Fréttatíminn - 10.06.2016, Síða 16
Í fótsporum
formóðir sinnar
Natalie Guttormsson er Vestur-
-Íslendingur frá Ontaríó og er ein
þeirra sem rekur ættir sínar til Frið-
riku. En hvernig komst hún fyrst að
tengslum hennar við Danaprins?
„Ég heyrði fyrst um Friðriku
Björnsdóttir árið 2014 þegar ég
var í Snorra prógramminu, sem
býður Vestur-Íslendingum að eyða
sumrinu á Íslandi og Íslendingum
að eyða sumrinu í Kanada. Hún er
langa-langa-langamma mín. Ég vissi
ekki mikið um hana, aðeins nokkr-
ar línur frá manntali sem sögðu að
hún bjó á Reyðarfirði og Eskifirði,
hvenær hún fæddist og lést og
hverjir foreldrar hennar voru.“
Natalie kom aftur til Íslands ári
síðar, vann á Vesturfarasetrinu á
Hófsósi og stundaði ættfræðirann-
sóknir. En hvers vegna er þessi
mikli áhugi á Friðriku núna, með
áformum um að byggja minn-
isvarða?
„Minnisvarðinn hefur verið í
vinnslu í sex ár, en fjölskyldumeð-
limir eru dreifðir um allt land og
miklar fjarlægðir á milli, því hefur
þetta tekið tíma. Sumir hafa einnig
efast um sannleiksgildi sögunnar.
Ólafur Snóksdalín hélt þessu fyrst
fram fyrir 200 árum, en þangað til
ég fór á Þjóðarbókhlöðuna í fyrra
hafði enginn úr ættinni séð heim-
ildirnar með eigin augum og sumir
héldu að þetta væri bara raup-
saga.“
Natalie sér um fréttabréf Vestur-
-Íslendingafélagsins í Tórontó, en
er nú flutt til Saskatechewan þar
sem hún hyggst ganga í Vatna-
byggð (Quill Lakes) Íslendinga-
klúbbinn.
„Flestir Vestur-Íslendingar eru
stoltir af arfleifð sinni, sem birtist
í því að vera hrifnir af öllu sem
tengist víkingum eða að hlusta á Of
Monsters and Men. En mér finnst
áhugaverðast að finna óþekktar
sögur venjulegs fólks. Íslendingarn-
ir hér tóku upp nafnakerfi Kanada
með eftirnöfnum, þannig að ef
hin íslenska arfleifð kom í gegnum
móðurættina glataðist nafnið. En
það að þekkja arfleifð okkar tengir
Vestur-Íslendinga saman og hjálpar
okkur einnig að skilja samfélagið í
kringum okkur. Við erum til dæm-
is með vefsíðu, Tindra Tales, sem
reynir að tengja saman alla afkom-
endur Friðriku.“
Danakonungir átti launson sem flutti á Reyðarfjörð. Þannig hljómar saga sem hefur náð alla leið til Kanada, en margir
þar telja sig af kónginum komn-
ir í gegnum Friðriku nokkra
Björnsdóttir. Friðrika var meðal
fyrstu Íslendinga sem fluttust til
Kanada árið 1876 ásamt eigin-
manni sínum, Pétri Árnasyni, og
lentu meðal annars í bólusótt í
Sandy Bar sem drap öll þrjú börn
þeirra. Þau fluttu loks á Árskóg
(nefndan eftir Árskógsströnd í
Eyjafirði) og eignuðust þar fimm
börn. En hvað er hæft í því að
hún hafi verið af dönskum kon-
ungaættum?
Friðrik VI. var síðasti konungur
Danmerkur til að hafa opinbera
ástkonu, auk eiginkonu. Ástkon-
an, Bente Rafsted, fékk titil og
höll, en mætti ekki sömu virðingu
og ástkonur höfðu þangað til gert
og siðurinn lagðist brátt af. Móðir
Friðriks hafði sjálf átt ástmann, en
faðirinn var hinn geðveiki Kristján
7. Ástmaðurinn var líflæknirinn
Johann Struensee, sem réði ríkinu
í raun sökum veikinda konungs.
Struensee afnam dauðarefsingar
og ritskoðun en var einnig með
frumlegar uppeldishugmynd-
ir. Kuldi þótti mannbætandi og
var prinsinn látinn ganga um
Natalie Guttormsson. Einn afkomandi
Friðriku, sem hefur dvalið við ætt-
fræðirannsóknir á Íslandi.
