Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016
108 Reykjavík Sími: 595 0500 www.egillarnason.isSuðurlandsbraut 20 Opnunartímar: mán - fös kl. 9–18 og lau kl. 11–15
VIÐ GETUM TENGT ÞIG VIÐ BESTU
PARKETSLÍPARA LANDSINS
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ
RÁÐLEGGJUM ÞÉR MEÐ
SLÍPUN, LÖKKUN, OLÍUBURÐ
OG ALMENNT VIÐHALD
Sóknarpresturinn segir að lagt hafi verið
upp með þetta sem friðsamlega aðgerð
Þetta var of mikið
og of harkalegt
Kristín Þórunn og Toshiki Toma hafa verið í fararbroddi hjá kirkjunni varðandi
hjálp og aðstoð við hælisleitendur og flóttamenn.
angrun sína, og við höfum hvatt
söfnuði landsins við að útvega þeim
stuðningsfjölskyldur. Það hefur
sýnt sig að fólk á meiri möguleika
á því að fá hæli ef það á vini meðal
innfæddra landsmanna,“ segir hún.
„Viðbrögð Útlendingastofnunar eru
hinsvegar að banna heimsóknir og
koma í veg fyrir að þetta fólk geti
myndað tengsl við aðra.“
Slíkt væri óhugsandi í Noregi
Agnes segist ætla að taka upp sam-
ræðu við þá sem komi að málefnum
flóttamanna, Útlendingastofnun,
lögreglu og stjórnmálamenn, þegar
hún kemur til landsins en hún er
stödd á fundi norrænna biskupa
í Svíþjóð. „Kirkjan hefur látið sig
þessi mál mikið varða til að mynda
í Þýskalandi og á Norðurlöndum.
Þar er ekki óalgengt að það sé látið
reyna á kirkjugrið. Það kom til mín
norskur biskup eftir að ég vakti
máls á þessu á fundinum hérna úti
og lýsti því sem hefði gerst. Hann
sagði að slíkt væri óhugsandi í Nor-
egi. Lögreglan myndi aldrei vaða
inn í kirkju með handjárn og draga
fólk út. Kirkjan á að vera griðastað-
ur.“
Á Vísindavef Háskólans segir að
oft reyni á kirkjugrið í lútherskum
kirkjum og í nálægum löndum á
okkar dögum. Hælisleitendur leiti
kirkjugriða, stundum heilu hóparn-
ir og starfsfólk kirknanna veiti húsa-
skjól og aðra nauðsynlega þjónustu
þar til mál flóttafólksins hafa verið
tekin fyrir. Stundum hafa yfirvöld
virt kirkjugriðin, að minnsta kosti
tímabundið, en einnig hefur ver-
ið ráðist til inngöngu og griðin þar
með rofin.
Þegja ekki um ofbeldi
Agnes M. Sigurðardóttir segist hafa
skilning á því að lögreglan telji sig
vera að vinna sitt starf og fara að
fyrirmælum yfirboðara sinna. Það
sé fólkið í kirkjunni hinsvegar líka
að gera. Margir flóttamenn hafi
verið skjólstæðingar þeirra þriggja
safnaða sem hafi unnið mest með
hælisleitendum, Laugarneskirkju,
Hjallakirkju og Breiðholtskirkju og
fengið þar sálgæslu. „Ég geri ráð
fyrir að það séu uppi mismunandi
sjónarmið í þessu eins og öðru og ég
hef heyrt að einhverjum finnist að
kirkjan sé að standa fyrir lögbrot-
um. Ég stend með prestum innan
Þjóðkirkjunnar sem styðja hælisleit-
endur, en ég styð það ekki að þeir
brjóti lög. Ég styð það til að mynda
ekki að þeir þegi yfir ofbeldi, það
er ofbeldi að ryðjast inn í kirkju og
draga fólk þaðan út. Það er ekki
hægt að þegja yfir því,“ segir Agnes
M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Hælisleitendur Þetta
eru brottvísanir á færi-
bandi, segir presturinn í
Laugarneskirkju. Þá sé stutt
í það að mannhelgi sé ekki
virt. Hún segir að allir við-
staddir hafi orðið miður sín
og atburðurinn hafi hrært
upp í mörgum.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Kristín Þórunn Tómasdótt-
ir, prestur í Laugarneskirkju,
segir að lagt hafi verið upp með
kirkjugriðin í Laugarneskirkju sem
friðsamlega aðgerð. „Við vorum
ekki að reyna að fela strákana
fyrir lögreglunni eða hindra hana
við störf sín,“ segir hún. „Lög-
reglan leyfði okkur að útskýra
málið þegar hún mætti á staðinn
en þá höfðum við slegið upp hring
í kringum altarið. Lögreglan sagð-
ist þurfa að framfylgja úrskurðin-
um og bað strákana að fylgja sér.
