Fréttatíminn - 20.05.2016, Blaðsíða 22
VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
Camp - Let Classic
Fortjald - Eldhús með helluborði, vask og krana - 13” álfelgur. Tjaldast með fortjaldi á örfáum mínútum.
Yfir 80% seldra tjaldvagna í Danmörku eru Camp-let. Camp-let notar framúrskarandi akrílefni í tjalddúkinn.
Þessi er sá einfaldasti í uppsetningu - Stórglæsilegur vagn. Verð kr. 1.490.000,- með fortjaldi.
Viggi í Víkurverk hérna megin...
Ef þú kemur með gamla útilegutjaldið til
okkar þá tökum við það sem 200.000
króna innborgun inn á nýjan Camplet
Classic tjaldvagn. Ekki amalegt það.....
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Þetta gerðist þegar ég var í há-
skólanámi í London en þá vann ég
á veðmálastofu með náminu,“ seg-
ir Aaron C. Bullion. „Einn laugar-
daginn fengum við fax frá annari
veðmálastofu neðar í götunni um
að það hefði verið framið vopnað
rán. Ég var ekki búinn að lesa fax-
ið en var einmitt að fylgjast með
mjög undarlegum manni, sem var
ekki þessi týpíski kúnni, sem stóð
bara upp við vegg og fylgdist með
mér og hinum starfsmanninum.
Veðmálastofur, líkt og pöbbar,
hafa fastakúnna og þennan hafði
ég aldrei séð áður.“
„Andrúmsloftið varð enn
skrítnara þegar annar maður, sem
líktist hinum fyrri, kom sér fyrir í
einu horninu. Þegar sá þriðji kom
svo inn þá vissi ég að eitthvað væri
að fara að gerast. Skyndilega stökk
einn þeirra upp að mér, þrýsti bys-
su fast upp að gagnauganu á mér
og öskraði í eyrað á mér, „all the
money, give me all the focking mo-
ney, all the focking money now!!“
Það varð allt snarvitlaust á einu
augabragði, ringulreið og öskur.
Annar þeirra hótaði félaga mínum
Aaron C. Bullion er hönnuður sem
hefur búið á Íslandi í fjölda ára. Hann
hefur tvisvar lent í vopnuðu ráni.
Fyrst þegar hann vann á veðmálastofu
í London og í seinna skiptið í banka í
London.
Lífsreynslan
Lenti tvisvar í vopnuðu ráni
22 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016