Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016 0%VEXTIRALLAR VÖRURVAXTALAUST Í 12 MÁNUÐI Í Júlí fást al lar vörur með v axtalausum raðgreiðslu m með 3.5% lántökugjald i og 405kr greiðslugjald i af hverjum gjalddaga GPS SNJALLÚR FRÁBÆRT GPS KRAKKA SNJALLÚR MEÐ 1,22” LED SNERTISKJÁ, SOS TAKKA FYRIR NEYÐARSÍMTAL OG SMS MEÐ STAÐSETNINGU HÆGT AÐ HRINGJA Í ÚRIÐ OG FYLGJAST MEÐ FERÐUM BARNSINS. 9.990 BleiktBlátt SOS HNAPPUR SENDIR BOÐ Í SÍMA FORELDRA! NÝ LEIKJADEI LD Á NEÐRI HÆÐ INNI Í HALLARMÚL ANUM OPNUNARTÍMAR Virka daga 10:00 - 18:00 Laugardaga 11:00 - 16:00 500KR HRAÐSENDUM ALLAR VÖRUR H EIM SAMDÆGURS* 9.990 AÐEINS 100 STK! Spjaldtölva fyrir yngri kynslóðina með hlíf sem ver tölvuna fyrir höggi, hágæða heyrnartól í stíl fylgja með ;) SILICON BUMPER VARNARHLÍF ROCK100 HEYRNARTÓL FYLGJA SPJALDTÖLVA 4.990 MEÐAN BIRGÐIR ENDAST! FERÐAHÁTALARIStórlæsilegur Bluetooth hátalari með 8 tíma raf-hlöðuendingu. Tilvalin í ferðalagið eða bústaðinn. 3 LITIR ALLT AÐ 50% MEÐAN BIRGÐIR ENDAST! Nú er sannarlega rétti tíminn til að næla sér í minniskort á frábæru verði, allt að 50% lækkun:) MINNISKORT 50% LÆKKUN ALLT AÐ 50% LÆ KKUN AF ÖLLUM MINNISK ORTUM ÓTRÚLEGT ÚRVA L! ÁFRAMÍSLANDSTÚTFULLAR VERSLANIR AF ÖLLUM NÝJUSTU GRÆJUNUM 30. JÚNÍ 2016 - BIRT M EÐ FYRIRVARA UM BREYTINGAR, PRENTVILLUR OG M YNDABRENGL • Tölvutek er stæ rsta sérhæ fða tölvuverslun landsins í ferm etrum verslunarrým is talið, sam kvæ m t niðurstöðu Neytendastofu þann 10.05.2016 GAMING STÝRIPINNI GXT 540 4.990 TRUSTGXT-540STÝRIPINNI MEÐ SNÚRU, VIRKAR MEÐ PLAYSTATION 3, PC & STEAM OS! NÝ OG GLÆSILEG LEIKJADEILD Í HALLARMÚLANUM LEIKJADEILDIN PLAYSTATION 4 500GB 59.990PS4 STÝRIPINNI FYLGIR XBOX ONE 500GB 49.990 HÁGÆÐA TÖLVUSTÓLAR 3 LITIR HÁGÆÐA LEIKJASTÓLAR EINSTAKLEGA ÞÆGILE GIR STÓLAR SEM HENTA V EL FYRIR ÞÁ SEM SITJA L ENGI VIÐ TÖLVUNA;) 34.990 ENZO * GILDIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ALLT AÐ 10KG • EF PANTAÐ ER FYRIR KL. 15:00;) EIN SÚ FLOTTASTA Í DAG 14.990 FÆST Í 3 S ÆRÐUM! • Zowie leikjamús fyrir atvinnuspilara• ADNS 3310 LED Optical sensor• Virkar jafnt fyrir rétthenta og örvhenta• 7 forritanlegir Macro hnappar • Virkar fullkomlega án hugbúnaðar• Hægt er að stilla DPI frá 400 til 3200• Fullkomin lift-off fjarlægð og Claw grip HÁRNÁKVÆMEINN NÁKVÆMASTI OPTICAL SENSOR SEM VÖL ER Á! 3 STÆRÐIR ZASERIES FYRIR ATVINNUSPILARA 49.990 27” 99.990 | 27” QHD 129.990 • Sérhannaður 144Hz 3D LED leikjaskjár• 24’’ LED FULL HD 1080p 16:9 skjár• 12 milljón:1 DCR og Senseye3 tækni• 1ms viðbragðstími og FPS mode f/leiki• HDMI 1.4, DVI-DL og VGA tengi• Forstillingar fyrir helstu leiki, CS:GO ofl.• Black eQualizer skilar hárbeittri sýn! 144Hz 24” 144Hz 3D SKJ ÁR ALGJÖRLEGA NÝ UPPLIFUN! 24”3DLED 144Hz LEIKJASKJÁR XL2411Z 14.990 128GB 9.990 | 512GB 29.990 • 256GB Plextor M7VC SSD diskur• High-End 15nm TLC Toggle Mode• 512MB PlexTurbo DDR3 flýtiminni• PlexNitro tækni fyrir aukinn hraða!