Fréttatíminn - 20.05.2016, Qupperneq 38
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Eydís er nemi við heim-speki í Háskóla Íslands, ljóðskáld og oddviti Röskvu. Í fyrra gaf hún út ljóðabókina Tíst og bast sem sat á metsölu-
lista yfir íslenskar ljóðabækur. Fyrir
tæpu ári kom Eydís sér fyrir á stúd-
entagörðunum og segist kunna vel
við sig í litla rýminu. „Ég get ímynd-
að mér að kaupa litla íbúð í framtíð-
inni. Kynslóðin á undan okkur sótti
í stóra húsið, trampólínið, grillið og
garðinn. Fyrir mína parta er meira
gildi í því að vera í nálægð við góð-
ar samgöngur og geta rölt í skólann.
Að geta stokkið út í rauðvínsglas
með vinkonunum og þurfa ekki að
taka taxa heim úr bænum, það er
geggjað.“
Framan af var aðeins dýna, eld-
húsborð og sófi í íbúðinni hjá Ey-
dísi. Með þolinmæðina að vopni
var vandað er til verka þegar kom
að húsgagnakaupum. „Ég vildi ekki
afgreiða málið með því að spreða
hundrað þúsund krónum í Ikea og
fylla íbúðina af dóti. Ég kaupi held-
ur einn hlut í einu og virkilega
pæli í virði hans. Sófaborðið fann
ég á bland.is eftir mikla leit og nátt-
borðið í Portinu á Nýbýlavegi. Þetta
eru allt hlutir sem ég get ímyndað
mér að flytja í næsta bú.“
Það eru nokkrir gallar sem ber
á góma, en enginn bakaraofn er í
eldhúsinu. „Það takmarkar elda-
mennskuna að hafa ekki ofn, ég
elska líka að baka. Mig dreymir
einnig um parket á gólfið og líð-
ur stundum eins og ég búi á lager
með þennan dúk á gólfinu. Öðru er
ekki að kvarta yfir, ég hef þessa fínu
geymslu sem nýtist sem lager undir
ljóðabækurnar mínar. Rúmgott bað-
herbergi og rýmið almennt nýtist
mjög vel.“
Sérstakur Facebook hópur er
starfræktur fyrir háskólanemana í
blokkinni, smá kommúnu fílingur
líkt og Eydís kallar það. „Í hópnum
hjálpumst við nágrannarnir að. Um
daginn vantaði mig sárlega edik og
gat þá auglýst eftir því og sótt það
í næstu íbúð. Síðan er bara ótrú-
lega gaman að búa í nálægð við vini
sína. Þegar einn er að þvo þvottinn
í blokkinni á laugardagsmorgni er
annar að koma heim af djamminu.
Þetta er skrautlegt og skemmtilegt.“
Stúdentagarðarnir #3
Að geta stokkið
út í rauðvínsglas
með vinkonunum
og þurfa ekki að
taka taxa heim úr
bænum, það er
geggjað.
Staðsetning
framar en stærð
Hvernig er best að nýta smáhýsi? Eydís Blöndal býr í 35 fermetra stúd-
entagarði á Lindargötunni og er þriðji viðmælandi í myndaröðinni Stúd-
entagarðarnir. Litið er inn til námsmanna og kannað hvernig ungt fólk
nýtir rými með sniðugum og hagkvæmum lausnum, þar sem nægjusemi
einkennir búskapinn. Leigumarkaðurinn er til umræðu og kynslóðin sem
dreymir ekki um einbýlishúsið.
Hringlaga hillan er úr Tiger, eldhúsborðið úr Ikea og sjá má ljósmynd af Vigdísi
Finnbogadóttur hoppa í París.
Myndir | Rut
Eydís Blöndal býr á
stúdentagörðunum
og er sérstaklega
ánægð með stað-
setninguna, að geta
rölt í skólann og
skroppið út í drykk.
Teppið í miðju stof-
unnar er frá Túnis
og gerir mikið fyrir
íbúðina, en Eydís
erfði það eftir föður
sinn og sömuleiðis
listaverkið ofan við
sófann.
Ekki allir tengja saman samtímatónlist og hæfileika-
keppnir, en Jaðarber got hæfileikar ætlar að gera
tilraun til þess. Verkið er hluti Listahátíðar í Reykja-
vík og er Berglind María Tómasdóttir höfundur þess.
Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari er ein þriggja
keppenda sem spreyta sig í keppninni í von um sigur.
Hún segir samkeppnina mikla enda eigi þau öll erindi
í keppnina þó bakgrunnur þeirra sé ólíkur. Guðmund-
ur Felixson verður kynnir kvöldsins og í dómnefnd
verða þrír sérfræðingar: Atli Ingólfsson tónskáld,
Halla Oddný fréttamaður og Elísabet Indra tónlistar-
fræðingur. Tinna segir dómarana gáfaða, hvassa fag-
menn: „Þau eru ekki alltaf sammála, höfum við tekið
eftir á æfingum.“ Aðspurð hvort einhver dómaranna
sé jafn harður og Bubbi Morthens segir hún þá í raun
alla geta fallið undir þá skilgreiningu. Það stefnir því
í líflegt kvöld sem stefnan er að verði að árlegum við-
burði. Hver veit nema Jaðarber got hæfileikar verði
fyrir fullum sal á Korputorgi áður en langt um líður?
Þrír Bubbar í dómnefnd
Jaðarber got hæfileikar
Þau Atli Ingólfsson,
Halla Oddný og Elísabet
Indra munu dæma hver
hefur mestu hæfileik-
ana í samtímatónlist í
Mengi á sunnudag.
38 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016
Elskar þú að grilla?
O-GRILL
VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720
Rekstrarvörur óska eftir að ráða sölumann til starfa.
Í boði er starf hjá rótgrónu og traustu fyrirtæki.
Starfið felur í sér heimsóknir og sölu á rekstrarvörum til fyrirtækja
og stofnana, auk ráðgjafar í hreinlætismálum og þjónustu við
viðskiptavini. Starfssvæði er Norðurland og Vestfirðir.
Æskilegt er að viðkomandi þekki vel til á starfssvæði og hafi búsetu
á Norðurlandi
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á mannlegum samskiptum
og vera með einhverja reynslu af sölustörfum. Æskilegt er að
viðkomandi sé handlaginn og treysti sér til að þjónusta og sinna
minniháttar viðhaldi á þeim búnaði sem RV selur,
t.d. skömmturum og fleira.
Vinnutími er almennt kl. 8:00-16:00 mánudaga til föstudaga.
Leitað er að áhugasömum, ábyrgum, jákvæðum, sjálfstæðum og
þjónustulunduðum aðila sem getur hafið störf fljótlega.
Umsjón með ráðningu hefur Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir
fræðslu-og starfsmannastjóri RV.
Allar umsóknir ásamt ferilskrá með mynd skulu sendar á
sigurlaug@rv.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Umsóknafrestur er til 27. maí 2016
Rekstrarvörur | Réttarhálsi 2 | 110 Reykjavík | sala@rv.is | 520 6666
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 - 18 og laugardaga kl. 10 - 16
Sölumaður fyrir Rekstrarvörur á
Norðurlandi og Vestfjörðum
SLÁTTUVÉL, bensínvél
1,6kW, sláttubreidd 46cm
49.995kr.
53322805 - Alm.verð: 59.995kr
HELGARTILBOÐ
Ti
lb
oð
ið
g
ild
ir
til
2
3.
m
aí
.