Fréttatíminn - 20.05.2016, Blaðsíða 24
Myndir | Hari
Loksins
Tivoli á Íslandi!
Fjórhjóladrifin skemmtun í boði Bílabúðar Benna á morgun, laugardag
benni.is
JÁKVÆTT AÐ ÞORPIÐ
BREYTIST Í BORG
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Öll höfum við lesið nostalgískar lýs-
ingar rithöfunda á þorpsstemningu
miðbæjarins fyrr á árum, þar sem
konur fóru á inniskónum út í mjólk-
urbúð, börnin léku fallin spýta í
bakgörðum og allir lifðu í sátt og
samlyndi, Leibbi dóni leit á klukk-
una, svarta María pikkaði upp róna
og Óli blaðasali átti sviðið í Austur-
stræti.
Ímynd þorpssælunnar hefur
síðustu árin hins vegar vikið fyr-
ir harðskeyttri umræðu um eyði-
leggingu miðbæjarins, hrakningu
íbúa á brott, uppsprengt leiguverð
og mannfjandsamlegan yfirgang
verktaka.
Vissulega er rétt að sá þorps-
bragur sem einkenndi miðbæinn
til skamms tíma er á undanhaldi,
þorpið er að breytast í borg með til-
heyrandi sársauka, barnafólk flytur
í úthverfi og fátækir listamenn hafa
ekki efni á húsnæði í nýju borgar-
landslagi, en það er gömul saga sem
allar borgir hafa gengið í gegnum í
þróun sinni og langt frá því að vera
eitthvert séríslenskt fyrirbæri eins
og látið er í veðri vaka á köflum.
Breytingin hefur kannski geng-
ið hraðar fyrir sig hér en til dæm-
is í New York eða París en þróunin
er sú sama, hvort sem okkur líkar
betur eða verr og allir þeir íbúar
miðborgarinnar sem Fréttatíminn
ræddi við litu hana jákvæðum aug-
um.
Einn talaði um íslenska tuðvæð-
ingu og þá þjóðaríþrótt að vera á
móti öllum breytingum fyrirfram
þegar umræðuna bar á góma, ann-
ar sagði af og frá að þorpsstemn-
ing miðbæjarins væri horfin og sá
þriðji hristi bara hausinn yfir því að
einhver gæti tekið banka fram yfir
kaffihús, auðar götur með sandfoki
fram yfir iðandi mannlíf.
Í heildina virðist túristasprengj-
an margumtalaða hafa raskað lífi
íbúa miðborgarinnar furðulítið,
þeir halda áfram sínu lífi eins og
þeir hafa alltaf gert, rabba við ná-
grannana á götum úti, rækta í sér
heimsborgarann en gleyma þó ekki
þorparanum.
Miðbærinn er annað og meira en
bara Laugavegurinn og Skólavörðu-
stígurinn og í hliðargötum og bak-
görðum lifir þorpið góðu lífi með
þeim kostum og göllum sem því
fylgja. Breytingin er sú að nú tek-
ur það þorpsbúana bara augnablik
að komast í borgarstemningu þar
sem framandi tungumál hljóma við
hvert fótmál og mannlífsflóran er
ótrúlega fjölbreytt.
Fréttaflutningur af þróun miðborgarinnar hefur á undanförnum árum
verið ansi neikvæður. Það eru rekin upp ramakvein yfir hótel-byggingum,
lundabúðum, götulokunum og mannhafi á Laugaveginum nánast í
hverri viku og fyrir óinnvígða lítur birtingarmynd fjölmiðlaumfjöllunar
um miðborgina út eins og vígvöllur þar sem svekktir íbúar standa í
eilífðarþrasi við yfirgangssama verktaka og engum kemur dúr á auga
vegna skrölts í ferðatöskuhjólum og skellum í rútudyrum. Þessi mynd er
þó langt frá lagi í augum þeirra íbúa sem Fréttatíminn ræddi við. Þeir
elska sinn miðbæ með kostum og göllum og eru allir sammála um að
þær breytingar sem orðið hafa á undanförnum árum séu mjög til bóta.
Miðbærinn er ann-
að og meira en bara
Laugavegurinn og
Skólavörðustígurinn
og í hliðargötum og
bakgörðum lifir þorp-
ið góðu lífi með þeim
kostum og göllum
sem því fylgja.
24 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016