Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 10.06.2016, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 10.06.2016, Qupperneq 34
„Við erum bara vanar því síðan við vorum litlar að hafa ekki bíl á heimilinu. Við ólumst báðar upp í þannig fjöl- skyldu. Við erum hvorugar með bílpróf,“ segja Kolbrún Nadira Árnadóttir og Sandra Önnudóttir, dagmæður sem búa í Vesturbænum sunnan Hringbrautar, ásamt börnum sínum: Tinnu, 13 ára; Rökkva, fimm og hálfs árs og Ými, eins og hálfs árs. Tinna er að klára Vest- urbæjarskóla, Rökkvi er að klára leikskóla og Ýmir er heima hjá þeim ásamt öðrum börnum í þeirra umsjá. Báðar hafa þær alist upp að hluta til í Vesturbæn- um en einnig í öðrum hverfum Reykjavíkur, svo sem Breiðholti, Hlíðunum og Norðurmýri og lifað bíllausu lífi á öllum þeim stöðum. „Við löbbuðum til ömmu og afa í Kópavogi úr Efra -Breiðholti, það var ekkert mál, það var gaman,“ segir Nadira og Sandra bætir við: „Svo voru vinir manns að labba heim til okkar og voru bara: „Ooo, þetta er svo erfitt.““ Rétt eins og þegar Nadira og Sandra voru litlar, velta börnin sér ekkert upp úr þessu en vinir þeirra gera það hins vegar og eru gjarnan orðnir óþolinmóð- ir þegar labbað er í heimsókn til þeirra úr skólanum. Þá er Rökkvi byrjaður að finna fyrir pressu úr leikskól- anum: „Strákurinn okkar sem er að klára leikskóla finnur hins vegar fyrir því að önnur börn spyrja hann. Þá er hann farinn að spyrja okkur þegar við sækjum hann á leikskólann – eruð þið búnar að kaupa bíl?“ segir Nadira og Sandra bætir við: „Allir eiga bíl og trampólín, af hverju eigum við ekki bíl og trampólin? Við vorum að útskýra fyrir honum að það er ekki alveg raunveruleikinn.“ Þrátt fyrir það eru gönguferðirnar alltaf ánægjulegar fyrir Rökkva, sem er ávallt fullur íhugunar: „Það eru oft djúpar pælingar eins og: „Mamma, af hverju getur mannfólk labbað á jörðinni? Af hverju dettum við ekki út í geim?“ Þá þurfti ég að útskýra allt fyrir honum eins vel og ég gat, en ef ég hefði verið á bíl hefðum við ör- ugglega verið fljótari í leikskólann og ég bara sagt „töl- um um það seinna elskan, það er enginn tími núna,““ útskýrir Nadira. Þá er Rökkvi einnig mjög félagslynd- ur og óhræddur við að ræða við starfsfólk á kaffihús- um og verslunum: „Hann á eina vinkonu í Kaffitári í Kringlunni.“ Það er þó ekki bara Rökkvi sem er duglegur að spjalla, öll fjölskyldan er orðin hluti af ákveðnu sam- félagi í Vesturbænum, fólki sem tekur sama strætó úr Vesturbænum frá sama stað: „Við erum farnar að kynnast fólki í hverfinu. Oft er strætó seinn og þá erum við með strætó-appið og getum sagt hvað er langt í að strætó komi. Fólk skilur ekki hvernig það virkar en finnst það sniðugt. Þetta verður svona samfélag, svona eins og í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni. Svo hittir maður fólkið í bænum og veit að það er að taka sama strætó.“ Almennt eru Nadira og Sandra ekki mjög ánægðar með strætó og finnst þjónustunni hafa hrakað undan- farið fimm ár: „Strætókerfið er ekki rosalega hagstætt. Ganga illa saman vagnarnir. Þegar maður er á Lækjar- torgi og þarf að fara á Suðurlandsbraut þá tókum við eftir því að vagnar ganga yfirleitt á sama tíma í sömu átt. Þegar við erum á Hlemmi stoppar seinni vagninn kannski tveimur mínútum fyrr og á endanum þurfum við að bíða í hálftíma á Hlemmi.