Launsonur
kóngsins og
ættfaðir Vestur-
Íslendinga
Þrátt fyrir að hafa verið
látin í 132 ár nýtur Friðrika
Björnsdóttir nú mikillar
hylli í Íslendingabyggðum
Kanada. Vefsíður hafa verið
stofnaðar henni til heiðurs,
heimildamynd er í vinnslu
og brátt verður minnisvarði
afhjúpaður í Árskóg í Man-
itoba fylki. Ástæðan er sú
að hún er talinn kominn af
Friðriki 6. Danakonung, sem
átti að öllum líkindum laun-
son sem fluttist til Reyðar-
fjarðar og þaðan kvíslaðist
ættin til Kanada.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@frettatiminn.is
berfættur á veturna þar til hann
fékk frosthnúta í fæturna. Sá
orðrómur komst á kreik að reynt
væri að drepa prinsinn svo að syst-
ir hans, feðruð af Struensee sjálf-
um, tæki við.
Prinsinn lifði þó til að vera krýndur Friðrik árið 1808, þegar Dan-ir voru komnir á kaf í Napóleonsstríðin við hlið Frakka, sem átti eft-ir að leiða Jörund hunda-
dagakonung til Íslands ári síðar.
Meðal afreka Friðriks var að byggja
Thorvaldsensafnið, fyrsta safn
Danmerkur, til að hýsa verk hins
hálf-íslenska myndhöggvara. Og
líklega barnaði hann konu að nafni
Soffía María þegar hann var 25 ára
gamall og ekki enn orðinn kóngur.
Lítið er vitað um Soffíu, en sá
orðrómur komst brátt á kreik að
hún hefði átt barn með prinsin-
um. Hún sagði sjálf: „Það er ekkert
skítti sem ég átti hann Samúel
með,“ en Samúel þessi fæddist
árið 1793 og var vissulega Frið-
riksson. Og svo undarlega vill til
að hann var alinn upp á kostnað
krúnunnar.
Samúel varð síðar smiður og
flutti á Austfirði, þar sem hann
giftist Jórunni Tómasdóttir. Þau
eignuðust dótturina Lovísu, sem
giftist Birni Jónssyni. Hjónin komu
sér fyrir á Seljarteigshjáleigu á
Reyðarfirði, þar sem þau áttu Frið-
riku Björnsdóttir. Friðrika flutti
svo til Kanada og bar þar beinin
árið 1884.
Vestur-Íslendingar hafa undanfarið sýnt Friðriku æ meiri áhuga. Þegar hún lést var kirkjugarður-inn fullur og hún því grafin á bóndabýlinu
í Árskógi. Er ekkert sem merk-
ir gröf hennar nema grindverk í
niðurníðslu. Úr því hyggst hópur
sem nefnir sig „Friðrika: The Royal
Daugher Memorial Project“ bæta,
og er ætlunin að reisa minnisvarða
á gröfinni í sumar.
Vestur-íslenska kvikmynda-
gerðarkonan Angela Chalmers er
að gera um hana heimildarmynd
og Friðrika er komin með sína eig-
in facebook-síðu, þar sem hún birt-
ir meðal annars myndir af börnum
sínum sem nú eru öll löngu látin,
eins og hún sjálf, en Salín Gutt-
ormsson stendur fyrir síðunni.
Þá hefur verið gert ættartré og
telja frændur okkar vestra að allir
sem bera ættarnöfnin Magnússon,
Guttormsson, Vídalín eða Jónsson
eigi góða möguleika á að vera af
kóngafólki komnir. Það er víst ekki
bara hér á landi sem Íslendingum,
sem hröktust frá heimahögunum,
er mikið í mun að sýna fram á að
þeir eigi ættir að rekja til kónga-
fólks.
Friðrik 6. Síðasti kóngur Danmerkur og Noregs og
jafnframt sá síðasti til að eiga opinbera ástkonu.
Friðrika Björnsson. Meðal þeirra fyrstu sem fluttu vestur
um haf, en var hún af dönsku kóngafólki komin?
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016
108 Reykjavík Sími: 595 0500 www.egillarnason.isSuðurlandsbraut 20 Opnunartímar: mán - fös kl. 9–18 og lau kl. 11–15
VIÐ GETUM TENGT ÞIG VIÐ BESTU
PARKETSLÍPARA LANDSINS
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ
RÁÐLEGGJUM ÞÉR MEÐ
SLÍPUN, LÖKKUN, OLÍUBURÐ
OG ALMENNT VIÐHALD