Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 10.06.2016, Page 42

Fréttatíminn - 10.06.2016, Page 42
„Mig langar mikið að hitta hann, ef hann er tilbúinn til þess,“ segir Björn S. Gunnars- son, þróunarstjóri Mjólkursamsölunn- ar um hinn átta ára gamla Jón Aðalstein Snæbjörnsson, sem vakti mikla athygli fyrir uppfinn- ingu sína, Rúllusmjörið, í síðustu viku. „Þetta er snilldarhugmynd og maður er galopinn fyrir öllum svona hug- myndum og allri nýsköpun.“ Björn segir Mjólkursamsöluna reglu- lega fá inn á borð til sín hugmyndir frá neytendum sem oft séu vel þegnar. Rúllusmjörið sé sérstaklega neytenda- vænt og man Björn ekki eftir að hafa séð viðlíka tól til smurningar á Íslandi né úti í heimi. „Auðvitað má maður ekki hugsa of fljótt um praktíkina við frábærar hug- myndir, en það sem ég sé er að ætti maður að þróa þetta til fram- leiðslu myndi maður byrja á að reyna að framleiða svona plasthylki, eins og hann keypti á netinu, ódýrara.“ Björn er því augljóslega spenntur og hyggst bjóða Jóni Aðalsteini að funda um málið, hafi hann áhuga á. Jón Aðalsteinn er þó staddur í fríi með fjölskyldu sinni eins og stendur og ekki náðist í hann við gerð greinarinnar.  Sjá myndband á frettatiminn.is Naglalakk nýjasta tískutrend karla Iggy Pop, Kurt Cobain og David Bowie ruddu veginn fyrir löngu en nú fyrst virðist tískan vera að festa rætur hérlendis. Ungir karlmenn lakka á sér neglurnar í öllum regnbogans litum. Það vakti athygli þegar 17 ára Jaden Smith gerðist andlit kvennalínu Loui Vuitton og braut múra staðalímynda með því að sitja fyrir í pilsi og með naglalakk. Sömuleiðis hefur Young Thug verið óhræddur við að klæðast kvenmannsfötum sem er byltingarkennt í karllægum heimi rappsins. Naglalakkið er merki um þá þróun sem á sér stað í okkar samfélagi. Múrar karlmennskunnar og kvenleikans verða óskýrari, það er ekkert bleikt og blátt lengur. Myndlistarlíf Eyjafjarðar virðist ætla að bera safa- ríkan ávöxt um helgina. Í Listasafni Akureyrar verður opnuð á laugardag samsýn- ingin Nautn. Sex myndlist- armenn skoða þar nautnina í verkum sínum. Listsköpun sem slík er að miklu leyti byggð á nautn og holdið, kynlíf, áráttur og blæti hafa lengi verið yrkisefni mynd- listarmanna. Verkin á sýningunni kveikja stórar spurningar. Hvar liggja t.d. mörkin milli unaðar og þráhyggjukenndr- ar fíknar í holdsins lystisemdir? Hver er munurinn á munúð og ofgnótt, erótík og klámi, fegurð og „kitsch“? Og hver hefur vald til að setja fram þessar skilgreiningar? Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Anna Hallin, Birgir Sigurðsson, Eygló Harðardóttir, Guðný Kristmannsdóttir, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Jóhann Ludwig Torfason. Í verksmiðjunni við Hjalteyri, utar í Eyjafirði, opnar önnur forvitnileg sýning á laugardag. Þar koma saman listakonur sem eru búsettar á Íslandi og í Þýskalandi, íslenskar og erlendar og á ýmsum aldri. Listakonurnar vinna verk sín í ýmsa miðla en sýningin heitir Rífa kjaft. Titilinn er samkvæmt listakonunum „yfirlýsing þess að vera staðföst og sjálfri sér trú – láta ekkert hindra sig þó á móti blási.