Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 36
þjónustunnar KGB til að passa að
listamaðurinn hlypist ekki frá verk-
efninu, sem var auðvitað í nafni
föðurlandsins. Með því að villa
um fyrir gæslukonunni og útvega
bíl sem flutti hana yfir til Svíþjóð-
ar náði Mullova loks að komast til
Stokkhólms. Eftir nokkra daga í fel-
um tókst henni að lokum að sækja
um pólitískt hæli í Bandaríkjunum
í sendiráðinu þar í borg. Fiðlu af
fínustu Stradivarius gerð hafði hún
þá skilið eftir á hótelrúminu í Finn-
landi. „Leyniþjónustukonan, sem
var sem betur fer ekki alltof góð í
sinni vinnu, fann fiðluna og kom
henni til skila. Hljóðfærið var í eigu
Sovétríkjanna,“ segir Mullova og
bætir við að þetta sé oft það atriði
sem blaðamenn séu spenntastir
fyrir þegar þeir ræða við hana, og
ætli það sé ekki bara rétt.
Eftir flóttann beið Victoriu Mullovu glæstur ferill víða á Vesturlöndum. Hún hefur síðan komið fram með öllum helstu hljómsveitarstjórum og sinfóníuhljómsveitum
heims. Með góðri hjálp fékk hún
árið 1985 aftur í hendurnar fyr-
irtakshljóðfæri til að vinna með.
Fiðlan hennar er líka af Stradivari-
us tegund og hefur þjónað henni í
rúm þrjátíu ár en hljóðfærið verð-
ur bráðum þrjú hundruð ára, var
smíðað af meistaranum í Cremona
1723. „Þetta var á þeim tíma þegar
verðið á þessum gripum var ekki
orðin alveg jafn geggjað og það er
í dag,“ segir Mullova, ánægð með
hljóðfærið sitt.
Það þarf hins vegar að beita
slíku hljóðfæri vel svo að galdur-
inn gerist og það kann Mullova
svo sannarlega. Hún var lengi vel
á samningi hjá Philips útgáfufyr-
irtækinu en hefur á undanförn-
um árum gefið út fyrir fyrirtækið
Onyx og um leið hafa verkefn-
in orðið fjölbreyttari. Einn aðal
samverkamaður hennar í dag er
eiginmaður Victoriu, enski selló-
leikarinn Matthew Barley. Saman
hafa þau farið í ýmsa könnunar-
leiðangra um lendur heims- og
djasstónlistar og t.d. leikið tónlist
eftir Miles Davis, Duke Ellington
og Youssou N’Dour.
Mullova segir samstarf þeirra
hjóna mjög gjöfult. „Efnisskráin
hefur breikkað um leið og ég hef
lagt allra frægustu fiðlukonsert-
unum og innihaldsrýrari verk-
um,“ segir hún og nefnir konserta
Tchaikovsky og Paganini. „Það
er miklu meira gaman að blanda
saman ólíkri tónlist og reyna að
hafa samsetninguna fjölbreytta.“
Þessa hugsun Mullovu má sjá á
verkefni á borð við The Peasant
Girl, diski sem þau hjónin gáfu út
fyrir nokkrum árum en á þeirri
upptöku kom tónlistin jafnt frá
austur-evrópskum tónskáldum,
bandarískum djassmönnum,
afrískum listamönnum og frönsk-
um sígauna-böndum. Það er því
ljóst að Victoria Mullova er leitandi
í verkefnum sínum.
Mullova kemur fram á tvenn-um tónleikum á Reykjavík Midsummer Music um miðjan júní. Ferðaþráin
er rauður þráður í gegnum tónlist-
arhátíðina og á opnunartónleikun-
um, þann 16. júní, tekur hún þátt
í dagskrá undir heitinu Gangandi
geimfari. Daginn eftir, á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní, kemur hún
fram á tónleikum undir yfirskrift-
inni Söngvar förumannsins, þar
sem Kristinn Sigmundsson verður
líka í stóru hlutverki.
