Fréttatíminn - 20.05.2016, Blaðsíða 4
Flest börn fæðast utan hjónabands
Um 70% barna á Íslandi fæðast utan hjóna-
bands, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunn-
ar sem sýnir ennfremur að frjósemi hér á
landi hefur aldrei verið minni en á síðsta ári,
eða árið 2015. Þannig fæddust 4.129 börn á
Íslandi, sem er nokkur fækkun frá árinu 2014
þegar það fæddust 4.375 börn.
Þegar aðstæður foreldra eru skoðaðar kem-
ur í ljós að aðeins 30,1% barnanna fæddust
í hjónabandi. Rúmlega 52% barna fæddust
í óvígðri sambúð árið 2015 og 15,3% barna
fæddust því utan sambúðar eða hjónabands
í fyrra.
Erfðapeningar Fannberg-
-fjölskyldunnar voru um
tíma geymdir í félagi á
Bresku Jómfrúareyjunum.
Félagið var stofnað fyrir
tilstilli Landsbankans í Lúx-
emborg. Meðal hluthafa var
listakonan Rúrí.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Nöfn átta Fannberg-systkina er
að finna í Panama-skjölunum en
þau voru öll hluthafar í Gemma
Investment Holdings Limited. Fé-
lagi sem stofnað var árið 2000 á
Bresku Jómfrúareyjunum með að-
stoð Landsbankans í Lúxemborg.
Það var afskráð árið 2013.
Feðgarnir Jón og Árni Fannberg
voru auðugir menn sem skildu eftir
sig háar fjárhæðir þegar þeir létust.
Jón J. Fannberg var einn stofnenda
Kúlulegusölunnar og átti meðal
annars fjölbýlishús við Hátún 6 þar
sem leigðar voru út íbúðir. Árni tók
við Kúlulegusölunni af föður sínum
og auðgaðist einnig á fasteignaum-
sýslu. Hann lést árið 1996 og auð-
ur hans skiptist á milli eiginkonu
hans, Sigríðar Guðnýjar Jóhanns-
dóttur Fannberg, og barna þeirra
átta. Rúrí er eitt þeirra.
„Ég hef gefið þetta upp til skatts
frá fyrsta ári. Peningarnir voru
fluttir heim árið 2009 og ég hef
borgað öll lögboðin gjöld af þeim.
Ég hef ekki verið að fela neitt,“ seg-
ir Rúrí.
–Orkar það ekki tvímælis að
geyma peninga í skattaskjólum?
„Það var ekki verið að skýla
neinu fyrir sköttum. Þetta voru
ekki meiri fjármunir en svo að
ég er búin að breyta öllum þeim
peningum sem ég átti í myndlist,
ég hef umbreytt efnislegum verð-
mætum í listræn og menningarleg
verðmæti. Það er hlutverk okkar
listamanna, ekki bara mitt, heldur
allra listamanna. En fyrst þú spyrð
mig, þá finnst mér sérkennilegt að
hlusta á fólk halda því fram að það
hafði ekki vitað að það ætti eign-
ir þarna. Sérstaklega fólk sem er í
embættum sem hefur með fjársýslu
að gera. Ég hélt að flestir vissu um
sínar eignir, hvort sem þær eru litl-
ar eða stórar.“
Rúrí vildi ekki svara því hvort
það að geyma peninga í skatta-
skjóli væri á skjön við skilaboðin
sem greina má úr verkum hennar.
Listakonan Rúrí er
í Panama-skjölunum
Listakonan Rúrí erfði peninga eftir föður sinn en þeir
voru um tíma í félagi á Bresku Jómfrúareyjunum.
Mynd | Hari
Það þýðir
ekki að ræða
þessi mál við
borgina.
Guðný Atla-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Café París.
Töpum stórfé vegna sumarlokana
„Þú sérð engan Íslending vera
að njóta þess að göturnar eru
lokaðar,“ segir Guðný Atladóttir,
framkvæmdastjóri Café París. Hún
segir að fyrirtækið tapi stórfé á
hverjum degi vegna þess að borgin
haldi því til streitu að sumarlok-
anir hefjist 1. maí. „Það var allt
krökkt af Íslendingum í apríl en
þeir koma síður eftir að götunum
var lokað. Það er of erfitt að finna
stæði í miðbænum og það langar
engan að ganga í misjöfnu veðri.
Um leið og sólin fer að skína flykkj-
ast Íslendingar í bæinn en þeir
koma síður þegar það er kalt og
alls ekki ef göturnar eru lokaðar.
