl 23.
Aðdáendur Lauryn voru skiljanlega mjög ósáttir við þetta og margir
vildu fá endurgreiðslu. Upphófst mikil reiði á samfélagsmiðlum og þegar
Lauryn svaraði reiðum aðdáendum bar hún því við að bílstjórinn hennar
hefði villst og tók fólk þeirri útskýringu misvel.
Georg og Julia saman á ný
George Clooney og Julia Roberts eru
mjög góðir vinir en þau eru að fara að leika
saman í nýrri mynd, Money Monster. Þau eru
bæði 55 ára gömul og eru alsæl með að fá að
vera aftur saman á hvíta tjaldinu, en þessi
mynd er sú fjórða sem þau leika í saman.
Í viðtali við The Insider segir Julia að hún
sé „heppnasta kona í heimi“. George talar um
það í þessu sama viðtali að Julia og eiginmað-
ur hennar, Danny Moder, séu ennþá svakalega
ástfangin en þau eiga 14 ára brúðkaupsafmæli
á þessu ári.
Rita Wilson með brjóstakrabbamein
Leikkonan Rita Wilson sagði frá því í vikunni að hún
hefði greinst með brjóstakrabbamein og þurft að láta
fjarlægja bæði brjóst sín. Rita, sem er eiginkona Tom
Hanks, segir að fjölskyldan, vinir og læknarnir hafi
bjargað lífi sínu. Þegar hún var að fá greiningu þurfti
hún að fara til nokkurra lækna til að fá rétta
greiningu. Hún deildi sögu sinni á Facebook til þess
að hvetja konur til að fá annað álit ef þær eru vissar um
að þær séu ekki að fá rétta greiningu hjá fyrsta lækninum.
Rita er 58 ára og fór í aðgerð til að láta fjarlægja brjóstin og svo í
aðra aðgerð til að byggja upp brjóstin að nýju.
Kraftaamman hlustar á
Rammstein fyrir æfingar
Dagmar Agnarsdóttir er 64 ára, æfir kraftlyftingar af kappi og er á
leið á heimsmeistaramót í sumar. Hún hlustar á Rammstein og
Metallica til að gíra sig upp og lyftir vel yfir 100 kílóum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þetta byrjaði þannig að dætur mínar voru báðar í þessu og drógu mig með sér upp úr sófanum. Það var fyrir
þremur árum. Ég hafði ekki verið
að æfa neitt í langan tíma og var
algjört sófadýr,“ segir hin 64 ára
gamla kraftlyftingakona Dag-
mar Agnarsdóttir, sem er á leið á
heimsmeistaramót í klassískum
kraftlyftingum í Texas í júní.
Fyndið og skemmtilegt
Dagmar, sem æfir undir hand-
leiðslu Ingimundar Björgvinssonar
kraftlyftinga- og einkaþjálfara hjá
Gróttu, viðurkennir að það hafi
verið ansi mikil átök að stíga upp
úr sófanum og fara að lyfta. „Við
Ingimundur höfum tekið þetta í
hænuskrefum og allt í einu er ég
komin hingað,“ segir Dagmar og
hlær. Henni finnst þetta nefnilega
pínulítið fyndið, að vera á leið á
heimsmeistaramót í kraftlyfting-
um á þessum aldri. „Það var aldrei
ætlunin að fara þangað en það er
voða gaman að vera orðin þetta
framorðin og taka þátt í svona
keppnum. Mér datt ekki einu sinni
í hug að þetta væri eitthvað sem ég
ætti eftir að gera. Áður en maður
fer út í þetta sjálfur þá er maður
kannski með smá fordóma gagn-
vart þessu. Það er nefnilega stund-
um sagt að konur verði svona og
hinsegin af því að lyfta, en það er
eflaust mjög misjafnt.“
Öll fjölskyldan með á mótið
Í fyrstu fannst Dagmar mest gam-
an að fá að deila áhugamáli með
dætrum sínum og eyða tíma með
þeim. „Ég hugsaði oft að ég nennti
ekki að fara aftur en það var bara
svo gaman að vera með þeim,
þannig að ég hélt áfram að fara.“
Svo þróuðust málin þannig að
önnur dóttir hennar varð ólétt og
hin sneri sér að golfi þannig að
hún varð ein eftir í kraftlyftingum.