• PlexVault verndar persónuleg gögn• 98K IOPS & 560Mb/sek leshraði• 3ja ára Plextor útskiptiábyrgð 3 ÁR A ÚT SK IPT IÁBYRGÐ Á PLEXTOR M 7VC ÁRA PLEXTOR M7VC HÁGÆÐA SOLID ST AT E DI SK AR 256GB SSD PLEXTOR M7VC ITX GAMING TILBOÐ 2 Einn öflugasti Skylake leikjaturninn með alla nýjustu tækni og eitt öflugasta leikjaskjákort í heimi, fullkominn á lanið eða með í bústaðinn;) • Thermaltake Suppressor F1 leikjaturn• Intel Core i5-6600K Quad 3.9GHz Turbo• GIGABYTE Skylake Gaming 5 móðurborð• 16GB DUAL DDR4 2400MHz hágæða minni• 512GB SSD M.2 Plextor M7V diskur• 8GB GTX 1070 G1 Gaming leikjaskjákort• 7.1 Sound Core3D THX TruStudio Pro• USB 3.1 Type-C & Type-A og M.2 tengi• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum! 60GB 14.900 | 240GB 36.900 279.990 OFUR ÖFLUG Í LEIKINA;) 149.990 ÖFLUGUR 8 KJARNA LEIKJATURN! • Thermaltake H25 Window leikjaturn• Vishera X8 FX-8320E 4.0GHz Turbo 16MB• GIGABYTE 970 GAMING móðurborð• 8GB DDR3 1600MHz hágæða minni• 256GB SSD Plextor M7V diskur• 2GB Radeon R7 360 OC leikjaskjákort• 7.1 HD ALC1150 hljóðstýring með magnara• USB 3.1 Type-C & Type-A og M.2 tengi X8-CORE 4.0GHz OFUR ÖFLUGT 8 KJARNA ÖRGJÖRVA SKR ÍMSLI GAMING TÖLVUTILBOÐ 1 89.990 GTX1070G1 GAMING LEIKJASKJÁKORT Loksins er næsta kynslóð skjákorta lent! Gigabyte G1 Gaming er með 0dB silent viftu sem fer aðeins í gang við krefjandi notkun, metal bak, og forritanlega RGB lýsingu • Nýjasta leikjaskjákortið frá Gigabyte!• 8GB GDDR5 8 GHz 256-bit minni• SUPER OC 1822Mhz ásamt Nvidia boost 3.0• DirectX12, GameStream og VR Ready!• 1920 CUDA cores og 120T.U. fyrir leiki• 3x 8K Display Port 1.4, HDMI 2.0 og DVI-D• 16.7 milljón lita forritanleg RGB lýsing• Nær hljóðlaus 0dB Windforce 3X tækni G1 GAMING NÆSTA KYNSLÓÐ ER LENT! 0dB SILENT GAM ING Windforce 3 X TÆKNIN SKILAR LoL OG FLEIRI LEIKJUM Í 0 dB HLJÓÐLEYSI ! 8GB8GHz MINNI1822MHz KJARNI OG BOOST OCYFIRKLUKKUN MEÐ ENN ÖFLUGRI3X WINDFORCE KÆLINGU MEÐ KOPAR HITAPÍPUM 3XÖFLUGRANæsta kynslóð GTX 1070 leikjaskjákorta var að lenda og er allt að 3X öflugri en eldri kynslóð GTX 970 269.990 DRAUMA LEIKJAVÉL NÖRDANNA;) • Intel Quad Core i7-6700HQ 3.5GHz Turbo• 16GB DDR4 2133MHz vinnsluminni • 512GB SSD ofur hraður diskur• 15.6’’ Ultra HD 4K IPS skjár 3840x2160 • 4GB GeForce GTX 960M leikjaskjákort• 2.1 JBL Dolby Digital Plus hljóðkerfi• 867Mbps Dual WIFI AC, BT 4.0, USB 3.0 • 720p HD vefmyndavél með Stereo MIC• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum Y7004K 80NV0073MX 3840x2160 4K-UHD IPS SKJÁR MEÐ 178° SJÓNARHORN I BAKLÝSTLYKLABORÐ Í FULLRI STÆRÐ 30ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 299.990 20ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 69.990 XBOX STÝRIPINNI FYLGIR 14.990 FYRIR PS4 OG XBOX 16.990 • e-Sports leikjaheyrnartól frá Plantronics• Hönnuð fyrir leiki og mælt með af ESL • Dúnmjúkir memory foam púðar• Kraftmikil bassi með 40mm driver• Hljóðeinangrandi Flip-to-mute MIC• Spöng sem lagar sig að höfuðlagi þínu• Hægt að skipta um flestar einingar RIG500 LEIKJAHEYRNARTÓL MEÐ ÚTSKIPTANLEGUM EININGUNUM! MODULARHEYRNARTÓL AÐEINS200gr NÝ KYNSLÓÐ LEIKJASK JÁKORTA FRÁ GIAB YTE! TÖLVULEIKIR ALLT AÐ50%AFSLÁTTURAF PC, PS4 OG XBOX ONE LEIKJUM! Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 4BLS K IP P A Ú T :) NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI 4BL GPS SNJALLÚR FRÁBÆRT GPS KRAKKA SNJALLÚR MEÐ 1,22” LED SNERTISKJÁ, SOS TAKKA FYRIR NE YÐARSÍMTAL OG SMS MEÐ STAÐSETNINGU. HÆGT E R AÐ HRINGJA Í ÚRIÐ OG FYLGJAST MEÐ FERÐUM BARNSINS. 9.990 SOS HNAPPUR SENDIR BOÐ Í SÍMA FORELDRA! Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is Niðurstöður spænsku þingkosning- anna um síðustu helgi framlengdu pattstöðuna á milli gamalla og nýrra tíma í spænskum stjórnmálum. Frá aldamótum féllu gömlu stofn- anaflokkarnir, hinn hægri sinnaði Lýðflokkur og Sósíaldemókratarnir, samanlagt úr um 84 prósent fylgi niður í 50 prósent í kosningun- um í fyrra. Sú niðurstaða skilaði ekki starfshæfri ríkisstjórn þar sem þessir flokkar vilja ekki vinna saman, enn sem komið er. Hugsan- lega bregða þeir á ráð sambærilegra flokka í Þýskalandi og mynda stjórn um gamla stjórnmálamenningu í stað þess að mynda stjórn með ein- hverjum af nýju flokkunum. Á Spáni hafa sprottið upp tve- ir nýjir flokkar. Podemos, sem er ný-vinstriflokkur einhvers staðar á milli hins grískra Syriza-bandalags og íslenskra pírata, og Ciudadanos, sem er miðju hægri flokkur, eins- konar Viðreisn/Björt framtíð þeirra Spánverja. Podemos hefur meira fylgi en Sósíaldemókratar í öllum aldurs- flokkum undir fimmtugu og miklu meira í yngstu hópunum. Hjá elsta hópnum nýtur flokkurinn hins vegar lítils fylgis. Sömu sögu er að segja af Ciudadanos og Lýðflokknum. Ciuda- danos nýtur meira fylgis hjá öllum aldurshópum undir fimmtugu, nokk- uð jöfnu fylgi fram yfir sextugt en þar fyrir ofan ber Lýðflokkurinn höf- uð og herðar yfir hinn nýja flokk. Á Spáni er því einskonar patt- staða kynslóðanna. Yngra fólk í borgunum skilur ekki hvers vegna sú breyting sem það þráir og vill hefur ekki náð fram en eldra fólk í sveitunum og smærri bæjunum botnar ekki í hvers vegna eldri skip- an fær ekki að halda áfram. Aldursskipting kjósenda gömlu flokkanna, Lýðflokksins og Sós- íaldemókrata, samkvæmt könnun Metroscopia. Gamla fólkið heldur ungu flokkunum frá völdum 50 40 30 20 10 0 18–25 ára 26–44 ára 45–59 ára 59–70 ára 70+ ára 27% 29% 35% 47% 57% því að flest fari á verri veg. Það sér ekki lausn í framtíðinni heldur fortíð- inni. Það vill fá gamla tíma aftur og er andsnúið flestum táknum nýrra tíma; alþjóðavæðingu, Evrópusam- bandinu, innflytjendum. Auðvitað er þetta einföldun. Það er til ungt fólk með fortíðarþrá í borg- um og framfarasinnað gamalt fólk til sveita. En þessi mynd vísar til þess að gjáin sem er að myndast í samfé- lagsmálum í Evrópu á sér djúpstæðar orsakir. Bandaríkin klofin Þetta má sjá enn frekar í Bandaríkj- unum. Þar hafa stærstu borgirnar samþykkt 