“ Þær sem rífa kjaft í verksmiðjunni á Hjalteyri eru Guðrún Pálína Guð- mundsdóttir, Karla Sasche, Sara Björg Bjarnadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Anna Sigríður Sigur- jónsdóttir, Ragnhildur Stefáns- dóttir, Véronique Legros, Kristín Reynisdóttir og Ólöf Benedikts- dóttir. | gt Nautn og rifinn kjaftur við Eyjafjörð Á Hjalteyri ætla listakonur að rífa kjaft næstu daga. Grein Fréttatímans um uppfinninguna Rúllu- smjörið vakti mikla athygli í síðustu viku. Rúllusmjörið flýgur hátt Mjólkursamsalan vill hitta uppfinnanda Rúllusmjörsins Björn S. Gunnarsson, þróunar- stjóri Mjólk- ursam- sölunnar. Júnía og Laufey eru 17 ára tvíburar sem hafa spilað saman frá fjögurra ára aldri. Þær segja klassíska tónlist vera eitthvað sem allir ættu að gefa séns. Þær eignuðumst sínar fyrstu fiðlur tveggja ára og fjögurra ára byrj-uðu þær að æfa á píanó. Júnía og Laufey Lín Jónsdætur eru 17 ára tvíburar og klassísk tónlist er þeim blóði borin. „Mamma er fiðluleik- ari og amma og afi voru píanó- og fiðluprófessorar í Peking. Pabbi kynnti okkur fyrir djassinum, Billy Holliday, Ellu Fitzgerald og þeim öllum.“ Eftir að hafa slegist í mörg ár um tónverk, hver fengi að flytja hvað og hvenær, var ákveðið að velja sér ólík strengjahljóðfæri þegar sá tími rann upp. Laufey valdi selló. „Það átti betur við mig, ég er djúpraddaðari og eldri. Sem tvíburi „A“ var viðeig- andi að ég tæki stærra hljóðfærið.“ Júnía kaus fiðluna. „Mamma kennir á fiðlu og ég vildi verða eins og nem- endur hennar. Tónlist hefur alltaf verið stór partur af lífi okkar.“ Systurnar eru staðfastar að engin breyting verði þar á. Þær upplifuðu „bíómyndamóment“ þegar þær spiluðu á dvalarheimili nýverið. „Þar var gömul kona sem hafði öllu gleymt, hún var alveg hætt að tala líka. Þegar við lukum samspilinu settist hún við píanóið og spilaði mjög flókin verk. Hún hafði engu gleymt í tónlistinni, þetta var alveg ótrúlegt,“ lýsir Júnía. Systurnar spila mikið saman og segja einstakt samband þeirra erfitt er að útskýra. „Þegar ég spila með Laufeyju veit ég alltaf hvenær ég á að koma inn. Við erum eitt þegar við spilum saman,“ segir Júnía og Laufey tekur undir. „Við erum líka fáanlegar í mörgum útgáfum.“ Vísar Laufey þá í sönginn sem þær systur hafa lagt fyrir sig, en Laufey tók þátt í Ísland got talent og íslenska Voice. „Við getum sungið og spilað á pí- anó, fiðlu og selló eða fjórhent pí- anó, það er nóg í boði.“ Það er stund milli stríða hjá systr- unum en þær eru þáttakendur í Al- þjóðlegu tónlistarakademíunni í Hörpu. Dagskráin er bæði krefj- andi og gefandi. „Að mínu mati er klassísk tónlist góð undirstaða allra tónlistar, hún er tímalaus,“ segir Laufey. „Rappið, poppið og annað kemur í bylgjum en klassíkin verður alltaf klassík. “ Samkvæmt Júníu verða lokatón- leikar Akademíunnar þann 17. júní svakalegir. „Þá spila allir saman. Besti fiðluleikari heims á okkar aldri spilar með okkur, ég get ekki beðið eftir að sjá hann. Harpan hef- ur gert mikið fyrir íslenskt tónlist- arlíf, að fá tækifæri til að kynnast leikurum frá öðrum þjóðum og fá innblástur.“ Syngja, spila píanó, fiðlu og selló Tvíburasysturnar Júnía og Laufey hafa spilað saman frá fjögurra ára aldri. Þær hafa þróað einstakt tónlistarsamband sem ómögulegt er að útskýra, þær eru eitt í samspilinu. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Mynd | Hari 42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. júní 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.