Við viljum endilega loka götun-
um þegar sólin skín en ekki hina
dagana. En það þýðir ekki að ræða
þessi mál við borgina. Það er að
tala fyrir daufum eyrum. | þká
Afsala sér sölulaunum vegna listasafnsins
Hærra tilboðið kom
nokkrum mínútum fyrir
sölu. Kaupandinn áður gert
tilboð
„Það er kannski ágætt að taka fram
að það hefur ekkert verið sannað
varðandi mistök, þó maður úti-
loki það ekki,“ segir Ingólfur Geir
Geirsson, annar af eigendum fast-
eignasölunnar Valhallar, sem seldi
listasafn ASÍ til hjónanna Sigur-
björns Þorkelssonar og Aðalheið-
ar Magnúsdóttur fyrir 168 milljón-
ir króna. Annað og hærra tilboð
barst í eignina rétt áður en hjónin
skrifuðu undir kaupsamninginn og
munaði í raun mínútum á að það
bærist til fasteignasalans sem sá um
söluna, að sögn Ingólfs. Hann seg-
ir að starfsmaður fasteignasölunn-
ar hafi kannað hug einstaklings-
ins sem átti hærra tilboðið fyrr um
daginn og þá hafi hann ekki viljað
gera hærra tilboð. Það breyttist þó
síðar um daginn.
„Við munum auðvitað sjá til þess
að seljandinn skaðist ekki af mál-
inu,“ segir Ingólfur Geir en sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans
mun ASÍ ekki þurfa að greiða sölu-
laun til fasteignasölunnar, sem
hefðu annars orðið umtalsverð
vegna fjárhæðarinnar sem húsið
seldist fyrir. Samkvæmt heimild-
um Fréttatímans telur Alþýðusam-
bandið að það hafi verði hlunnfarið
um nokkrar milljónir, en Ingólfur
segir muninn óverulegan.
Alls bárust 6 tilboð í húsið og
samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans reyndi sá sem átti hæsta tilboð-
ið að kaupa listasafnið áður en það
var sett á sölu, en sá aðili er úr við-
skiptalífinu eins og kaupendurnir.
„Ef mistök hafa sannarlega átt
sér stað, þá verður það ekki rakið
til neins annars en mannlegra mis-
taka. Tilboðið kom bara svo seint að
þetta var mínútuspursmál áður en
skrifað var undir,“ segir Ingólfur. |vg Listasafn ASÍ var selt á tæplega 170 milljónir króna.
„Það eru talin vera tengsl
á milli ADHD og efnanna
í miklu magni,“ segir Ingi-
björg Jónsdóttir, sérfræðing-
ur hjá Matvælastofnun, en
ný dönsk rannsókn leiðir í
ljós að óvenju mikið af skor-
dýraeitri er í þvagi danskra
barna.
Jótlandspósturinn hefur eftir Phil-
ippe Grandjean, sem stjórnar rann-
sóknum á eiturefnum, að svo mikið
finnist af eitrinu að hætta sé á að
það valdi tjóni á andlegu atgervi
þeirra.
„Þetta hefur verið að finnast í
matvælum hér, en innan leyfilegra
marka,“ segir Ingibjörg. „Við erum
með sömu reglur og Evrópusam-
bandið varðandi hámarksmagn
efna í innfluttu grænmeti.“
Í Danmörku finnst sumum ESB
reglurnar heldur rúmar. „Við
erum með strangari reglur en ESB
um notkun slíkra efna hérlendis.
Dimethoat hefur þó tímabundið
verið leyft gegn kálflugu í gulrófna-
rækt. Erlendis hafa þessi efni verið
notuð sem flóalyf á gæludýr og gegn
kakkalökkum í byggingum. Evrópu-
sambandið er alltaf að endurskoða
reglurnar. Þessi efni eru enn notuð
í Suður-Evrópu en rannsóknin gæti
leitt til þess að þau verði bönnuð,“
segir Ingibjörg og fullyrðir að notk-
unin sé fremur að minnka og líklegt
að álíka rannsókn eftir nokkur ár
myndi skila betri niðurstöðu. Hún
segir ennfremur að efnin hafi frekar
verið að finnast á landsbyggðinni í
Danmörku og Bandaríkjunum, en
álíka rannsókn hafi ekki verið gerð
hér þar sem notkun þeirra hefur
verið mjög lítil mjög lengi. „Jákvæð
áhrif af neyslu ávaxta er meiri en
nokkur hætta,“ segir hún -vsg.
Tengsl milli ADHD og
eiturefna í grænmeti
Mynd | Rut
Aðeins 30% barna fæðast
innan hjónabands.
4 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016