Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 28

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 28
Þótt leikskáldið Heiðar Sumarliða­ son sé uppalinn í Garðabænum og kona hans, Þorbjörg Daphne Hall, kennari við LHÍ, sé úr Laugardaln­ um kom ekki annað til greina í þeirra huga en miðbæjarsvæðið þegar þau keyptu sína fyrstu íbúð fyrir fjórum árum. „Við skoðuðum reyndar eina íbúð í Álfheimum,“ segir Heiðar og glottir. „En þá vorum við líka orðin örvæntingar­ full.“ Heppnin var með þeim og þau keyptu fallega risíbúð við Þing­ holtsstræti þar sem þau búa nú ásamt tveggja ára dóttur sinni, Ás­ laugu Elínu. Spurður hvers vegna þau hafi sótt í miðbæinn segir Heiðar ýmsar ástæður fyrir því. „Konan mín vinnur hérna niðri á Sölvhólsgötu, við áttum ekki bíl þá, ég skrifa mikið á kaffihúsum og akkúrat á þeim tímapunkti í lífi okkar hentaði best að vera hér.“ Hann viðurkennir þó að með tilkomu dótturinnar hafi komið til umræðu að færa sig í Laugar­ dalinn, en nú sé eiginlega búið að slá þá hugmynd út af borðinu – í bili að minnsta kosti. „Ég viður­ kenni alveg að ég hefði sjálfur ekki viljað alast upp í miðbænum, hér er ekkert nema götur og hús, þannig að þegar dóttirin eldist býst ég við að við skoðum flutn­ inga. Hér væri til dæmis ekki hægt að hleypa henni einni út að leika sér, hér er ekki mikið af leiksvæð­ um og manni myndi bara ekkert líða vel að vita af henni einni úti. Það er líka svolítið undarleg tilf­ inning að fara með hana í göngu­ túra á laugardags­ eða sunnudags­ morgnum og þurfa að passa það allan tímann að hún stígi ekki á glerbrot eða í ælupollana sem eru hér um allar gangstéttir á þeim tíma. En burtséð frá þeim minni­ háttar óþægindum þá er bara frá­ bært að búa hér.“ Heiðar hefur verið viðloðandi miðbæinn frá því upp úr tvítugu og segir það að geta farið allra sinna ferða fótgangandi, nálægð­ ina við kaffihúsin þar sem hann situr löngum stundum og skrif­ ar, mannlífið og orkuna í bænum bæta upp fyrir öll óþægindi sem þeim sem búa utan miðbæjarins verður starsýnt á. „Breytingin er helst sú, fyrir utan fjölgun fólksins á götunum sem er dásamleg, að ýmis þjónusta eins og símafyr­ irtæki, líkamsræktarstöðvar og bankar er horfin úr miðbænum og bara eitt bíó eftir, en maður vegur og metur kosti og galla og fyrir leikskáld er valið á milli kaffihúsa og banka auðvelt. Ekki get ég setið og skrifað í einhverjum banka.“ Þótt Þingholtsstrætið sé hliðar­ gata af Laugaveginum er hverfið ótrúlega kyrrlátt og Heiðar segist ekki hafa orðið var við neina trufl­ un af umgangi ferðamanna. „Ég var að reyna að rifja upp hvern­ ig þetta var fyrir þessa túrista­ sprengju og mig minnir nú að miðbærinn hafi bara verið stein­ dauður og mér finnst þetta líf sem fylgir ferðamönnum í miðbænum miklu skemmtilegra en að vera með göturnar tómar og ekkert nema sandinn fjúkandi í augun á manni. Þannig að ég hef nákvæm­ lega ekkert á móti túristavæð­ ingunni. Auðvitað er svívirðilegt hvað leiguverð hérna er orðið hátt, ef við ættum ekki þessa íbúð og þyrftum að leigja hefðum við ekki efni á að búa hér. Ef þú ert lista­ maður á leigumarkaði og vilt búa í 101 þá þarftu að vera mjög vel gift­ ur, það er eina leiðin.“ Aðrir sem rætt var við nefndu nálægð við bari og veitingahús sem einn kost þess að búa í mið­ bænum en Heiðar er ekki á sama máli. „Það er engin attraksjón fyrir mig, löngu hættur að nenna á barina og verðlagið á veitinga­ húsum er ekki hannað fyrir fátæka listamenn þannig að maður slepp­ ir því alveg að fara út að borða. En það eru margir aðrir kostir við að búa hérna og ég gæti ekki hugsað mér að flytja lengra í burtu en upp í Laugardal. Þaðan er til­ tölulega stutt niður í bæ, þar er líkamsræktarstöð og sundlaug og á að fara að opna tvö ný kaffihús, þannig að það væri kannski ekkert hræðilegt.