Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 23

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 23
líka með byssu og sá þriðji sá um að enginn kæmi inn.“ „Opnaðu helvítis öryggishólf- ið eða ég drep þig núna!“ öskr- aði hann í eyrað á mér en ég gat ekki opnað öryggishólfið því það var tímastillt. Ég hélt að ég myndi deyja þarna en það skrítna er að í svona aðstæðum þá hugsar mað- ur svo mikið á svo stuttum tíma. Fyrsta hugsunin var sorg yfir því að nú væri komið að dauðdaga mínum. En svo fór ég að hugsa um hvað það væri furðulegt að ég væri að hugsa þetta rétt fyrir dauðdag- ann og svo man ég hvernig það helltist yfir mig hversu mikið órétt- látt og ósanngjarnt það væri að þessi maður ætlaði að drepa mig. Að ég fengi ekki að klára háskól- ann eða sjá kærustuna mína aftur, að hann myndi fara í fangelsi en ég yrði jarðaður.“ „Allt í einu rankaði ég við mér í innbyggðri reiðinni og dró pen- ingaskúffuna út og kastaði henni í hann. Þetta voru ekki jafn miklir peningar og í öryggishólfinu en samt miklir peningar því þetta hafði verið annasamur dagur. Hann beygði sig niður og tróð öllu í poka en ég var alveg handviss um að hann myndi síðan drepa mig því ég hefði örugglega reitt hann til reiði. En þegar hann hafði tekið allt upp úr gólfinu öskruðu hann og ránsfélagar hans meira út í loft- ið en hlupu svo út. Og allt í einu var allt búið. Við vorum í algjöru losti en við erum Bretar svo okkar leið var að fara beint á næsta pöbb og fá okkur bjór.“ „Ég fór til Suður-Frakklands í frí eftir þetta en sagði svo upp vinnunni. Það skrítna er samt að nokkrum árum síðar lenti ég aftur í vopnuðu ráni, í banka í London. Ég var á leið í banka með kærust- unni minni og þegar við gengum inn tók ég eftir því að dyrnar, sem vanalega opnast með takka og þar sem eru alltaf verðir, voru opnar. Þar sem ég er alltaf á varðbergi eftir fyrri lífsreynsluna fannst mér þetta undarlegt en gekk samt inn. Um leið og við vorum komin upp að gjaldkeranum brutust nokkr- ir vopnaðir menn inn og fóru að ógna okkur með byssum og ýttu okkur svo til hliðar með byssu- skeftinu. Þeir öskruðu á alla gjald- kerana að afhenda peningana, þetta var bankarán eins og þú sérð í bíó. Í þetta skiptið varð ég mjög reiður yfir því að þetta væri að ger- ast. Stuttu síðar var þetta yfirstað- ið og við sluppum ómeidd.“ „Ég myndi segja að þessar upp- lifanir haft mikil áhrif á mig. Ég er alltaf á varðbergi og mjög meðvit- aður um það hversu varnarlaus við erum gagnvart lífinu. Hvað sem er getur komið fyrir okkur og breytt, eða tekið, líf okkar á einni sekúndu.“ ÚTSKRIFTARGJÖF GÓÐ Fyrsta hugsunin var sorg yfir því að nú væri komið að dauðdaga mínum. Aaron C. Bullion |23FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.