Fréttatíminn - 10.06.2016, Page 50
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Bobby lagði hendur á Whitney Houston
Bobby Brown, fyrrum eiginmaður
söngdívunnar heitinnar, Whitney
Houston, var í einlægu viðtali í vikunni í
20/20. Í viðtalinu viðurkennir Bobby að
hafa einu sinni lagt hendur á á Whitney
í hjónabandi þeirra, en hann átti á þeim
tíma í erfiðleikum með að halda sig frá
áfengi og vímuefnum. Hann segir þó að
ekki sé hægt að flokka hann sem
ofbeldismann.
Bobby segir frá því að hann hafi
notað fíkniefni inni á heimilinu á með-
an Bobbi, dóttir þeirra hjóna, var lítil
stúlka. Hann segir að þau hafi lagt
sig fram um að láta Bobbi ekki sjá sig
í annarlegu ástandi og hafi hún þess vegna mikið verið í pössun hjá
barnapíu. Seinustu tvö ár hjónabandsins segir Bobby að allt hafi verið í
báli og brandi hjá þeim, en þau skiptust á að reyna að vera edrú.
Zayn Malik og Gigi Hadid
ekki hætt saman
Fyrir viku síðan hættu söngvarinn
Zayn Malik og ofurmódelið Gigi Hadid
saman, en þau voru búin að vera saman í
7 mánuði. Samkvæmt heimildarmanni
sem náinn er parinu voru þau ekki lengi
aðskilin: „Þau hættu saman og byrjuðu
eiginlega strax saman aftur. Núna eru
þau saman en það getur breyst mjög
fljótt.“
Vinir parsins eru sannfærðir um að samband þeirra muni ekki end-
ast, einfaldlega af því að þau eru svo ólík. Zayn er innhverfur og vill lifa
lífinu án mikillar athygli. Gigi hinsvegar vill vera í sviðsljósinu og elskar
athygli og veldur það togstreitu í sambandinu.
Eru Harry prins og Ellie
Goulding saman?
Sögusagnir hafa verið í gangi um
að breska söngkonan Ellie Goulding
hafi verið að hitta Harry prins í leyni.
Það hefur hinsvegar komið fram líka í
fjölmiðlum að þau hafa þekkst í mörg
ár og verið vinir. Ellie söng meira að
segja í brúðkaupi Vilhjálms prins og
Kate Middleton árið 2011. Nýlega sást
til þeirra á Audi Polo Challenge þar
sem sjónarvottar segjast hafa séð þau
kyssast undir teppi. Þau væru nú alveg
flott par þessi tvö.
Ellen kærð fyrir meiðyrði
Spallþáttadrottninginn gerði grín að nafni konu og birti
símanúmerið hennar í þættinum sínum
Spjallþáttadrottningin og grínist-
inn, Ellen DeGeneres, hefur verið
kærð fyrir að gera grín að nafni
konu í þættinum sínum og birta
nafnspjaldið hennar með síma-
númeri á. Konan, sem starfar sem
fasteignasali og verkfræðingur,
heitir Titi Pierce, en Ellen bar
nafnið hennar ítrekað fram sem
Titty, sem á íslensku þýðist sem
brjóst.
Það var ekki bara nafngrínið
sem fór fyrir brjóstið á Titi því hún
var ekki par sátt við að númerið
hennar væri gefið upp í vinsæl-
um spjallþætti með þessum hætti.
Segir hún að hundruð manns hafi
hringt í hana eftir þáttinn á með-
an hún var stödd í jarðarför hjá
nánum ættingja. Þá gerði Ellen
jafnframt grín af brjóstum hennar
í tengslum við nafnið og þótti Titi
það einkar óviðeigandi.
Titi kærir Ellen fyrir meiðyrði,
brot á friðhelgi einkalífsins og
fyrir að hafa valdið sér miklu til-
finningalegu uppnámi. Hún setti
sig í samband við aðstandendur
þáttarins strax eftir að honum
lauk, bað um að símanúmerið væri
hulið og leiðrétti framburðinn á
nafninu sínu í Tee Tee. Þrátt fyr-
ir athugasemdirnar voru engar
breytingar gerðar áður en þáttur-
inn var endursýndur.
