Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 10.06.2016, Side 6

Fréttatíminn - 10.06.2016, Side 6
Verkalýðsmál Sjálfboða- liðasíðan WorkAway veldur miklum usla í ferðaþjónust- unni. Fjölmörg fyrirtæki hafa fengið til sín sjálfboða- liða en verkalýðsfélögin segja að þetta eyðileggi vinnumarkaðinn í ferða- þjónustu og haldi laununum niðri. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Upp úr sauð þegar eftirlitsmenn verkalýðsfélagsins Matvís og Ein- ingar Iðju mættu ásamt lögreglu í eftirlitsferð í ferðaþjónustufyrirtæk- ið Skjaldarvík við Eyjafjörð á þriðju- dag. Eigandi bannaði þeim að ræða við starfsfólkið og sparkaði í veggi og gólf. Þrettán sjálfboðaliðar eru við störf í Skjaldarvík sem rekur bændagistingu, hestaleigu og mat- sölustað. Nemarnir eru ungir að árum og ekki í neinu viðurkenndu starfsnámi þrátt fyrir yfirlýsingar eigenda um það. „Þau segjast út- skrifa starfsfólkið með diplómu en sú gráða hefur enga þýðingu. Krakkarnir ganga í öll störf og eru meðal annars í eldhúsinu þar sem er enginn faglærður aðili og það er skýrt brot á iðnaðarlögum,“ segir Óskar Gunnarsson, varaformaður Matvís. Eigandi Skjaldarvíkur gekkst síð- an inn á að þeir gætu hitt starfsfólk- ið daginn eftir og baðst afsökunar á framkomu sinni. Allt hafði fólkið verið að svara auglýsingu í gegnum sjálfboðasíðuna WorkAway, tvær starfsstúlkur höfðu verið launalaus- ar í sjálfboðavinnu marga mánuði. „Það liggur alveg ljóst fyrir að þau hafa ekkert leyfi til að útskrifa nem- endur,“ segir Óskar Gunnarsson. Félögin vilja að ferðaþjónustu- fyrirækinu Skjaldarvík verði lokað enda brjóti fyrirtækið lög og láti ekki segjast við ítrekuð tilmæli. „Almennt er þessi síða mjög mik- ið vandamál, ferðamenn nota þetta mikið til að komast til landsins,“ segir Vilhelm Adolfsson hjá Einingu Iðju á Akureyri. „Fyrir krökkunum er þetta ævintýri en þetta eyði- leggur vinnumarkaðinn í kringum ferðaþjónustuna og heldur niðri launum og bitnar á fagmennsk- unni. Þetta er bara byrjunin og það er erfitt að bregðast við þessu. Ef við lokum síðunni, kemur önnur upp. Það er mín skoðun að það þurfi að beita viðurlögum mjög hratt til að kveða þetta niður.“ Nám Seinustu skólaslit rektors MR Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Ég fer ekki í launkofa með að það eru mér mikil vonbrigði hvernig skólakerfið er að verða eftir breytingarnar,“ segir Yngvi Péturs- son, rektor Menntaskólans í Reykjavík. Hann hyggst láta af störfum síðar á þessu ári en það tilkynnti hann á seinustu skólaslitum skólans í maí síðastliðinn. Með haustinu verður farið af stað með þriggja ára nám til stúdentsprófs en hann var mjög ósáttur við breytinguna. Aðspurður um hvort tilkynning hans um starfslok sé vegna óánægju segist Yngvi hafa reynt að berjast fyrir því að nám nemenda verði ekki stytt. „Ég var með ákveðna tillögu að lausn sem ekki fékk brautargengi. Hins vegar er ég líka kominn á aldur og það er líka skýringin á því hver staðan er.“ Hafðirðu hugsað þér að hætta áður en breytingin lá fyrir? „Það má segja að þessi niðurstaða hafi hjálpað við þá ákvörðun. Ef ég hefði fengið samþykkt að fara þá leið sem við óskuðum eftir, fá nemendur fyrr, hefði staðan kannski verið önnur,“ segir Yngvi og bætir við að samstarfsfólk hans í skólanum hafi allt reynt að berjast fyrir þessu, samtaka og sam- stíga. „Við höfum mörg áhyggjur af því hvern- ig undirbúningi nemenda verður háttað í framtíðinni, bæði hvaða möguleika þau koma til að með að hafa gagnvart námi erlendis og síðan því námi sem tekur við.“ En mun takast að stytta námið úr fjórum árum í þrjú? „Við reynum auðvitað að gera okkar besta, minnkum námsefnið sem skerðist, heilt ár fer í burtu, og hluti af námsefninu sem áður var kennt í fram- haldsskólum færist niður í grunnskóla,“ segir Yngvi. Hann segir breytingarnar horfa misjafnlega við eftir því hvort um áfanga- eða bekkjarkerfi sé að ræða. „Í bekkjarkerfi er námið skipulagt á ársgrundvelli en þar sem áfangabasis er í áfangakerfinu þýðir það að þar er sveigjanleikinn meiri en í bekkjarkerfinu.