Fréttatíminn - 20.05.2016, Blaðsíða 54
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@amk.is
Skógarjóga eða útijóga geturðu í raun gert hvar sem er. Líka í bland við aðra útivist. Það er frábært til dæmis
eftir göngur að taka jógateygjur,“
segir Gyða Þórdís Þórarinsdóttir
jógakennari. Hún er með jóga-
stúdíó – Shree yoga – í Versölum
í Kópavogi, en kennir jafnframt
skógarjóga undir berum himni í
Gufunesgarði á sumrin.
Heilun að hlusta á fuglana
Hún segir dásamlegt að stunda
jóga úti í náttúrunni, enda nái fólk
alltaf betri jarðtengingu utandyra.
„Jarðtengingin er það sem við
erum að sækjast eftir. Þegar við
erum úti þá náum við meiri tengsl-
um við náttúruna og okkur sjálf.
Það er viss heilun að vera úti og
hlusta á fuglasönginn. Veðrið á Ís-
landi er auðvitað ekki alltaf upp á
sitt besta en ég hef alveg verið með
jóga úti þó það sé smá rigningar-
rúði. Það er reyndar ekki hægt að
vera úti í ausandi rigningu og híf-
andi roki,“ segir Gyða og bendir á
að í Tælandi og Indlandi, þar sem
jóga á uppruna sinn, sé það alltaf
stundað úti. Eingöngu sé skýlt fyr-
ir sólinni.
„Það er líka gott að taka
öndunaræfingar úti í náttúrunni
og hægt að gera hvar sem er. Þær
styrkja líkamann og fyrirbyggja
vandamál, bæði líkamleg og and-
leg. Þær losa spennu og streitu,“
bætir Gyða við.
Kyrrð inni í borginni
Skógarjógað hjá Gyðu hefur verið
vel sótt og oft koma börnin jafn-
vel með foreldrum sínum í tím-
ana. „Við erum á fallegum stað
í Gufunesgarðinum og þó þetta
sé inni í borginni þá náum við að
einangra okkur vel frá skarkalan-
um og erum í algerri kyrrð. Fólk
elskar að liggja í slökun úti í nátt-
úrunni. Enda er það alveg dásam-
legt. Í náttúrunni nærðu enn meiri
tengingu við núið og eininguna og
þegar það á sér stað ertu að gera
jóga. Að rækta huga, líkama og sál
er akkúrat það sem jóga snýst um.
Þú færð tækifæri til þess stíga út úr
huganum og hverfa inn í sálina,“ út-
skýrir Gyða, en upp úr miðjum júní
er hún með fasta tíma í Gufunesinu
á sunnudagsmorgnum.
Aðspurð segir hún jógað vera
fyrir alla, byrjendur og lengra
komna. „Við förum alltaf rólega af
stað en það er hægt að gera meira
þegar við erum úti, undirlendið
er svo mjúkt. Fólk er tilbúnara að
gera jógastöður sem það hefur
verið hrætt við að gera, eins og að
standa á höndum og fara í höfuð-
stöðu. Fólk finnur barnið í sér og
slær til.“
Jóga á Menningarnótt
Þá hefur Gyða verið með skógar-
jóga á Menningarnótt og hefur
uppátækið lagst vel í fólk. „Þeir
sem stunda jóga reglulega koma
með dýnurnar sínar og þetta er
skemmtileg viðbót inn í jógaheim-
inn sem fer ört stækkandi. Ég
hef tímasett jógað eftir hlaupið,
þannig hlaupararnir hafa getað
tekið þátt,“ segir Gyða og á þar að
sjálfsögðu við Reykjavíkurmara-
þonið. Töluverðar líkur eru á því
að Gyða verði aftur með skógar-
jóga á Menningarnótt í ár, en það
skýrist betur þegar nær dregur.
Heilun Gyða Þórdís segir ákveðna heilun fólgna í því að vera úti í náttúrunni og hlusta á fuglasönginn.
Skógarjóga inni í miðri borg
Gyða Þórdís stendur fyrir skógarjóga í Grafarvogi á sunnudagsmorgnum í sumar. Hún segir
fólk ná miklu meiri jarðtengingu utandyra og sé mun tilbúnara að gera erfiðar jógaæfingar.
