Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 40

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 40
Laverne Cox heldur áfram að ryðja brautina fyrir transgender leikara út um allan heim Sjónvarpsstöðin CBS hefur nú staðfest að lög- fræðidramað Doubt fer í framleiðslu hjá stöð- inni, þar sem Laverne Cox, Katherine Heigl og Steven Pasquale munu fara með helstu hlutverk. Þættirnir eru úr smiðju þeirra sem skrifuðu Grey’s Anatomy á sínum tíma og fjalla um lög- fræðing sem fellur fyrir sjarma skjólstæðings síns, sem gæti hafa gerst sekur um hrottalegan glæp. Hlutverk Cox markar tímamót, því hún verð- ur með því fyrsta transgender konan til að leika transgender aðalpersónu í bandarískum sjón- varpsþætti. Leikkonan, sem er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í fangelsisdramanu Orange Is The New Black, stendur ekki í neinum smáræðis- verkefnum þessa dagana, en hún mun einnig leika aðalhlutverk Dr. Frank-N-Furter í framleiðslu Fox á költ-söngleiknum The Rocky Horror Picture Show í haust. AÐEINS TVÆR SÝNINGAR EFTIR 20/5 & 22/5 Sunnudaginn 22. maí verður sérstök hátíðarsýning á Listahátíð í Reykjavík þar sem boðið verður upp á listamannaspjall og freyðivín í lok sýningar Miðasala á www.id.is eða í miðasölu Borgarleikhússins í 568 8000 What a feeling eftir Höllu Ólafsdóttur og Lovísu Ósk Gunnarsdóttur eftir Hannes Þór Egilsson #islenskidansflokkurinn örfá sæt i Vinnustofan Ný verksmiðja – sama súkkulaðið Súkkulaðigerðin Omnom er um þessar mundir að koma sér fyrir í nýju húsnæði úti á Granda. Áður var súkkulaðið verkað í gamalli bensínstöð á Seltjarnarnesi en húsnæðið hefur sprungið utan af rekstrinum. Þeir Kjartan Gíslason og Karl Viggó Vigfússon sinna því öfundsverða starfi að framleiða og smakka súkkulaði allan liðlangan daginn. Þegar Fréttatímann bar að garði voru kokkarnir að leggja lokahönd á fyrstu tilraunalotu af súkkulaði í nýja húsnæðinu. Mjólkursúkkulaði með kaffibragði bruggað úr kaffibaunum frá Reykjavík Roasters, að sjálfsögðu fá allir að smakka. „Við smökkum í kringum 60 grömm af súkkulaði á dag, súkkulaðiplata á mann,“ segir Karl Viggó kátur í bragði með nýju vélarnar og aðstöðuna. Ferlið frá baun í bita er umfangsmikið. Kakóbaunirnar koma frá hinum ýmsu heimshornum, lífrænar og sanngirnisvottaðar. Hjá Omnom eru þær ristaðar, malaðar niður og hrærðar saman við önnur hráefni. Á innan við viku eru þær orðnar að innpakkaðari súkkulaðiplötu, tilbúinni til sölu. „Í nýja húsnæðinu verðum við með verslun með útsýni inn í verksmiðjuna. Einnig verður kynningarrými þar sem fólk getur kynnst starfseminni. Reksturinn hefur gengið vel undanfarin ár og við viljum halda áfram að sinna eftirspurn. Við höfum góða tilfinningu fyrir þessu.“ | sgk Mynd | Hari Laverne Cox er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í fangelsisdramanu Orange Is The New Black. Frá lögfræðidrama til költ-söngleiks Sviðslistir eiga að koma áhorfendum við Stórt vatnsglas, epli Mjallhvítar og stelpur sem taka sér pláss „Ég vil frekar að áhorfend- ur fari út af sýningunni í fússi en sitji í gegnum hana af einhverri skyldurækni ef þeim leiðist,“ segir Jó- hann Kristófer Stefánsson, sem um helgina frumsýnir útskriftarverk sitt, Vatn er gott, í Kúlunni. Þau Jóhann og Andr-ea Vilhjálmsdóttir eru meðal þeirra tíu sviðshöfunda sem nú einbeita sér að útskrift-arverkum sínum frá sviðslistabraut Listaháskólans. „Sýningarnar eru jafn ólíkar og þær eru margar: Eitt verkið er dæmis þrekverk sem stendur í heilan sólarhring, annað er þýskt verk sem sviðshöfundurinn þýddi yfir á íslensku og setti upp og enn annað er einfaldlega leiklestur á handriti,“ segir Andrea. Verk Andreu, Madhvít, vísar í Mjallhvítar-ævintýrið og segir hún því epli í raun leika aðalhlutverk í sýningunni: „Þetta er speglun Mjallhvítar í samtímanum, þar sem stelpur taka sér loks pláss á sviðinu.“ Madhvít er níu klukkutímar að lengd og verður sýnt í Tjarnarbíó. Áhorfendur geta þó ráðið hversu lengi þeir sitja inni í verkinu, hvort sem það eru 40 mínútur eða allir klukkutímarnir níu. Vatn er gott skoðar hins vegar vatn frá öllum hliðum, að sögn Jóhanns: „Hugmyndin byrjaði eiginlega með einhverju gríni þar sem ég var alltaf að segja fólki að fá sér vatnsglas. En í kjölfarið fór ég fyrir alvöru að pæla í hlutverki vatns, þessa vökva sem skiptir svo miklu máli.“ Þau Jóhann og Andrea sýna útskriftarverk sín, Vatn er gott og Madhvít, um helgina. Mynd|Rut Útskriftarsýningar sviðs- höfunda sem fara fram dagana 20.-26. maí: Ferðalagið – Brynjar Valþórsson Festival – Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir Hagaharmur – Sigurjón Bjarni Sigurjónsson In The Memory of Her Last- -minute: Within the Center of the Concert – Ingvi Hrafn Laxdal Kapsúllinn – Anna Katrín Madhvít – Andrea Vilhjálms- dóttir Sálufélagar – Nína Hjálmars- dóttir Stertabenda – Gréta Kristín Ómarsdóttir The Last Kvöldmáltíð – Kolfinna Nikulásdóttir Vatn er gott – Jóhann Kristófer Stefánsson Verkin eru bæði samsköpunar- verk, sem þýðir að verkið er af- rakstur vinnu margra í stað þess að höfundur skapi verkið einn. Andrea og Jóhann segja sviðs- listir ekki vera bundnar við leik- hússvið heldur hafa miklu fleiri möguleika: „Ég man þegar ég var lítill og fór á einhverjar leiksýn- ingar þar sem ég sat inni í leikhús- sal í tvo tíma og leið svo bara eins og það sem ég hefði séð kæmi mér ekkert við þegar ég kom út. Sviðs- listir eiga ekki að vera þannig,“ segir Jóhann. Andrea tekur í sama streng: „Við ætlum að setja spurn- ingamerki við hlutverk áhorfand- ans og jafnvel virkja hann svo- lítið.“ | sgþ 40 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.