Fréttatíminn - 10.06.2016, Blaðsíða 40
Sjá fleiri myndir
á frettatiminn.is
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Ég var að ferðast um landið fyrir nokkrum árum og heillaðist af landi og þjóð. Ég ákvað því að flytja hingað í nám sem er miklu ódýrara en
í Bretlandi,“ segir Alice Bower á
reiprennandi íslensku. Alice er 21
árs nemi í þjóðfræði í Háskóla Ís-
lands og kenndi sjálfri sér tungu-
málið með því að lesa fræðigrein-
ar. Um þessar mundir skrifar hún
lokaritgerðina sína um frjósemis-
goðið Frey. Hún heillaðist af blót-
um, heiðni og helgisiðum 10 ára
þegar hún sá The Wicker Man með
Nicholas Cage.
Alice segir margt gott við Reykja-
vík. Hér má ganga í allar áttir og líf-
ið er rólegra en í London. „Ég á ekki
bíl, reiðhjól né strætókort. Ég nýt
þess að ganga hvert sem ég fer og
við sambýlisfólkið á ganginum för-
um í göngutúra um Skildinganesið
á kvöldin.“
Alice býr í Oddagörðum, stúd-
entagörðum við Háskóla Íslands. Á
hverjum gangi er eitt eldhús sem
allt að níu manns deila. „Ég og vin-
kona mín á ganginum erum að fara
elda lasagna í kvöld. Síðan hún
hætti með kærastanum sínum hef
ég verið hennar eiginmaður. Það
hentar mér vel, hún vekur mig með
kaffi og bakar handa mér brauð.
Hún er einnig mín persónulega
vekjaraklukka og hamrar á dyrnar
þegar ég sef yfir mig.“ Þær styrkja
hvor aðra. „Ég reyni síðan að hvetja
hana til að fara út fyrir þægindara-
mmann.“
Það má heyra flugvélar lenda og
taka á loft á Reykjavíkurflugvellin-
um, sem er beint fyrir utan glugg-
ann hjá Alice. Hvað segir nýbúi í
Reykjavík um flugvallarmálið um-
deilda? „Ég færi að hágráta ef flug-
völlurinn yrði færður. Þegar ég er í
prófum, grátandi úr stressi þá veit-
ir flugvöllurinn mér huggun. Til-
hugsunin um að ég gæti hoppað í
næstu flugvél til Færeyja og látið
mig hverfa er huggandi. Ég skil þó
hina afstöðuna í þessu máli,“ segir
Alice og skellir upp úr.
Margt hefur breyst á síðustu
árum, ódýra landið er ekki svo
hagstætt lengur. „Fyrir þremur
árum gat ég leigt herbergi miðsvæð-
is á 39.000 krónur á Freyjugötu.
Það er ekki séns á svoleiðis í dag.
Það var mamma sem hvatti mig til
þess að flytja í Oddagarðana en ég
var „skeptísk“ og með fordóma.“
„Í fyrsta lagi vildi ég ekki flytja í
íbúð sem helst í hendur við námið.
Í öðru lagi þótt mér 70.000 krónur
fyrir herbergi mjög kostnaðarsamt
og í þriðja lagi vildi ég ekki deila eld-
húsi með öðrum.“ Alice fór þó að
ráðum móður sinnar og gaf stúd-
entagörðunum tækifæri. „Ástand
leigumarkaðarins er svo slæmt að
fólki er hent út án fyrirvara. Ég sótti
um húsaleigubætur um leið og ég
fékk vinnu svo leigan varð viðráð-
anleg. Það reyndist síðan gaman að
deila eldhúsi, það veitir mér félags-
skap. Ég hef mitt persónulega rými
í herberginu og leita síðan í félags-
skap í sameiginlega rýminu.“
Stúdentagarðarnir #6
„Ég á ekki bíl, reiðhjól né strætókort. Ég nýt þess að ganga hvert sem ég fer og
við sambýlisfólkið á ganginum förum í göngutúra um Skildinganesið á kvöldin.“
Grætur ef
flugvöllurinn fer
Alice Bower er sjötti viðmælandi í myndaröðinni Stúdentagarðarnir. Alice
fluttist til Íslands til að flýja erfiðan leigumarkað en segir Ísland vera að
grípa í skottið á London, þar sem hún er uppalin. Móðir Alice hvatti hana
til að flytja í sambýli stúdentagarðanna og segist hún ekki sjá eftir því. Í
góðum félagsskap deilir hún eldhúsi með níu manns og flugvöllurinn í
bakgarðinum veitir henni huggun.
Myndir | Hari
Alice Bower fluttist
til Íslands til að flýja
leigumarkaðinn
í London en sá ís-
lenski verður sífellt
erfiðari viðureignar.
Bend it like
Beckham
Bresk
mynd
um
stúlku
sem
fylgir
fótboltaástríðu
sinni þrátt fyrir
mótbárur íhalds-
samra foreldra.
Myndin sem sann-
aði að kvenna-
fótbolti er töff, ef
einhverjir vissu það
ekki
Íslenski
draumurinn
Tóti ætl-
ar að
verða
ríkur
á því
að flytja
inn búlgarskar sígar-
ettur og eyðir mest-
um tíma sínum í
að horfa á fótbolta
eða spila Football
Manager. Óður
til fótboltaáhuga-
manna landsins.
Air Bud: World
Pup
Hvað er
betra
en
bíó-
mynd
um
fótboltalið? Jú,
bíómynd um fót-
boltalið sem er
eingöngu skipað
Labrador-hundum.
Jökullinn
logar
Ný
heim-
ildar-
mynd
um
magn-
aða för íslenska
karlalandsliðsins
í fótbolta á EM í
fótbolta árið 2014.
Myndin er nú í al-
mennum sýningum
í kvikmyndahúsum
um land allt.
She’s the man
Þegar kvennaliðið í
fótbolta
í skóla
Violu
er
lagt
niður
tekur hún til sinna
ráða, dulbýr sig
sem bróður sinn og
byrjar í fótboltaliði
karla. Fáránlega
skemmtileg grín-
mynd með Amöndu
Bynes í aðalhlut-
verki.
Blóð, sviti, tár og Beckham
5 bíómyndir sem koma þér í stuð fyrir EM í fótbolta
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016
Laugavegi 15 og Kringlunni – sími 511 1900 – www.michelsen.is
Tribe herraarmband
7.400 kr.
Flair dömuarmband
12.600 kr.
Flair dömuarmband
9.400 kr.
Tribe herraarmband
4.900 kr.
Glæsilegt skart frá Ítalíu
Áhrifaríkt náttúruefni sem færir okkur vellíðan að innan sem
utan. Kísill er næstalgengasta frumefni jarðarinnar og sé það
tekið inn þá hefur það undraverð áhrif á meltinguna auk þess
að hafa jákvæð áhrif á húð og hár.
RE-SILICA er náttúruleg kísilsýra í kvoðuformi
sem vinnur hratt og vel á vandamálinu.