Fréttatíminn - 10.06.2016, Síða 52
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Ég hélt að ég væri að fara í
þennan „footballers wives“
pakka fyrst þegar ég fór út. En nei,
þetta er alls ekki þannig.
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
Opið 08.30 - 18.00 mán-fös / 11.00 - 16.00 lau
Vörurnar frá HAPE fáið þið í
verslun við Gylfaflöt 7
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
„Ég er að deyja úr spenningi og
á örugglega eftir að fara yfir um
á þessum leikjum,“ segir Krist-
björg Jónasdóttir, einkaþjálfari og
unnusta Arons Einars Gunnarsson-
ar, fyrirliða íslenska landsliðsins í
fótbolta, sem spilar sinn fyrsta leik
á EM næstkomandi þriðjudag.
Var sjálf í fótbolta
Hún æfði sjálf fótbolta langt fram
á unglingsár, þekkir því leikinn vel
og nýtur þess að fylgjast með. Hún
mætir ekki bara á völlinn að styðja
sinn mann af eintómri skyldu-
rækni. Áhuginn er einlægur. „Mér
finnst þetta þvílíkt skemmtilegt og
það er ekkert skemmtilegra en að
horfa á hann spila.“
Kristbjörg efast ekki um strák-
arnir verði landi og þjóð til sóma
á franskri grundu. „Ég er nokk-
uð viss um að þeir komast upp úr
þessum riðli og ég þarf örugglega
að framlengja ferðina mína,“ segir
hún kímin. „Ég met það líka út frá
því hvað strákarnir segja sjálfir,
að þetta sé besta lið sem þeir hafa
spilað með. Ég sé til dæmis alveg
mun á Aroni þegar hann er að
spila með Cardiff og landsliðinu.“
Vinkonur koma og fara
Kristbjörg flutti út til Cardiff fyr-
ir tæpum fjórum árum, þar sem
Aron spilar með Cardiff City, og
hún kann vel við sig á Bretlandi.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég bý
í útlöndum og ég er búin að koma
mér vel fyrir í Cardiff. Það voru
auðvitað töluverð viðbrigði að fara
út. Allt í einu hafði ég ekki vini
mína og fjölskyldu í kringum mig
og stólaði mest á Aron. Ég eignaðist
reyndar strax góðar vinkonur sem
voru kærustur liðsfélaga Arons, en
fótboltinn er þannig að fólk kemur
og fer. Maður er alltaf að kynn-
ast nýjum stelpum, svo eru leik-
mennirnir seldir og fara annað og
þær fylgja með,“ segir Kristbjörg,
en bætir við að ákveðinn kjarni
hafi þó spilað saman í lengri tíma.
Hún er í mestu sambandi við tvær
stelpur og mennirnir þeirra eru
einmitt góðir vinir Arons.
Ekki eintómt glamúrlíf
Kristbjörg viðurkennir að hún hafi
ekki alveg vitað við hverju hún átti
að búast þegar hún fór að búa með
atvinnumanni í knattspyrnu. „Ég
hélt að ég væri að fara í þennan
„footballers wives“ pakka fyrst
þegar ég fór út. En nei, þetta er
alls ekki þannig. Allar þessar
stelpur sem ég hef kynnst úti eru
mjög venjulegar og ótrúlega fínar.
Fólk heldur oft að þetta sé eintómt
glamúrlíf, að ég sitji bara í sólbaði
allan daginn, en ég get sagt það
hér og nú að þannig er það ekki.
Þetta er ekki bara dans á rósum
og svona líf getur tekið á and-
lega. Sérstaklega þegar strákarnir
komast ekki í liðin og fá ekki að
spila, eða ef meiðsli eru að hrjá þá.
Það getur tekið á báða aðila. Við
höfum það vissulega gott en það
fylgja þessu gallar.“
Sonurinn breytti lífinu
Kristbjörg og Aron eignuðust son-
inn Óliver Breka fyrir fjórtán
mánuðum og við það breytt-
ist líf hennar mikið. Nýr
kafli hófst með nýjum
áskorunum. „Ég var
mikið að keppa í fitness
og þegar ég flutti út hafði
ég allan þann tíma sem ég
þurfti til að undirbúa mig
fyrir mót. Ég fékk líka tækifæri
til að komast á fleiri mót því það
var mun auðveldra fyrir mig að
ferðast á milli og ég nýtti mér það
„Þetta tók svakalega
á mig andlega“
Kristbjörg Jónasdóttir var í keppnisformi þegar hún varð ólétt að syni sínum og átti erfitt með að sjá líkamann breytast á
meðgöngunni. Hún setti sér óraunhæf markmið um að komast strax aftur í form, en í dag er hún í góðu jafnvægi og líður vel
alveg þangað til ég varð ólétt,“ seg-
ir Kristbjörg sem hefur reynt að
passa upp á það, eftir að sonurinn
fæddist, að hún fái reglulega tíma
fyrir sjálfa sig. Hann fer á dag-
heimili þegar hún þarf að komast í
ræktina eða sinna öðrum erindum
og hún ræður í raun sjálf hve lengi
hann dvelur í einu. Svo hafa hún
og Aron aðgang að barnfóstru ef
þau vilja kíkja saman út á kvöldin.
„Þetta gengur allt bara ótrúlega
vel,“ segir Kristbjörg og brosir.
