Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016 þeir skoruðu tvisvar fjögur mörk í úrslitaleik Evrópukeppni meistara- liða, sem sýnir að þegar sterkustu liðin ná góðu flæði geta þau orðið yf- irburðalið, ósigrandi – á meðan fyrir lítilmagnann þýðir gott flæði að hann geti unnið afrek sem enginn bjóst við, þótt yfirburðirnir séu sjaldnast til staðar. Þegar leiðbeiningar Csikszentmi- halyi til að ná góðu flæði eru skoðaðar minna þær töluvert á hugmyndir í nú- tíma kennslufræði, þar sem áherslan er lögð á að ná sem mestu út úr hverj- um nemanda – og því er væntanlega hlutur þjálfarans stór, það er hann sem þarf að tryggja flæði hjá ellefu mönnum á sama tíma í gegnum langa og stranga keppni. En þegar þjálfarar helstu spútnikliða sögunnar eru skoðaðir þá er ljóst að þótt töfraformúlan hafi mögulega fundist þá virkar hún sjald- an lengi í einu. Sumir hafa unnið óvæntustu afrek- in snemma. Sir Alf Ramsey hóf þjálf- araferilinn hjá Ipswich Town og kom þeim upp um tvær deildir áður en hann gerði liðið að Englandsmeistur- um árið 1962 – þegar liðsmenn þess voru nýliðar í efstu deild. Hann gerði svo England að heimsmeisturum árið 1966 – sem þótti kannski ekki sérlega óvænt þá, en miðað við gengi Eng- lands þessa hálfa öld sem hefur liðið síðan þá mætti kannski kalla það kraftaverk eftir á. Brian Clough var næsti stóri kraftaverkamaður enska boltans, kom Derby County upp í efstu deild og gerði þá að meisturum þremur árum síðar. Hann endurtók svo afrek Ramsey með því að gera Nottingham Forest að meisturum þegar þeir voru nýliðar – og bætti við tveimur Evrópumeistaratitlum í kjöl- farið. Þessi afrek voru rifjuð upp í vetur sem samanburður við óvæntan Eng- landsmeistaratitil Leicester City. Liðs- menn Leicester voru vissulega ekki nýliðar – það var árið áður þegar þeir þurftu kraftaverk til þess að halda sér uppi. En eftir umdeild þjálfara- skipti um sumarið spáðu flestir þeim niður síðasta sumar, enda virtust menn almennt sannfærðir um að tap gegn Færeyjum sem landsliðsþjálf- ari Grikkja væri staðfesting á því að Claudio Ranieri væri búinn að vera sem þjálfari. Ólíkt Clough og Ramsey er hann nú að blómstra við lok þjálf- araferilsins – en hann er þó ekki einn um það. Ottó kóngur Otto Rehhagel hafði unnið ófáa titla í Þýskalandi, fyrst með Werder Bremen og svo með Kaiserslautern – sem hann gerði að meisturum þegar þeir voru nýliðar. En hann entist ekki heilt tímabil hjá risunum í Ba- yern München og það fjaraði undan honum í Kaiserslautern; þegar hann flutti til Grikklands til þess að taka við gríska landsliðinu var hann mað- ur gærdagsins í Þýskalandi, talinn útbrunninn. Það þótti nokkuð afrek að koma Grikkjum á Evrópumótið til að byrja með – og rétt eins og Ísland þá byrjaði Grikkland á að spila við Cristiano Ronaldo og félaga í Portú- gal. Þeir unnu og komust áfram – og mættu svo Portúgölum í úrslitaleikn- um sjálfum. Það skal ósagt látið hvort Lars Lag- erbäck takist að endurtaka afrek Rehhagel, en hann á það sameigin- legt að semja við fótboltalega smá- þjóð þegar ferillinn virtist farinn að dala. Honum gekk vissulega vel fram- an af með Svía en það var byrjað að fjara undan honum í lokin og honum mistókst að koma þeim á HM 2010 – en þar þjálfaði hann þess í stað Ní- geríu með litlum árangri. Hann var vissulega stórt nafn fyrir lítið land eins og Ísland – en það var ekki verið að slást um starfskrafta hans árið 2011. En rétt eins og Ranieri og Rehhagel tókst honum að sanna ræki- lega að hann var ekki útbrunninn. Óttinn við að mistakast En mismunandi þjálfarar virka auð- vitað fyrir mismunandi lið. Sumir virðast bæði geta stjórnað dverg- um og risum; þeim Alex Ferguson og Jose Mourinho tókst til dæmis að vinna Evróputitla með liðum úr millistórum deildum í Evrópu áður en þeir gerðu það sama með risalið í stærstu deildum Evrópu. Eitt af lykilatriðum flæðisins hans Csikszentmihalyi er að menn hafi ekki áhyggjur af að mistakast. Sá ótti er oftast minni hjá liðum sem enginn býst við að vinni neitt til að byrja með – en hjá meintum stór- liðum sem mistekst ítrekað, eins og Englandi, þá