“ Yngvi hefur verið rektor Menntaskólans í Reykjavík í 15 ár og þykir mörgum samstarfsmanninum það miður að skólaslitin í maí hafi verið hans síðustu. „Ég hef fengið mjög sterk viðbrögð frá samstarfsfólki mínu sem ég er afar þakklátur fyrir,“ segir hanni. Yngvi Pétursson, rektor MR, lætur af störfum síðar á árinu. Sjálfboðaliðasíðan Workaway Fréttatíminn greindi frá því í byrjun janúar að von væri á hundruðum sjálfboðaliða til að starfa í ferðaþjónustu á Íslandi. Fjölmargir hefðu auglýst eftir slíku vinnuafli á síðunni Workaway. Meðal þeirra sem auglýstu eftir sjálfboðaliðum til starfa voru sveitabýli og hrein og klár atvinnufyrirtæki. Óskað var eftir barnagæslu, aðstoð við jarðarberjarækt, aðstoð á hestaleigu, bóksölu og ein hjón voru að gera upp hús sem þau festu kaup á og vildu fá aðstoð. Samfélagsmál Starfsfólk Bernhöftsbakarís hefur fundið fyrir miklum stuðn- ingi undanfarið. Meðal annars fékk starfsfólk bak- arísins blóm frá viðskipta- vinum. „Það hafa tvö bakarí hringt og boð- ið mér að sameinast sér,“ segir Sig- urður Már Guðjónsson, bakari og eigandi Bernhöftsbakarís, en Hæsti- réttur Íslands samþykkti kröfu eignarhaldsfélagsins B13 að bera starfsemina út úr húsnæði sínu við Bergstaðastræti í miðborg Reykja- víkur í lok síðustu viku. Sigurður Már hefur ekki fengið formlega út- burðartilkynningu frá Sýslumann- inum í Reykjavík og því leitar hann að nýju húsnæði samhliða því sem hann selur rjúkandi bakkelsi. Sigurður Már segist hafa fund- ið fyrir gífurlegum stuðningi eftir að fréttir voru sagðar af útburðar- beiðni B13. Bernhöftsbakarí hef- ur verið við Bergstaðastræti frá 1982 en fyrirtækið hefur verið í miðborginni í rúma öld. Það er því ljóst að fyrirtækið á sinn stað í Óánægður með að nám sé stytt Sigurður Már Guðjónsson leitar að nýju húsnæði, helst í miðborginni. Tveir vilja sameinast heimilislausum bakara Mynd | Rut Vilja láta loka ferðaþjónustufyrirtæki sem reiðir sig á sjálfboðaliða Þrettán sjálfboðaliðar við störf á Skjaldarvík Skjaldarvík við Eyjafjörð. hjörtum borgarbúa. „Hingað hefur komið mikið af fólki síðustu daga og meðal annars færðu viðskipta- vinir starfsfólki okkar blóm,“ seg- ir Sigurður Már sem finnur fyrir miklum stuðningi frá almenningi í málinu auk þess sem tvö fyrirtæki vilja sameinast bakaríinu.„Hingað komu líka prestur og nunnur auk þess sem listaelítan hefur komið við og sýnt okkur stuðning,“ segir Sig- urður Már. Hann segir að viðskiptavinir hafi einnig sent borgarstjóranum, Degi B. Eggertssyni, og formanni skipulagsráðs, Hjálmari Sveinssyni, skilaboð þar sem þeir lýsa yfir óá- nægju með þessa þróun. „Fólk er aðallega áhyggjufullt yfir því hvert borgin stefnir. Það er hrunlykt í loft- inu,“ segir Sigurður Már sem vonast til þess að einhver sanngjarn leig- usali bjóði honum húsnæði í mið- bænum á sanngjörnu verði. Spurð- ur hvort hann sjái fyrir sér að fara út fyrir miðborgina tekur hann al- farið fyrir það; „Við höfum verið í miðbænum í hátt í 200 ár. Við vilj- um vera hér áfram,“ segir Sigurð- ur Már. 6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016 www.husgagnahollin.is 558 1100 EM-TILBOÐ AFSLÁTTUR 20% EM-TILBOÐ UMBRIA Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri tunga. Grátt eða dökkgrátt áklæði. Stærð: 330 × 265 × 78 cm. Aukahlutur á mynd: Hnakkapúði. 335.990 kr. 419.990 kr. Þú finnur nýja EM-tilboðsbæklinginn á www.husgagnahollin.is EM-STÓLLINN FRÁ ADAM Stílhreinn La-Z-Boy hægindastóll. Fáanlegur í leðri og áklæði. Leðurútgáfan fáanleg bæði rafdrifin og án rafmagns. Stærð: B: 82 × D: 98 × H: 104 cm ADAM Í ÁKLÆÐI 97.990 kr. 139.990 kr. ADAM í leðri 132.990 kr. 189.990 kr. ADAM rafdrifinn í leðri 216.990 kr. 309.990 kr. AFSLÁTTUR 30% EM-TILBOÐ Hafðu það smart ... … með smávöru úr Höllinni NÚ ER VEISLA Í HÖLLINNI

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.