Fékk meðgöngueitrun
Hún viðurkennir reyndar að síð-
ustu tvö árin hafi verið strembin
á köflum. Aron er búinn að vera
töluvert í burtu í landsliðsferðum
vegna undankeppni EM og það
hitti einmitt þannig á að sonur-
inn kom í heiminn þegar hann var
slíkri ferð. „Ég vissi að hann þyrfti
að fara í þessa ferð og honum leið
sjálfum mjög illa yfir því,“ segir
Kristbjörg, en það var viðbúið að
sonurinn gæti fæðst á meðan Aron
var í burtu. „Ég setti honum þó það
skilyrði að ef hann yrði ekki við-
staddur fæðinguna þá yrði hann að
fara á EM í staðinn, og það tókst.“
Kristbjörg var komin með ein-
kenni meðgöngueitrunar undir
lok meðgöngunnar og var búin
að reyna að fá það í gegn að vera
sett af stað áður en Aron færi í
ferðina, en það gekk ekki. „Þetta
var ógeðslega erfitt og ég vildi svo
mikið hafa hann hjá mér, en við
tókum þessa ákvörðun saman. Ég
reyndi samt gjörsamlega allt til að
koma fæðingunni af stað. Fór upp
og niður stiga, gerði hnébeygjur
og ýmsar æfingar. Svo ætlaði ég
að reyna að halda honum inni,
en það gekk ekki heldur. Daginn
eftir að Aron fór var ég sett af stað
vegna meðgöngueitrunar.“
Náði fæðingunni á FaceTime
Kristbjörgu fannst ljósmæðurn-
ar ekki hlusta nógu vel á sig og
hún telur sjálf að meðgöngueitr-
unin hafi byggst upp hægt og
rólega. Hún var orðin slæm af
bjúg og hafði þyngst mikið á með-
göngunni, þrátt fyrir að hugsa vel
um sig og borða hollan mat.
„Þetta gerðist svo allt mjög hratt
eftir að ég var sett af stað og Aron
rétt náði þessu á FaceTime. Hann
sá því eitthvað,“ segir Kristbjörg
og hlær. „Þetta var auðvitað leiðin-
legt fyrir hann og örugglega skrýt-
ið að fara svona í burtu, koma til
baka og þá er allt í einu ný mann-
eskja á heimilinu. Ég sé samt ekki
eftir neinu og okkur fannst þetta
rétt ákvörðun á þeim tíma.“
Það sem var Kristbjörgu erfiðast
í öllu þessu ferli var þyngdaraukn-
ingin á meðgöngunni. Að fara úr
fitness lífsstílnum yfir að vera ólétt
og geta ekki æft af fullum krafti. Svo
kom það henni líka á óvart hvað
það tók hana langan tíma að komast
aftur í form eftir meðgönguna.
„Þetta var allt öðruvísi en ég
bjóst við. Ég var nýbúin að keppa
þegar ég varð ólétt og var í keppn-
isþyngd. Ég þyngdist því alveg
um 28 kíló á meðgöngunni. Þetta
voru svakaleg viðbrigði fyrir mig.
Ég setti mér það markmið að
vera komin í form þremur til sex
mánuðum eftir fæðingu. En það
var mjög óraunhæft og ekki að
fara að gerast. Ég fann að mér
fannst mikilvægara að eyða tíma
með syni mínum og kynnast
honum í staðinn fyrir að einbeita
mér að því að borða rétt og æfa
eins og brjálæðingur. Gefa mér
tíma til að ná tökum á þessu nýja
hlutverki og sinna því. En þetta
tók svakalega á mig andlega,“ segir
Kristbjörg einlæg.
Mikill lærdómur
„Það var svo eftir um átta mánuði
að ég fann að ég var tilbúin til að
setja meiri vinnu í mig sjálfa. Fann
að ég hafði kraft og metnað til að
æfa og taka mataræðið í gegn. Þá
var Óliver líka orðinn meðfæri-
legri. Ég vil því meina að þetta
hafi allt gerst í réttri röð og
á réttri tímalínu. Það tekur
líkamann 40 vikur að undirbúa
sig fyrir fæðingu og það er ekkert
óeðlilegt að það taki hann 40 vikur
að jafna sig eftir hana. Ég hugsaði
með mér að þetta kæmi með tím-
anum og það gerði það. Þetta er
eitt það erfiðasta sem ég hef gengið
í gegnum og var mikill lærdómur
fyrir mig, en ég myndi ekki breyta
neinu þó ég fengi tækifæri til þess.“
Sá kílóin hlaðast upp
Hún segir það hafa verið skrýtið að
fylgjast með líkama sínum breytast
á meðgöngunni, sjá húðina verða
slappari og kílóin hlaðast upp. „Ég
hugsaði oft hvort ég ætti einhvern
tíma eftir að verða aftur eins og ég
var. En ég lærði að með þolinmæði
þá er allt hægt. Mér líður ótrúlega
vel í dag og er í góðu jafnvægi. Ég
stunda heilbrigðan lífsstíl, mæti
í ræktina og leyfi mér ýmislegt.
Þegar sonur minn fæddist hófst
nýr kafli í mínu lífi og hann breytti
mér til hins betra.“
Kristbjörg er þó ekki bara í fullu
starfi við að vera móðir hins orku-
mikla Ólivers Breka, því fyrir um
ári keyptu þau hjónaleysin fyrir-
tækið Brasilian Tan, sem sérhæfir
sig í brúnkukremum. Kristbjörg
sér um reksturinn, með dyggri að-
stoð systur sinnar, og er að reyna
að koma vörunum á markað í Bret-
landi.
Mynd | Rut Sigurðardóttir
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Snapchat og instagram
Áhugasamir geta fylgst með
Kristbjörgu hér:
Snapchat: krisjfitness
Instagram: krisj_fitness