“ Bjartmar Þórðarson, leikari og leikstjóri, býr á Grettisgötunni með manni sínum, Snorra Sig­ urðarsyni, og saman reka þeir íbúðahótel fyrir ferðamenn í sömu götu, en það hafa þeir gert undanfarin fimm ár. Hann seg­ ist vera borgarbarn af lífi og sál og ekki geta hugsað sér að búa annars staðar á Íslandi en í mið­ bænum, enda hafi hann búið þar meira og minna síðan hann var unglingur að undanskildum nokkrum árum sem hann var við nám í London, sem ekki minnkaði borgarástina. „Það er allt þetta líf og fjöl­ breytni sem heillar mig,“ segir hann. „Hér iðar allt af fólki og veitingahúsaflóran er orðin mjög fjölbreytt og skemmtileg á síðustu árum sem er mikil framför. Auð­ vitað fylgja þessari þróun vaxtar­ verkir, miðbærinn er að breytast úr þorpi í borg, það ætla allir að græða á túristunum og eins og svo oft hjá okkur Íslendingum stökkva allir í sama bátinn og kúldrast þar þangað til hann er orðinn svo hlaðinn að honum hvolfir. Það gengur auðvitað ekki.“ Bjartmar segir að hér áður fyrr hafi miðbærinn verið hálftóm­ ur nema um helgar og því sé aukið mannlíf af hinu góða. Það þurfi hins vegar að huga betur að innviðum ferðaþjónustunnar ef ekki eigi illa að fara. „Það er ekki næg heildarhugsun, það er tölu­ verð afmennskun á ferðamönnum í gangi á mörgum stöðum í ferða­ þjónustunni. Eins og það sé nóg að reisa fyrir þá fjölda hótela til að sofa í, veitingahús til að borða í og rétta þeim svo eins og einn lunda í fangið og þá séu þeir hamingju­ samir. Ferðamenn koma ekki til ókunnra landa til að sjá kassalaga hótelbyggingar og kaupa minja­ gripi. Þeir vilja kynnast mannlíf­ inu og menningunni, en á þá þætti hefur svolítið gleymst að leggja áherslu hérna. Við verðum að fara að hugsa í víðara samhengi ef ekki á illa að fara.“ Hugmyndir þeirra sem búa annars staðar um lífið í miðbæn­ um litast af því að þar búi engir nema lattélepjandi listamenn sem Heiðar Sumarliðason Ekki sit ég og skrifa í banka Bjartmar Þórðarson Fjölbreytnin heillar hangi á kaffihúsum daginn út og inn og geri aldrei ærlegt hand­ tak. Bjartmar hlær þegar þessi hugmynd er viðruð og segir að í fyrsta lagi sé latté algjörlega úti í kuldanum hjá miðbæjarrottum, nú drekki allir kaffi americano, og í öðru lagi sé leitun að annarri eins fjölbreytni í íbúasamsetningu og finna megi í miðbænum. „Auðvit­ að er hér mikið af listamönnum og ungu fólki með stóra drauma, en hér er líka mjög mikið af innflytj­ endum, sem gjarna leggja á sig að búa í minna húsnæði til að hafa efni á að búa hér, fjölskyldufólk, bankastarfsmenn og stjórnend­ ur lítilla sprotafyrirtækja. Það er mjög langt frá því að mannlífsflór­ an hér sé einsleit.“ Spurður hvort nálægðin við skemmtanalífið sé ekki eitt af því sem laðar ungt fólk að mið­ borginni jánkar Bjartmar því og bendir á að fyrir þá sem stundi það grimmt sé á sig leggjandi að borga hærri leigu en annars staðar þar sem á móti komi að fólk geti gengið heim að loknu djammi og spari því leigubílakostnað. „Ég er reyndar hálfgerður uppgjaf­ ardjammari og nenni lítið út nú orðið, en þegar maður var yngri þá var það óneitanlega mikill kostur að geta gengið heim eftir djamm. Núna er það þó fyrst og fremst nálægðin við fjöldann allan af góðum veitingahúsum með alþjóðlegri matreiðslu, skemmti­ leg kaffihús og bara sú nautn sem felst í því að ganga um göturnar og heyra fólk spjalla saman á mörg­ um framandi tungumálum sem gefur manni ánægju. Þess gæti ég ekki hugsað mér að vera án og ég sé það ekki fyrir mér að ég flytji nokkurn tíma í úthverfi, þótt auð­ vitað eigi maður aldrei að segja aldrei.“ 28 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.