Í vanda Ellen er kærð
fyrir að hafa valdið konu
tilfinningalegu uppnámi.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Við erum þó nokkr-ir strákar sem erum flugþjónar hjá WOW air, þetta er mjög góð blanda hjá okkur,“
segir Tryggvi Rafnsson, flugþjónn
og leikari. Hann hefur starfað sem
flugþjónn frá árinu 2013 og fékk
nýlega stöðuhækkun upp í að vera
fyrsta freyja eða senior, sem felur
í raun í sér að hafa umsjón með
flugfreyju og -þjónavaktinni um
borð hverju sinni.
678 kaffibollar
Fyrsta flugið hans í nýju starfi var
ekki að verri endanum en flogið
var með glænýrri 350 sæta Airbus
breiðþotu til Parísar, en Tryggva
reiknast til að í fluginu hafi verið
afgreiddir 678 kaffbollar.
En hvernig verður maður fyrsta
freyja? „Maður þarf að vera búinn
að vinna í ákveðinn tíma, þá getur
maður sótt um og fer í sérstaka
þjálfun. Svo er manni bara hent
út í djúpu laugina. En það getur
auðvitað ekkert hvaða labbakútur
sem er farið í þetta,“ segir Tryggvi
kíminn.
Unnu veðmál
Það er annars ansi skemmtileg
saga á bak við það hvernig Tryggvi
endaði í þessu starfi, þar sem kem-
ur fyrir veðmál við forstjórann
sjálfan, Skúla Mogensen.
„Ég og félagi minn vorum að
setja upp leikrit saman og einn
daginn kem ég á æfingu og segist
vera búinn að sækja um sum-
arvinnu og að hann geti örugglega
aldrei giskað á hvað það er. Þá
var hann alveg með það á hreinu
að ég ætlaði að verða flugþjónn,
því hann ætlaði að gera það líka.
Nokkrum vikum síðar var okkur
svo boðið að taka grín þjónagigg
á jólahlaðborði hjá WOW air, sem
við stukkum að sjálfsögðu á. Þar
skelltum við upp veðmáli við Skúla
Mogensen, sem við unnum. Svo
bara sóttum við um flugþjónastarf-
ið eins og allir aðrir og komumst
í gegn,“ segir Tryggvi sem er ekki
alveg á þeim buxunum að gefa upp
um hvað veðmálið snérist.
Heltekinn af WOW lífinu
„Ég veit ekki hvort forstjórinn
verður ánægður með mig ef ég
segi frá því. Þetta var upphíf-
ingakeppni í Viðeyjarstofu. Sem
við sigruðum í, að sjálfsögðu. Og
Skúli stendur við allt sem hann
segir,“ segir Tryggvi og hlær. „Ef
Skúli hefði unnið þá hefðum við
þurft að þrífa skrifstofuna hans í
mánuð.“
Þeir félagar ætluðu að prófa að
vinna sem flugþjónar eitt sumar,
en starfið heillaði þá svo upp úr
skónum að þeir eru enn að. Og
báðir orðnir fyrstu freyjur. „WOW
lífið heltók mig og ég gæti ekki ver-
ið glaðari.“
„Living the dream“
Aðspurður hvort leiklistarnámið
nýtist í fljugþjónastarfinu seg-
ir Tryggvi það ekki spurningu.
„Leiklistin nýtist í öllu sem maður
gerir. Þetta er mikið um mannleg
samskipti og að taka frumkvæði
og þá er leikaranámið góður
undirbúningur,“ segir Tryggvi
sem er þó langt frá því að vera
hættur að leika. Þessa dagana má
til dæmis sjá hann í Olís auglýs-
ingu og þá er hann mikið í að
veislustýra. „Það er regla í mínu
lífi að gera bara það sem er gaman,
og það að vera flugþjónn hjá WOW
og leikari meðfram því, er gríðar-
lega skemmtilegt. „I am living the
dream, sky is the limit.““
Sigraði Skúla Mogensen
í upphífingakeppni
Tryggvi Rafnsson ætlaði að prófa að starfa sem flugþjónn eitt sumar
en heillaðist af WOW lífinu. Hann er nú orðinn fyrsta freyja og sér um
vaktstjórn í loftinu.
Leiklistin nýtist Tryggvi er menntaður leikari og segir námið nýtast vel í fluginu. Enda snúist starfið mikið um mannleg samskipti og sýna
frumkvæði. Mynd | Hari
WOW
lífið hel
tók mig og ég
gæti ekki verið
glaðari.