getur sá ótti orðið lamandi. Þannig útskýrir Steven Gerrard, fyrrum landsliðsfyrirliði Englendinga, tapið gegn Íslandi; óttinn við mistök hafi alla tíð fylgt enska landsliðinu og hann játar að sjálfur hafi hann hugsað um, í miðjum leik, hver viðbrögðin yrðu heima fyrir ef þeir töpuðu og lýsir í raun einhverju sem get- ur kallast andstæðan við flæði: „Örvæntingin tekur völdin. Menn verða pirraðir. Menn frjósa og hætta að gera hlutina sem þeir vita að þeir eiga að gera. [...] Það er engin ró í kringum landsliðið og hefur aldrei verið. Það er alltaf einhver móður- sýki til staðar, það er óttamenning í kringum liðið og menn hafa ekki tekist á við hana.“ Þetta sást kannski best á svipnum á Jamie Vardy á mánudaginn. Hann hafði eytt vetrinum í að koma á óvart með Leicester og hafði, öllum að óvörum, verið óstöðvandi. Afrekið var það mikið að það varð að sögn, nú spyrja menn sig hvort Ísland ætli að „Leicestera“ þessa keppni? En þegar Vardy kom inn á í Nice var hann skyndilega kominn í nýtt hlut- verk, hann var Davíðinn sem hafði gengið í lið með Golíötunum – og nú fann hann hvernig var að óttast alla íslensku Davíðana. Sjóndaprir skíðastökkvarar Lítilmagninn tekst á við risana og vinnur. Þessi saga er vissulega ekki jafn algeng og að risarnir staðfesti yfirburði sína – en þetta er sagan sem Hollywood elskar; það er þegar byrjað að vinna í bíómynd um Jamie Vardy (Íslendingar hjálp- uðu handritshöfundunum sjálfsagt við að setja punktinn) og einhverj- ir frægustu lítilmagnar íþrótta- sögunnar eru þeir sem þóttu ekki einu sinni eiga erindi á stórmótið sem þeir urðu frægir fyrir. Jamaíska bobsleðaliðið á ólympíuleikunum 1988 var gert ódauðlegt í myndinni Cool Runnings og sjóndapri breski skíðastökkvarinn Michael Edwards, betur þekktur sem Örninn Eddie, fékk nýlega Hollywood-mynd um sig líka, Eddie the Eagle. Hvorki Eddie né Jamaíka-mönnunum tókst þó að vinna neitt og urðu skúrkar í augum sumra sem fannst íþróttin vanvirt – en hetjur í augum annarra sem sáu að bara það að hafa verið með var í þessu tilfelli töluvert afrek, kom- andi frá löndum þar sem engar nær engar aðstæður voru til staðar til að stunda þessar vetraríþróttir. Þeir fyrrnefndu höfðu þó sigur – í kjöl- farið voru reglurnar um þátttöku á ólympíuleikunum hertar til muna og því mögulega langt í álíka ævin- týri. Höfðatalan og fyrsta maraþonið En hvernig skilgreinir maður lítil- magnann, hvaða skilyrði þurfa Dav- íðar heimsins að upplifa? Venju- lega skiptir mestu máli að hafa ekki unnið nein sambærileg afrek áður og helst að gengið næstu misserin á undan hafi verið slakt, Leicester og Grikkland falla ágætlega undir þá skilgreiningu. Stundum geta þó Golítar skyndilega breyst í Davíð – Michael Jordan vann ekki mikil af- rek þegar hann reyndi fyrir sér í hafnabolta en tékk- neski hlauparinn Emil Zátopek gekk hins vegar mun betur að söðla um. Hann hafði unnið gull í bæði 5000 og 10000 metra hlaupi á ólympíuleik- unum árið 1952, fæstum að óvörum – en það bjóst hins vegar enginn við að hann myndi vinna maraþonið líka, enda hafði hann aldrei hlaupið maraþon áður og skráði sig ekki í það fyrr en á síðustu stundu. Uppáhaldið okkar Íslendinga er svo auðvitað höfðatalan – sem við þykjumst vinna allt á. En þótt við séum vissulega fámennasta þjóðin sem keppt hefur á Evrópumóti þá er ég ekki frá því að þriggja milljóna þjóð í Suður-Ameríku skáki okkur í höfðatölureikningi – en Úrúgvæ hef- ur unnið 2 heimsmeistaratitla og 15 Suður-Ameríkutitla, fleiri stórmót en bæði Brasilía og Argentína, sem eru sextíufalt og þrettánfalt fjölmennari. Sem þýðir að Ísland þarf helst að vinna þetta Evrópumót áður en við getum farið að kalla okkur Úrúgvæ norðursins. Vélorf Mikið úrval vélorfa með tvígengis- eða fjórgengismótor. Einnig rafknúin orf. ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Það skal ósagt látið hvort Lars Lagerbäck takist að endurtaka af- rek Rehhagel, en hann á það sam- eiginlegt að semja við fótboltalega smáþjóð þegar ferillinn virtist farinn að dala. Myndir | NoridcPhotos/Getty
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.