Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 10.06.2016, Side 61

Fréttatíminn - 10.06.2016, Side 61
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er fótbolti og körfubolti nánast stanslaust á skjánum hjá mér þegar ég fæ að ráða fjarstýringunni. Þetta er í raun óþolandi hundalíf að vera forfallinn íþróttaáhugamaður því það er alltaf eitthvað í gangi. Nú var enska deildin rétt að klárast og með henni úrslitakeppnin í íslenska körfuboltanum. Þá tekur við íslenski fótboltinn og NBA sem er um miðjar nætur. Svo er EM í fótbolta að byrja þar sem maður getur ekki misst af einum einasta leik. Ofan á þetta er alltaf verið að sýna lokkandi upprifj- unarþætti og ég er með heila stöð sem rifjar upp þá góðu tíma þegar Liverpool gat eitthvað. Fyrir utan þetta horfi ég mik- ið á Modern Family enda lifir tíu ára dóttir mín fyrir þá þætti. Hún kann allar seríurnar utanað og ég er fyrir vikið orðinn nokkuð fróð- ur um þessa þætti. Ég dett líka einstöku sinnum inn í þáttaraðir sjálfur, horfði til að mynda á Better Call Saul um daginn. Þeir voru ekki alveg jafn góðir og Breaking Bad en þó sami fílingur. Svo horfði ég á rosalega þætti um OJ Simpson- -málið. Þeir höfðuðu alveg til mín enda var ég að horfa á NBA-úr- slitin á sínum tíma þegar það var klippt yfir á bílaeltingarleikinn. Ég bara gat ekki hætt að horfa á þessa þætti.“ Sófakartaflan Kjartan Guðmundsson útvarpsmaður Óþolandi hundalíf að vera forfallinn íþróttaáhugamaður Má ekki missa af neinu Kjartan Guðmundsson, útvarpsmaður á Rás 1, horfir nær eingöngu á íþróttir þegar hann fær að ráða fjarstýringunni á sínu heimili. Mynd | Hari Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðar- erindið. Það er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir... www.versdagsins.is Skarpsýnu skötuhjúin Partners in Crime RÚV klukkan 20.25 Breskur spennumyndaflokkur byggður á sögum Aghötu Christie. Hjónin Tommy og Tuppence elta uppi njósnara í Lundúnum á sjötta áratugnum. Það reynist hjónun- um erfiðara að segja skilið við heim njósna og kalds stríðs en þau nokkurn tíma óraði fyrir. Aðal- hlutverk leika David Walliams og Jessica Raine. Hasargrín á áttunda áratugnum The Nice Guys Sýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laugar- ásbíói og Borgarbíói á Akureyri. Ryan Gosling og Russell Crowe leika aðalhlutverkin í The Nice Guys sem nú er komin í bíó. Sagan gerist í Los Angeles árið 1977. Einkaspæjarinn Holland March (Gosling) er ráðinn til að rannsaka meint sjálfsmorð klámstjörnunn- ar Misty Mountains og fær hann mikla óumbeðna aðstoð frá ungri og eldklárri dóttur sinni, Holly. Þegar vísbendingarnar leiða hann að stúlku að nafni Amelia (Qualley) hittir hann annan einkaspæjara, Jackson Healey (Russell Crowe), sem fer óhefðbundnar leiðir í rann- sóknum sínum. Ástandið versnar þegar Amelia hverfur og spæjarana fer að gruna að fleiri eigi hagsmuni að gæta í málinu en þeir gerðu sér grein fyrir. DiCaprio í hlutverki Hoovers J. Edgar Netflix Áhugaverð mynd frá 2011 um störf hins umdeilda J. Edgar Hoover sem stýrði bandarísku al- ríkislögreglunni um langt árabil. Clint Eastwood er leikstjóri en Le- onardo DiCaprio fer með hlutverk Hoovers. Auk hans eru leikarar á borð við Judi Dench og Naomi Watts í burðarrullum. Myndin fékk blendnar viðtökur þegar hún var frumsýnd en flestir eru sammála um að DiCaprio skili að venju sínu. …sjónvarp13 | amk… FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.