Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 50
Kauptu breiðvirka vörn
Það er mikilvægt að vörnin veiti
vernd gegn bæði UVA og UVB
geislum sem geta skaðað húðina,
flýtt fyrir öldrun og aukið líkur
á sólbruna og húðkrabbameini.
Sólarvörn sem ekki er breiðvirk
getur ekki varið þig gegn þessum
þáttum.
Vatnsheld vörn er ekki til
Það er ekki til neitt sem
heitir vatns- eða svita-
held sólarvörn. Það er
tæknilega ómögu-
legt. Sólvarvörn get-
ur hins vegar hrint
frá sér vatni en þá er
mikilvægt að hún veiti
jafn mikla vörn (SPF)
eftir 40 mínútur í vatni.
Haltu þig undir SPF 50
Þegar sólarvörn er sögð hafa SPF
stuðul 70 er það líklega bara sölu-
trix. Ástæðan er einföld; SPF 15
verndar gegn 93 prósentum UVB
geisla, SPF 30 verndar gegn 97 pró-
sentum geisla og SPF 50 verndar
gegn 98 prósentum geisla. Allt þar
fyrir ofan bætir mjög litlu við þessa
vernd. Húðsjúkdómalæknar mæla
yfirleitt með því að fólki noti sólar-
vörn með SPF stuðli 30 til 50.
Varastu efnið oxybenzone
Það er mikilvægt að kynna sér
innihaldsefni í sólarvörnum líkt
öðrum vörum. Oxybenzone er virkt
innihaldsefni sem finnst í mörgum
ódýrari sólavörnum sem fást í stór-
mörkuðum. Þetta efni getur ert við-
kvæma húð og valdið húðskemmd-
um í sólinni. Þá er jafnframt talið
að oxybenzone dragi úr framleiðslu
sáðfruma hjá körlum og geti
aukið líkur á krabba-
meini. Leitaðu eftir
sólarvörn sem inni-
heldur avobenzone
sem virkar eins og
oxybenzone en er
ekki skaðlegt heils-
unni.
Engin parben
Paraben er rotvarnarefni
sem lengi hefur verið notað í snyrti-
vörur, en það getur meðal annars
truflað hórmónabúskap líkamans
og aukið vöxt krabbameinsfruma.
Skaðsemi parabena hefur ver-
ið mikið í umræðunni síðustu ár
og framleiðendur snyrtivara taka
því gjarnan fram á umbúðum ef
vörurnar eru lausar við efnið. Sé
það hins vegar ekki tekið fram er
mikilvægt að leita eftir innihalds-
efnum eins og methylparaben,
Þetta skaltu hafa í huga
við kaup á sólarvörn
Mikilvægt er að nota góða sólarvörn sem veitir breiðvirka vörn gegn geislum sólarinnar. Einnig er nauðsynlegt að
forðast ákveðin innihaldsefni. Það virðist vera fastur liður á hverju sumri að ég gang fari umræða um sólarvarnir. Hvaða
sólarvarnir sé best að nota og hverjar eigi að forðast. Fólk getur því orðið ringlað þegar kemur að því að velja hina réttu
vörn. Úrvalið er allavega nógu mikið. Hér eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við kaup á sólarvörn.
propylparaben og butylparaben
sem yfirleitt eru talin upp síðustu í
innihaldslýsingum. Forðist líka sól-
arvörn með A-vítamíni enda getur
það skaðað húðina í sól.
Forðist vörn í úðaformi
Það að nota sólarvörn í úðaformi
kemur vissulega í veg fyrir klístrað-
ar hendur, enda er vörninni þá
spreyjað beint úr brúsanum á húð-
ina. En húðsjúkdómalæknar mæla
gegn notkun hennar vegna þess
hvað hún dreifist mikið. Stór hluti
þess sem spreyjað er lendir ekki
á húðinni og vörnin veitir minni
vernd fyrir vikið.
…heilsa 14 | amk… FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2016
Oxybenzone
er virkt inni-
haldsefni sem finnst
í mörgum ódýrari
sólavörnum sem fást
í stórmörkuðum.
Efnið getur ert við-
kvæma húð og valdið
húðskemmdum.
Forðist líka
sólarvörn með
A-vítamíni end
a
getur það ska
ðað
húðina í sól