„Það er alltaf mikilvægt að spila
kammermúsík eins og þá sem
verður á dagskrá hátíðarinnar í
Reykjavík,“ segir Mullova. „Það
er allt annað samspil og á margan
hátt meira gefandi en að spila
einleik með hljómsveit,“ segir
Mullova að lokum. Dagskráin er
stíf. Fyrst er það Schubert í höll í
Suður-Þýskalandi og síðan tónlist
í miðnæturbirtu á Íslandi. „Ég
vonast til að ná að sjá eitthvað af
landinu ykkar núna,“ segir Victor-
ia Mulloca.
Á tónlistarveitunni Spotify er að
finna fjölmargar upptökur með Vict-
oriu Mullovu. Fréttatíminn mælir
með túlkun hennar á verkum Bachs,
Prokofiev, söfnum með 20. aldar
konsertum og sónötum og þema-
plötunum Stradivarius in Rio og The
Peasant Girl.
Hver er
Victoria Mullova?
• Einn fremsti
einleikari heims á fiðlu.
• Flúði Sovétríkin
á níunda áratugnum.
• Sló í gegn með hljóm
sveitum á Vesturlöndum.
• Leikur jafnt djass,
klassík og heimstónlist.
Fiðlan, flóttinn og ferðalögin
Fiðluleikarinn Victoria Mullova á Reykjavík Midsummer Music í Hörpu 16.-18. júní
Meðal fjölmargra
listamanna sem koma
fram á tónlistarhá-
tíðinni Reykjavík
Midsummer Music er
rússneski fiðluleikar-
inn Victoria Mullova.
Mynd | victoriamullova.com
Í morgunsárið nær Fréttatím-inn í fiðluleikarann Victoriu Mullovu í síma þar sem hún er stödd í Schloss Elmau í Bæjara-landi, glæsilegri höll þar sem fögur tónlist fyllir jafnan loftið. Þennan daginn standa yfir æf-
ingar en í höllina er líka kominn
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanisti
og listrænn stjórnandi Reykjavík
Midsummer Music. Kvöldið áður
hafa þau Mullova hist stuttlega en
nú stendur fyrir dyrum að spila
saman í fyrsta sinn, æfa tónlist eftir
Schubert en verk tónskáldsins eru
í brennidepli þessa dagana þarna í
Suður-Þýskalandi.
Mullova hefur einu sinni áður
komið til Íslands, hún hélt hér tón-
leika í Austurbæjarbíói árið 1985
ásamt bandarískum píanista og
lék einleik með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Hún segist ekkert muna
frá þessari heimsókn. „Þetta gæti
allt eins hafa verið í öðru lífi,“ segir
hún á línunni frá Þýskalandi, enda
hefur mikið gengið á síðan. Upp-
gangur hennar í tónlistarlífinu var
hraður á þessum árum og nóg að
gera.
Mullova er fædd rétt utan við
Moskvu árið 1959 og tónlistarnám
sitt sótti hún til rússnesku höf-
uðborgarinnar. Rúmlega tvítug
sigraði hún í Sibelíusar fiðlukeppn-
inni og það hafði auðvitað sín áhrif
á ferilinn. Það sama átti við um
nokkuð dramatíska sögu af flótta
Mullovu undan hæl Sovétríkjanna
árið 1983. Flóttinn vakti mikla
athygli víða um heim og var m.a.
fjallað um hann í íslenskum fjöl-
miðlum.
Mullova var þá á tónleikaferða-
lagi í Finnlandi og að venju fylgdi
henni fylgdarkona á vegum leyni-
Ásetusláttuvélar
Gerir sláttinn auðveldari
Ásetusláttuvélin frá
CubCadet er lipur
og nett. Hún
kemst vel að
við þrengri
aðstæður.
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Rússneski fiðluleikarinn
Victoria Mullova hefur á
undanförnum árum og
áratugum verið áberandi
í klassísku tónlistarlífi af
hæstu gæðum. Þessi hæg-
láti tónlistarmaður hefur
heillað hlustendur um allan
heim allt frá því hún sigraði í
einleikarakeppni sem kennd
er við Jean Sibelius árið 1980.
Nú kemur hún öðru sinni
til Íslands til að taka þátt í
Reykjavík Midsummer Music
hátíðinni.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016