15 dollara lágmarkslaun á meðan alríkið treystir sér ekki til að hækka þau umfram 7,25 dollara. Ástæðan er að vaxtarsvæði borg- anna á austur- og vesturströndinni standa undir hærri launum en mið- og suðurríki. Hærri laun í borgunum mun halda áfram að soga til þeirra yngra fólkið og aflið af öðrum svæð- um og ýta enn frekar undir tilfinn- ingu þeirra sem eftir sitja að þau hafi verið skilin eftir, að ógn fylgi breytt- um tímum. Í Bandaríkjunum má ekki aðeins sjá gjá milli kynslóða og landsvæða í afstöðu til alþjóðavæðingar og inn- flytjenda heldur líka til byssueignar, bænahalds og fóstureyðinga. Þótt fátt bendi til að Evrópa sé komin þang- að benda ýmsar skoðanakannanir og niðurstöður kosninga til þess að við séum á leiðinni. Huglæg gjá á Íslandi Það eru ekki sömu forsendur fyr- ir þessum klofningi milli kynslóða og landsvæða á Íslandi og í öðrum löndum. Ísland er nánast borgríki með fámennri landsbyggð. Tveir þriðju hlutar íbúanna búa á höfuð- borgarsvæðinu. Landsbyggðin hefur hrörnað hratt og örugglega síðustu áratugi og vissulega hafa stjórnmála- menn gert út á vaxandi tilfinningu þar um að framtíðinni fylgi frekari svik en með vaxandi ferðamanna- straum má ætla að það muni ekki ganga eins vel á næstu árum og hing- að til. Þetta sést til dæmis á því hversu sterkir Píratar eru í öllum kjördæm- um. Samkvæmt nýjustu könnun MMR yrðu þeir til dæmis stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi, stærri en Framsókn, Sjálfstæðis- flokkur og framboð VG með Stein- grím J. í forystu. Önnur merki þessa voru hversu lítill munur var á fylgi Davíðs Oddssonar eftir kjördæmum í forsetakosningunum. Hann var klár- lega fulltrúi gamla tímans, varðstöð- unnar og óttans gagnvart alþjóða- væðingu og Evrópusambandinu, en naut ekki meira fylgis úti á landi þrátt fyrir það. Þótt landsbyggðin hafi ekki keypt ungborgarsjónarmið Andra Snæs hallaði hún sér ekki að gamla tíma Davíðs heldur kaus bjartsýna af- stöðu Guðna Th. og Höllu. Íslenska gjáin virðist því ekki hafa sömu efnislegu forsendur og sú sem Bretar og Spánverjar standa frammi fyrir. Ferðamenn hafa kveikt þrótt í dreifðari byggðum og aukið fólki þar bjartsýni og þrótt. Það er um margt geðugri framtíð að horfa upp á fjölbreytni atvinnulífsins sem fylgir ferðamönnum en gömlu meginstoð- ir landsbyggðarinnar, sem allar eru í raun lokaðar atvinnugreinar undir valdi fárra stórra aðila; landbúnaður, sjávarútvegur og orkufrekur iðnaður. Pattstaða eða kúgun Klofningur milli kynslóða sýnir að það verður erfitt fyrir stjórnmála- flokka, fjölmiðla og fleiri stofnanir samfélagsins að beisla samfélagsum- ræðuna á næstu árum. Bæði pattstað- an á Spáni og kúgun annars hópsins á hinum í Bretlandi eru víti til varnað- ar. Með samfélagsmiðlum, hnignun hefðbundinna miðla og tvístrun sam- félagsumræðunnar verður sífellt erf- iðara að ná ólíku fólki saman til að tala sig niður á sameiginlega niður- stöðu. Þegar aldurssamsetning fylgjenda flokkanna