„Ég sat ein í súpunni og er ekkert
á leiðinni að hætta,“ segir Dagmar
og tekur fram að félagsskapurinn
í kraftlyftingunum sé mjög góður
og mikil samheldni í hópnum.
Þannig að hún er alls ekki ein á
báti.
En þó dæturnar séu hættar að
æfa þá eru þær enn hennar dygg-
ustu stuðningsmenn, ásamt eigin-
manni og barnabörnum, og ætlar
öll fjölskyldan að fylgja henni á
mótið í sumar.
Upp úr sófanum Dagmar viðurkennir að
það hafi verið átök að byrja að lyfta eftir að
hafa ekki æft neinar íþróttir í langan tíma.
Sterk amma Dagmar vílar ekki fyrir sér að lyfta yfir 100 kílóum í keppnum og hlustar á Rammstein og Metallica til að koma sér í rétta gírinn.
Mynd | Rut
Snilld að nota dömubindi til
þess að bera á sig brúnkukrem
Fær fallega og jafna áferð á brúnkukremið
Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir
uppgötvaði skemmtilega leið til
þess að bera á sig brúnkukrem
þegar hún stóð úrræðalaus fyrir
framan baðherbergisskápana eitt
kvöldið. „Ég var að fara að bera á
mig brúnkukrem og fann hvergi
brúnkuhanskann minn. Ég rótaði í
skápunum í hálfgerðri örvæntingu
að leita að einhverju nothæfu
þegar ég rak augun í dömubindin,“
segir Gyða Dröfn hlæjandi.
Í hallæri ákvað Gyða Dröfn því
að prófa að nota dömubindi til
þess að setja á sig brúnkukremið.
„Ég klippti það í tvennt, límdi á
hendurnar og límdi vængina yfir
handarbakið. Svo setti ég brúnku-
kremið í bindið og bar á mig. Þetta
reyndist svo heldur betur vera al-
gjör snilld, ótrúlega einfalt og gefur
brúnkunni alveg jafna áferð. Dömu-
bindin hreyfast heldur ekkert á
höndunum eins og hanskar eiga til
að gera, af því þú límir þau á.“
Gyða Dröfn kveðst nú nota þessa
aðferð reglulega til þess að setja á
sig brúnkukrem. En er einhver ein
tegund af dömubindum betri en
önnur? „Mér finnst best að nota stór
dömubindi með alveg sléttu yfir-
borði, sem draga ekki alltof hratt í
sig. Yfirleitt notast ég við Libresse,“
segir Gyða kát í bragði.
Gyða Dröfn heldur úti blogginu
gydadrofn.com þar sem hún skrifar
til dæmis um húð- og snyrtivörur,
heimilið og tísku, svo eitthvað sé
nefnt.
…fólk 18 | amk… LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2016
Ég hugsaði oft
að ég nennti
ekki að fara aftur
en það var bara svo
gaman að vera með
þeim, þannig að ég
hélt áfram að fara.
Úrræðagóð Gyða Dröfn klippir dömubindið
í sundur og límir það á hendurnar.
3ja landa sýn 2.-9. júlí
EYSTRASALTIÐ
Eistland, Lettland og Litháen
Einstök ferð um stórfallega náttúru
og sögusvæði þriggja landa við
Eystrarsaltið, Eistland, Lettland
og Litháen. Við heimsækjum þrjár
fallegustu borgirnar við Eystrasaltið
í einni og sömu ferðinni, Tallinn í
Eistlandi, Riga í Léttlandi og loks
Vilnius í Litháen. Við skoðum hallir,
kastala, lítil sveitaþorp, kynnumst
fallegri náttúru og heimamönnum.
239.900 kr
Verð per mann í 2ja manna herbergi
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Innifalið í Ferðakostnaði er eftirfarandi:
Flug og allir skattar í flugi frá Keflavík til
Vilníus í Litháen, Flug og allir skattar í flugi
frá Vilnius í Litháen til Keflavíkur, Akstur
frá flugvelli á hótel og tilbaka, Gisting á 3
og 4 *hótelum í ferðinni með morgunmat,
Öll keyrsla skv ferðalýsingu, Aðgöngumiðar
á tilgreinda staði í ferðalýsingu, Íslenskur
fararstjóri.