Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 1

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 1
frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 34. tölublað 7. árgangur Föstudagur 01.07.2016 Af hverju eru strákarnir okkar svona góðir? Fótboltaskýring Strákar í sundi Tískuskýring 3222 Ungir og gamlir berjast um Evrópu Kynslóðaskýring Hvar á djamminu er best að pissa? Klósettskýring 14 30 KRINGLUNNI ISTORE.IS Viðurkenndur endursöluaðiliNý sending komin af batteríum fyrir Phantom 3, 4 og Inspire 1 Phantom 4 verð 249.990kr verð frá 98.990kr verð frá 29.990kr Phantom 3 Skrýtið og skemmtilegt LÍFSSTÍLSBLOGGARI ÆFIR MEÐ EIGIN LÍKAMSÞYNGD ÚTILEGUTÍSKAN STÍGVÉL, ULLARPEYSUR OG PONSJÓ SAGÐI UPP VINNUNNI OG KEYPTI FLUGMIÐA TIL ASÍU TINNA Í HRÍM BÝR Í DRAUMAHÚSI Í HLÍÐUNUM 8 FÖSTUDAGUR 01.07.16 STRÁKAR MEGA ALVEG MÁLA SIG BRYNJAR STEINN Mynd | Auðunn Níelsson „Öll þjóðin er að fagna afrekum Íslands á alþjóða- vettvangi á mánudegi og við erum að rifna úr þjóðarstolti. Svo vaknar maður upp á þriðjudegi og skammast sín fyrir að tilheyra þessu samfélagi,“ segir séra Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslu- biskup en bæði hún og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, eru harð- orðar um aðfarir lögreglu í Laugarneskirkju aðfaranótt þriðjudags. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Solveig Lára segist hafa grátið þegar hún sá myndband af at- burðinum og biskup Íslands segir að prestar eigi ekki að þegja um slíkt ofbeldi. „Ég er slegin yfir því hvað kirkj- unni var sýnd gríðarleg óvirðing með þessum aðförum,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, bisk- up Íslands, um handtöku tveggja hælisleitenda í Laugarneskirkju að- faranótt þriðjudags. Solveig Lára, vígslubiskup á Hólum, segir að það hafi verið sér mikið persónulegt áfall að sjá myndbandið og verða vitni að aðferðum Útlendingastofn- unar og lögreglu um nóttina. Biskuparnir staðfesta að ákvörðun Laugarneskirkju um að láta reyna á kirkjugrið í máli tveggja hælisleitenda sem átti að flytja úr landi á þriðjudag, hafi ver- ið tekin í samráði við Biskupsstofu. „Mér finnst þetta hræðilegt, ég grét þegar ég sá myndbandið af þessum atburði,“ segir Solveig Lára vígslubiskup. „Þetta var svo hrottalegt og ómannúðlegt að ég get ekki lýst því hvað þetta er mik- ill hryllingur. Öll þjóðin er að fagna afrek- um Íslands á alþjóðavettvangi á mánudegi og við erum að rifna úr þjóðarstolti, svo vaknar maður upp á þriðjudegi og skammast sín fyrir að tilheyra þessu samfélagi,“ segir Solveig Lára. Agnes M. Sigurðardóttir segir að kirkjan sé ekki að fara í stríð við yfirvöldin en henni finnist þetta óásættanlegt. „Það er ekki eins og kirkjan sé að berjast gegn lögum og reglum í landinu þótt hvatt sé til meiri mannúðar,“ segir hún. „Ég stend með prestum innan Þjóðkirkjunnar sem styðja hæl- isleitendur, en ég styð það ekki að þeir brjóti lög. Ég styð það til að mynda ekki að þeir þegi yfir of- beldi, það er ofbeldi að ryðjast inn í kirkju og draga fólk þaðan út. Það er ekki hægt að þegja yfir því,“ seg- ir Agnes M. Sigurðardóttir, bisk- up Íslands, sem ætlar að óska eft- ir samræðu við þær stofnanir sem koma að málefnum flóttamanna, meðal annars Útlendingastofnun. Biskup Íslands: Prestar eiga ekki að þegja yfir ofbeldi Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, og Solveig Lára Guðmunsdóttir vígslubiskup eru harðorðar um atburðina í Laugarneskirkju. Mynd | Benjamin Julian. 8 Kirkjan hlýtur alltaf að taka afstöðu með fólki í neyð Sjá viðtal við Agnesi og Solveigu Láru ÓTAKMARKAÐUR LJÓSLEIÐARI ÓTAKMARKAÐUR FARSÍMI + 4GB WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400 8,2X4,7CM.indd 1 2.6.2016 13:09:08
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.