Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016
Mael: Sundskýlan
er frá bahns.org
„Ég fékk þessa sundskýlu hjá
bahns.org en Helga Lilja og
Stephan Stephensen hanna und-
ir því merki. Ég er sundmaður
og finnst skipta máli að skýlan
sé góð til að synda í. Þessi pass-
ar mjög vel en auk þess er ég
bara fyrir að sundskýlan sé flott
og passi vel við mann sjálfan.
Þessi sem ég á er líka með flott
munstur, sem er skemmtilegt.“
Sundskýluparadís
Íslenskir karlmenn með puttann á tískupúlsinum
Fátt er sumarlegra en að fara í sund þegar vel viðrar. Íslendingar eru miklir sundgarp-
ar og ekki þarf meira en
lítinn sólargeisla á himni
til að þjóðin fjölmenni í
sundlaugar landsins svo
troðið verður. Hins vegar
skiptir máli að eiga góð
sundföt; þau verða helst
að vera neon-lituð, þægi-
leg og sumarleg í senn.
Lárus Blöndal (Lalli töframaður):
Keypti sundskýluna í Ullared Svíþjóð
„Ég valdi þessa skýlu því hún er svona „out-
-there“ en samt róleg. Það sem skiptir máli
þegar maður kaupir sundskýlu er að hún sé
þægileg, ekki með óþægilegu neti og það sé
ekki sundskýla heldur mjúkar sundbuxur. Svo
er ég alltaf með „splash-proof“ úr á mér og ef
maður er með sundgleraugu þarf maður að
hafa þau á hendinni en alls ekki á hálsinum.
Svo er það blái drykkurinn sem maður þarf
þegar maður hefur aðeins verið að skemmta
sér kvöldið áður.“
Egill: Keypti skýluna
í Sports Direct
„Mér finnst mikilvægt þegar
maður kaupir skýlu að hún tóni
vel við „six-packið“. Svo þarf
hún líka að vera neon-lituð – það
skiptir höfuðmáli. Síðan finnst
mér skipta mjög miklu máli að
það sé ekki net inni í henni og að
hún sé ódýr. Ég tími ekki að eyða
miklum peningum í sundfatnað
þó ég fari mikið í sund. Að lok-
um vil ég biðla til fólks að kaupa
ekki eins og hinir. Eiga öðruvísi
sundföt.“
Bergur Kelti: Keypti
sundskýluna í Europris
á Granda
„Ég á aðra svarta skýlu en ég nota
hana mjög sjaldan því þessi er
miklu flottari. Mér finnst skipta
máli að skýlan sé neon-lituð en ég
er alltaf að bíða eftir svona partíi
þar sem fatnaður lýsir í myrkri,
þessar gera það. Ég er alltaf að
bíða eftir því. Annars sakna ég
gömlu Speedo-sundskýlanna.
Þær eru eitthvað dottnar út í
dag.“
Myndir | Hari
Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is
Vináttan Gott að hafa
hvor aðra í nýjum skóla
Vinkonurnar eru spenntar fyrir haustinu. Mynd | Rut
„Við förum stundum í bíó en það er
svo dýrt,“ segja vinkonurnar Álfrún
Freyja Geirdal og Magdalena Marta
Radwanska sem hafa þekkst frá
barnsaldri. Þær hafa verið saman
í grunnskóla en leið þeirra beggja
liggur í Kvennaskólinn í Reykjavík.
„Sko við vorum ekkert það góðar
vinkonur í byrjun en kynntumst
betur í 9. bekk,“ segir Álfrún og
Magdalena kinkar kolli til stað-
festingar.
Þær bera blendnar tilfinningar
til grunnskólaáranna, sem liðin
eru, en segjast fullar tilhlökkunar
til komandi tíma í Kvennaskólan-
um. „Núna er það spenningur og
hræðsla sem maður finnur fyrir,“
segir Magdalena og brosir. „Mað-
ur er náttúrulega búinn að vera í
grunnskóla í tíu ár,“ bætir Álfrún
við.
Í frítíma sínum hanga stelpurnar
saman og gera ekkert spes. „Við töl-
um um allt milli himins og jarðar,
fáum okkur ís, förum í göngutúr út
í Nauthólsvík og í Kringluna. Ekkert
það mikið meir,“ segir Álfrún.
„Það vantar meira að gera fyrir
unglinga,“ segir Magdalena.
Stelpunum mun þó líklega
ekki leiðast mikið lengur enda
spennandi tímar fram undan. „Við
erum báðar að fara í hugvísinda-
deild í Kvennó að læra frönsku. Það
sem er mest spennandi er samt
ekki námið heldur frekar félagslíf-
ið,“ segir Magdalena. „Böllin!“ segir
Álfrún og Magdalena kinkar kolli.
Stelpurnar verða saman í bekk og
segjast fegnar því að hafa hvor aðra
að í nýju umhverfi. | bg
Tina Forsberg hleypur
hringinn til styrktar
Einhverfusamtökunum.
„Ég er ekki búin að kaupa miða
heim,“ segir Tina Forsberg sem
leggur af stað í dag, hlaupandi eft-
ir þjóðvegi 1 í kringum landið, til
styrktar Einhverfusamtökunum.
Tina er 25 ára sænsk hlaupakona
sem stundar ofurhlaup. Hún á
yngri systur á einhverfurófi.
„Ég hleyp hringveginn ein með
allan minn farangur í hlaupakerru
sem minnir á barnakerru,“ segir
Tina sem áætlar að ferðin taki um
6 vikur og miðar þá við að hlaupa
um það bil heilt maraþon á dag,
sex daga vikunnar og hvíla þann
sjöunda. „Ég veit samt ekki hvort
þetta dregst – hef náttúrulega
aldrei hlaupið á Íslandi og þess
vegna er ég ekki búin að kaupa
mér miða heim,“ segir Tina og
hlær.
Málefnið liggur Tinu nærri
hjarta. Systir hennar er einhverf
og Tina vinnur í skóla fyrir ein-
hverf börn. „Í Svíþjóð fá einhverfir
góða aðstoð í skólanum en síðan
þegar fólk verður eldra verður að
skoða hvort þau geti unnið eða
farið í vinnuþjálfun einhversstað-
ar. Fólk getur lent í erfiðri stöðu
eftir að það klárar skóla því sumir
eru bara einir. Það getur ekki hver
sem er bara farið út, í Ikea, í bíó.
Litla systir mín býr hjá mömmu,
sem er mjög gott.“
Hún bætir því við að ákveðin
ögrun felist í því að hlaupa svona
lengi, einn. „Það getur verið ein-
manalegt að hlaupa svona lengi
einn og er mjög ögrandi. Þegar
maður hleypur frá níu til fimm
er stundum skrítið að fara alltaf
einn að sofa inn í tjaldi. En þannig
er það – ég er auðvitað hrikalega
spennt,“ segir Tina. | bg
Hægt er að fylgjast með ferðum Tinu
á vefnum www.tinaforsberg.se og
Instagram.
Þá er hægt er að styrkja Einhverfu-
samtökin með því að senda SMS-ið
„Einhverfa“ í nr. 1900 og styrkja
samtökin um 1900 krónur, eða
leggja beint inn á reikning samtak-
anna, kt: 700179-0289, banki: 0334-
26-2204.
Hleypur í kringum
landið með barnakerru
Hin sænska Tina styrkir Einhverfusamtökin