Gönguhópur
fyrir fólk sem
kýs léttari göngur
Sigrún Ólafsdóttir stofnaði
gönguhópinn Léttu skrefin
Sigrún Ólafsdóttir kennari stofnaði
nýlega gönguhópinn Léttu Skrefin,
sem er hópur fyrir fólk sem kýs að
fara léttari göngur í styttri kantin-
um og fólk sem vill ná upp þoli fyr-
ir lengri göngur. „Margar göngur
eru miðaðar við fólk sem á ekki við
nein líkamleg vandamál að stríða
og mér fannst vanta hóp fyrir fólk,
til dæmis í ofþyngd, með astma eða
annað sem gerir það að verkum að
það treystir sér ekki í langar göngur
eða þarf að ná upp þoli fyrir þær,“
segir Sigrún.
Að sögn Sigrúnar hefur hópur-
inn fengið mikil og góð viðbrögð.
„Ég hef fengið mjög mikil viðbrögð
og það hefur verið vel mætt. Margir
hafa einmitt haft orð á því hvað það
sé svekkjandi að fara í göngur og ná
ekki að halda í við gönguhópinn.
Þannig að það hentar fólki vel að
byrja að ganga með okkur áður en
það leggur upp í lengri og erfiðari
göngur.“
Léttu skrefin fara ekki lengra en
fimm kílómetra í senn. „Ég reyni
að skipuleggja göngur sem eru ekki
lengri en 5 kílómetrar og reyni að
hafa þær sem mest á jafnsléttu. Það
þarf engan sérstakan búnað til þess
að ganga með okkur, en ég mæli
með gönguskóm í léttari kantin-
um.“
Allar göngur sem Léttu skrefin
fara í eru auglýstar í gönguklúbbn-
um Vesen og vergangur sem hægt
er að finna á Facebook. Næsta
ganga verður í kringum Tjörnina
þann 23. maí og er mæting klukkan
16.45 við innganginn á Ráðhúsinu.
Góð byrjun Sigrún Ólafsdóttir, kennari og
stofnandi Léttu skrefanna.
Vikulegar
göngur hjá
Heilsuborg
Gengið alla
þriðjudaga klukkan 17
Mörg freistandi fjöll eru á döfinni
í sumar hjá gönguhópi Heilsu-
borgar. Fyrsta gangan var síð-
asta þriðjudag en þá var gengið
á Úlfarsfell. Gengið verður undir
leiðsögn þjálfara Heilsuborgar alla
þriðjudaga í sumar klukkan 17 og
verður hver ganga auglýst sérstak-
lega á Facebooksíðu Heilsuborgar.
Fyrirhugaðar
göngur í sumar:
24. maí Reykjafell í Mosfellsbæ
31. maí Haukafjöll og Tröllafoss
7. júní Helgafell í Hafnarfirði
14. júní Búrfellsgjá
21. júní Hengilssvæðið
28. júní Esjan
5. júlí Húsfell
12. júlí Helgafell í Mosfellsbæ
19. júlí Hafrafell við Hafravatn
26. júlí Lyklafell
2. ágúst Úlfarsfell
(frá gróðrarstöð)
9. ágúst Vífilfell
16. ágúst Mosfell í Mosfellsdal
23. ágúst Akrafjall
Sumarið er tíminn Gönguhópur
Heilsuborgar gekk á Úlfarsfellið á þriðjudag.
…útivist 10 | amk… FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016
Síðumúla 6, 108 Reykjavík | 560 4000 | Opið alla virka daga
frá 10:00-18:00 | sibs.is/verslun | Finndu okkur á fb
VERSLUN
Fusion sokkar
3140.-
Tvöföldu æfingar- og göngusokkarnir frá 1000 Mile koma í veg fyrir blöðrumyndun.
Sokkarnir eru unnir úr hágæða efnum og hvort sem þú ert að leita af rakadrægum
íþróttasokkum, ullarsokkum eða göngusokkum, þá finnur þú þá hjá okkur.
Ultimate Trainer sokkar
2020.-
Fusion göngusokkar
4310.-
Approach göngusokkar
3530.-