“ Það sama á þó ekki við um Ártún og þannig er minna mál að taka strætó til tannlæknis í Grafarholti, þangað sem öll fjölskyldan fer saman á einu bretti, einu sinni ári alla jafna. Mikill sparnaður hlýst að því að eiga ekki bíl og þannig er hægt að taka leigubíl af og til, t.d. á fæðingar- deildina. Nadira ætlaði að vísu fyrst þangað í strætó: „En Sandra tók það ekki í mál og við tókum leigubíl. Svo kom í ljós að ég var með 7 í útvíkkun,“ segir Nadira hlæjandi. „Þegar við fluttum í Hraunbæinn var meiningin að losa okkur við bílinn. Það er svo góð tengingin í hverfinu. Stutt í vinnuna hans, góðar strætósamgöngur og svo bara stutt í allt, Bónus, Krón- una, sundlaugar og bakarí, nefndu það,“ segir Nina M. Salvioldis, doktorsnemi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands en hún og sambýlismaður hennar, Sebastian Geyer, aðstoðarforstöðumaður Fjóssins frístundaheimilis, seldu bílinn eftir að hafa flutt í Árbæ- inn úr stúdentagörðum með tvær dætur þeirra, Önnu Grétu, 7 ára, og Öldu Lóu, 5 ára. „Fólk var að hlæja að okkur – „hvað fluttuð þið í Árbæinn og selduð bílinn?“ En samt er staðan þannig að það er einfaldara að vera bíllaus í Árbænum en á stúdentagörðum,“ segir Nína og nefn- ir sem dæmi að á stúdentagörðum hafi verið langt í matvöruversl- un og heilsugæslu og svo var illa rutt í Vesturbænum en það hefur hins vegar aldrei verið vandamál í Árbænum þar sem Nína fer ferða sinna á hjóli á hvaða tíma ársins sem er. Í Árbænum er stutt í alla þjónustu: skóla, leikskóla, heilsugæslu og Bónus. Nálægðin við skólann og leikskólann er í raun það mik- il að samtalið fer minnst að snúast um það hvernig er að koma börnum í skóla og leikskóla. Ekki spillir heldur fyrir að í göngu- færi eru Árbæjarsafnið og Elliðaárdalurinn. Það er því allt til alls þar nema kannski helst kaffihús en fyrir Nínu er það lítið mál enda starfar hún nálægt miðbænum. Strætósamgöngur eru góðar á báða vinnustaði þeirra, sem eru hvorir í sínum enda Reykjavíkur, og sömuleiðis hjólastígar: „Það er mjög góð hjólaleið úr Hraun- bænum í hans vinnu. Honum finnst hins vegar óþægilegt að mæta sveittur í vinnuna, það er kosturinn við rafmagnshjólið,“ segir Nína en sjálf kýs hún frekar venjulegt reiðhjól: „Ég prófaði einu sinni rafmagnshjól, það var allt of auðvelt. Mér finnst bara gott að vera á hjóli.“ Nína hjólar oftast í háskólann og velur ekki endilega stystu leiðina: „Ég tek aðeins lengri leið en fallegri. Hjóla í gegnum El- liðaárdal, Fossvoginn og Nauthólsvíkina, það er yndislegt. Ég er búin að hugsa oft hversu heppin ég er að geta hjólað þessa fallegu leið á hverjum einasta morgni. Hjálpar svo við að tæma hugann. Hjólaði áður Miklubraut, það var ekki skemmtilegt. Mikið af ljós- um og svo mengunin og hávaðinn. Þetta er mikið áreiti. Nú heyri ég fuglana syngja, voða næs,“ segir Nína sem tekur helst strætó ef að hún er á kafi í spennandi bók eða sprungið er á hjólinu. „Eini ókosturinn [við að eiga ekki bíl] er að við getum ekki keypt neitt notað á bland.is. Það er þægilegra að fara á netið og panta það sem við viljum og fá sent heim,“ segir Nína sem nýtir sér heimsendingarþjónustu IKEA. Á hinn bóginn er líka heilmikill af- leiddur sparnaður í því að eiga ekki bíl: „Þú ferð að hugsa mjög vel í hvert einasta skipti „nenni ég núna að fara í Kringluna og kaupa þetta. Getur það beðið þar til í næstu viku þar til ég þarf að fara í Kringluna?“ Það er kostur fjárhagslega að þú kaupir ekki jafn mik- ið af drasli því þú nennir ekki að bera það,“ segir Nína sem þó ger- ir stórinnkaup í Bónus enda er það nógu stutt til að burðast með marga poka. Betra að vera bíllaus í Árbænum en á Stúdentagörðunum Það er kostur fjárhagslega að maður kaupir ekki jafn mikið af drasli því maður nennir ekki að bera það,“ segir bíllaus Nína, sem fer allra sinna ferða gangandi, hjólandi eða í strætó. Mynd | Hari Mynd | Rut Strætóbiðstöðin eins og heiti potturinn í Vesturbæjarlauginni Við erum vanar því síðan við vorum litlar að hafa ekki bíl á heimilinu og erum hvorugar með bílpróf, segja dagmæðurnar Kolbrún Nadira og Sandra. 34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016 SÖLUAÐILAR Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900 Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.