er skoðuð kemur glögglega fram hver vandi þeirra er að þessu leyti. Það er erfitt að byggja brú milli kynslóða þegar yngsta fólkið er í raun horfið úr flokkunum eða komið í al- gjöran minnihluta eins og raunin er í Framsókn og Samfylkingunni. Þetta er hætta gömlu flokkanna; að þeir lokist inn í viðhorfum sem unga fólk- ið hefur lært að forðast. Brú yfir gjána Á Spáni hefur gömlu flokkunum mis- tekist að ná til yngra fólks og nýju flokkunum hefur ekki tekist að ná til eldra fólksins. Hér heima virðast nýju flokkarnir eiga meiri möguleika á að ná öllum aldursflokkum til sín en gömlu flokkunum að ná til fólks undir fertugu eða þrítugu. Brúin á milli verður ekki reist með því að gömul sjónarmið séu sett á yngri belgi. Kannanir og kosningar benda til að gjáin sé raunveruleg. Samfélög Vesturlanda eru að ganga í gegnum viðlíka umbreytingu og í iðnbyltingunni og stjórnmálaflokkum ber að viðurkenna það, horfast í augu við afleiðingar þess og móta stefnu sem getur haldið samfélaginu saman. Fylgi tveggja efstu frambjóð- endanna í forsetakosningunum, Guðna Th. Jóhannessonar og Höllu Tómasdóttur, var nokkuð jafnt á milli aldurshópa, samkvæmt könnunum fyrir kosningar. Sú var hins vegar ekki raunin hjá Andra Snæ Magnasyni og Davíð Odds- syni. Ef við skiptum fylgi þeirra samkvæmt könnunum niður á tiltölulega jafn stóra aldurshópa kemur í ljós að á meðan 32 pró- sent kjósenda voru 34 ára eða yngri þá var aðeins 20 prósent kjósenda Davíðs á þessum aldri en hins vegar 48 prósent kjósenda Andra Snæs. Um 34 prósent kjós- enda voru 55 ára eða eldri en 48 prósent kjósenda Davíðs en aðeins 19 prósent kjósenda Andra Snæs. Aldursskipting kjósenda tveggja forsetaframbjóðenda, samkvæmt könnun Gallup. Davíð fyrir gamla, Andri fyrir unga Davíð Andri Snær 18–34 ára 20% 18–34 ára 48% 35–54 ára 32% 35–54 ára 33% 55+ ára 48% 55+ ára 19% Brexit-kosningarnar í Bretlandi í fyrri viku drógu fram að gjá hefur myndast milli kynslóðanna á Vest- urlöndum. Ef fólk undir fimmtugu hefði fengið að ráða væru Bretar enn í Evrópusambandinu en eldra fólkið hefði líklega rokið á dyr fyr- ir mörgum árum. Skipting kjósenda eftir lands- svæðum og byggðum kom líka glögglega í ljós. Fólkið í stóru borgunum vildi vera í Evrópusam- bandinu en fólk í dreifðari byggð- um, smábæjum og smáborgum frá tímum iðnvæðingar vildi burt. 80 60 40 20 0 18–24 ára 25–49 ára 50–64 ára 65+ ára 75% 56% 44% 39% Þeir Bretar sem vildu vera áfram í Evrópusambandinu skipt eftir aldri, samkvæmt könnunum Yougov/Politico. Gamla fólkið ýtti unga fólkinu út úr Evrópusambandinu Íslenska gjáin virðist því ekki hafa sömu efnislegu forsendur og sú sem Bretar og Spánverjar standa frammi fyrir. Ferðamenn hafa kveikt þrótt í dreifðari byggðum. Ef fólk undir fimmtugu hefði fengið að ráða væru Bretar enn í Evrópu­ sambandinu en eldra fólkið hefði líklega rokið á dyr fyrir mörgum árum. Mynd | NordicPhotos/Getty
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.