Þegar þeir brugðust ekki strax við,
þá voru þeir teknir með valdi,“
segir hún.
„Það sló í brýnu þegar komið
var út úr kirkjunni og þetta varð
of mikið og of harkalegt. Strákarn-
ir voru snúnir niður og viðstaddir
voru löðrungaðir. Allir voru miður
sín að verða vitni að þessu. Lög-
reglumennirnir voru líka undir
miklu álagi, margar myndavélar á
lofti og mikil streita í loftinu.“
Kristín Þórunn og Toshiki Toma
hafa verið í fararbroddi hjá kirkj-
unni varðandi hjálp og aðstoð
við hælisleitendur og flóttamenn.
Margir þeirra hafa kosið að starfa
með kirkjunni og jafnvel skipta um
trú þótt þeim hafi verið gerð grein
fyrir því að það sé engin forsenda
þess að þeir geti leitað hjálpar í
kirkjunni. Nýlega fjallaði Frétta-
tíminn um múslima sem hafa sótt
um hæli hér landi og tekið kristna
trú undir handleiðslu Toshiki og
Kristínar Þórunnar.
„Svona vinnubrögð eru ekki
mannúðleg, ekki gagnvart hæl-
isleitendum, ekki gagnvart lög-
reglufólkinu, ekki gagnvart nein-
um,“ segir Hjalti Jón Sverrisson,
umsjónarmaður æskulýðsstarfs í
Laugarneskirkju.
Ég er ótrúlega þakklátur og dá-
ist að Kristínu Þórunni og Toma
Toshiki fyrir þann kjark, ótrúlegu
yfirvegun og þau fagmannlegu
vinnubrögð sem einkenndu alla
þeirra aðkomu og umsjón.“
Hann segist hafa verið spurður
um hvort hann væri ekki stoltur
að hafa verið til staðar í kirkj-
unni þegar þetta gerðist. „Það er
ekkert rými fyrir slíkt stolt. Ég
er bara sorgmæddur. Ég kvarta
ekki yfir því, alls ekki – mér finnst
það rétt. Það dregur ekki úr mér
kjark né gerir mig smáan. Ég vildi
aðeins óska að við værum fær um
að finna sama samtakamátt og
óttaleysi á velli mannréttinda hér
á landi og karlalandsliðið sýnir
okkur á knattspyrnuvöllum Frakk-
lands um þessar mundir.“
Kristín Þórunn segir að
virðingin fyrir mannréttindum
sé ekki ósvipað sameiningar-
afl og kirkjan var á miðöldum.
„Virðingin fyrir mannréttindum
er það sem sameinar okkur. Hvar
er línan í samfélaginu sem ekki
má fara yfir?“ segir hún. Hún segir
atvikið hafa hrært upp í mörg-
um en umræðan um flóttamenn
og hælisleitendur hafi verið föst í
sama farinu. Kirkjan hefur vakið
upp sterk viðbrögð af því hún er
að beita sér sem kristið samfélag
og sem stofnun. Margir trúi því
einfaldlega ekki að þau hafi lagt
í þetta. Hún segir ekki líklegt að
það verði strax aftur reynt að beita
kirkjugriðum, þar sem sú aðferð
hafi ekki stöðvað brottflutning.
Kirkjan þurfi að koma fyrr inn í
ferlið og þrýsta á embættismenn
og pólitískt kjörna fulltrúa.
„Atvikið í Laugarneskirkju
er dæmi um miskunnarlausa
beitingu á Dyflinnarreglugerðinni,
þar sem allar smugur eru notaðar
til að neita fólki um að vera. Þá er
stutt í það að mannhelgin sé ekki
virt og mannleg reisn sé brotin á
bak aftur. Þetta eru brottvísanir
á færibandi en einstaklingurinn
er alltaf þess virði að á hann sé
hlustað.“
„Það sló í brýnu og þetta varð of mikið og of harkalegt. Þeir voru snúnir niður
og löðrungaðir og allir viðstaddir voru miður sín að verða vitni að þessu,“ segir
sóknarpresturinn í Laugarneskirkju.
„Þetta var svo hrottalegt og ómannúðlegt, að ég
get ekki lýst því hvað þetta er mikill hryllingur. Öll
þjóðin er að fagna á mánudegi, yfir afrekum Íslands á
alþjóðavettvangi og við erum að rifna úr þjóðarstolti,
svo vaknar maður upp á þriðjudegi og skammast sín
fyrir að tilheyra þessu samfélagi,“
Við vorum ekki að reyna að fela
strákana eða hindra lögreglu við störf
sín,“ segir Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Mynd | Hari