Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 02.07.2016, Side 2

Fréttatíminn - 02.07.2016, Side 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 2. júlí 2016 Hafa stefnt Reykjavíkurborg fyrir brot á sæmdarrétti Afkomendurnir vilja Frumskógardrottningu Errós burt af veggnum Frumskógardrottningin er áberandi á norðurhluta hússins. Mynd | Rut Dómsmál Erfingjar Guð- mundar Þórs Pálssonar eru ósáttir við breytingar á húsi föður þeirra. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Afkomendur arkitektsins Guð- mundar Þórs Pálssonar hafa stefnt Reykjavíkurborg fyrir brot á sæmdarrétti vegna framkvæmda við hús í eigu borgarinnar. Um er að ræða tvær stefnur sem snúa að sundlauginni og íþróttahúsinu í Breiðholti, Austurbergi 3. Erfingj- arnir eru annarsvegar ósáttir við mósaíkverk eftir listamanninn Erró, sem borgin samþykkti að setja upp á vegg hússins árið 2014, en einnig eru erfingjarnir ósáttir við fyrirhugaða viðbyggingu sem verið er að reisa – og á að hýsa lík- amsræktarstöð. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en borgin bað um frest til þess að skila inn greinar- gerð vegna málsins. Guðmund- ur Þór teiknaði og hannaði húsið upphaflega fyrir borgina, en hann hefur einnig hannað fjölda skóla í Reykjavík, svo sem Seljaskóla, Selásskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Engar fjárkröfur eru settar fram í stefnu aðstandenda, aðeins er far- ið fram á að fallist verði á sjónar- mið fjölskyldunnar. Verði það gert er þeim frjálst að stefna borginni og krefjast skaðabóta úr hennar hendi ef tilefni er til auk þess sem borgin myndi þá þurfa að fjarlægja lista- verkið. „Þetta er auðvitað mjög sérstakt,“ segir Hjálmar Sveinsson, formað- ur umhverfis- og skipulagsráðs og varaborgarfulltrúi Samfylkingar- innar. Ráðið var á meðal umsagnar- aðila sem fóru yfir þá framkvæmd að setja mósaíkverk Errós á húsið, sem og fleiri hús í hverfinu, eins og þekkt er. Meðal annars má finna stóra veggmynd á blokk í Álftahól- um. Verkið á vegg íþróttamiðstöðv- arinnar í Austurbergi ber nafnið Frumskógardrottningin og var af- hjúpað árið 2014. Markmiðið var að fjölga listaverkum í opinberu rými í Breiðholti en verkefninu var einnig ætlað að breiða út list í opinberu rými utan miðborgarinnar, fegra hverfið og skapa umræðu. „Það var auðvitað gert í góðri trú að fá þennan heimsfræga myndlist- armann til þess að skreyta húsið,“ segir Hjálmar og bætir við: „Hvað viðbygginguna varðar, þá er það langþráð líkamsræktarstöð.“ Hann segist ekki hafa hugmynd hvort að brotið hafi verði á sæmdar- réttinum, „enda er sæmdarréttur og höfundarmál flókið mál,“ seg- ir Hjálmar. Aðspurður segist hann ekki vita til þess að aðstandend- ur Guðmundar Þórs hafi sett sig í samband við ráðið. Þá segist hann ekki vita til þess að haft hafi ver- ið samband við fjölskylduna vegna breytinga á húsinu. „Borgin telur sig hafa ákveðinn umráðarétt yfir húsi sem hún á og rekur,“ segir Hjálmar og mun borgin líklega leggja fram greinar- gerð í málinu á þeim forsendum. Formaður Félags arkitekta, Aðal- heiður Atladóttir, segir mál er varða sæmdarrétt alltaf koma upp af og til hjá félaginu. „Svona hefur komið fyrir, en línurnar eru ekki alltaf skýrar hvað þetta varðar,“ segir hún og bendir ennfremur á að ef miklar breytingar eru gerðar á húsnæði, þá sé arkitektum oft skylt að leita til fyrri arkitekts, eða, ef svo ber við, afkomenda, vegna breytinga. Þetta sé þó ekki endilega einhlítt. „Það mætti þó alveg vekja fólk til umhugsunar, og ekki síst okk- ur sjálf, arkitektana, að almennt mættu menn tala betur saman þegar breytingar eru gerðar á hús- næði,“ segir Aðalheiður. Hjálmar Sveinsson segir málið óneitan- lega sérstakt. Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 50 áraAFMÆLISTILBOÐ Nr. 12961 Á R A gasgrill 4ra brennara AFMÆLISTILBOÐ 99.900 VERÐ ÁÐUR 124.900 Grillbúðin • 4 brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Kveiking í öllum tökkum • Gashella í hliðarborði • Tvöfalt einangrað lok • Postulínsemaleruð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Einnig til svart • Afl 14,8 KW www.grillbudin.is Hú! komið út á veggspjaldi Íslensk tónlistarmiðstöð hefur gefið út á veggspjaldi íslenska stuðningskallið Hú! sem fer nú um heimsbyggðina með hjálp samfélagsmiðla. Tónverkið, sem einnig hefur verið kallað Íslenska hakan (samanborið við nýsjálensku hökuna) skýt- ur andstæðingum Íslands á EM í knattspyrnu skelk í bringu. Samkvæmt nótunum er það skrifað fyrir 10% íslensku þjóðarinnar. Innan tónlistarheimsins hefur hafist hæfilega nördaleg umræða um nótnaritunina á verkinu sem Valgerður Halldórsdóttir, fram- kvæmdastýra Íslenskrar tónverkamiðstöðvar, tók að sér. „Tilfinn- ing tónlistarfólks í klassíska geiranum og t.d. djassi fyrir hrynj- andi er dálítið ólík,“ segir Valgerður, sem er menntuð söngkona. „Þetta er bara fyndin og skemmtileg „deila,“ en tónverkið er gott og svínvirkar.“ | gt Ef útgerðarmaður tekur lán til að auka hlutafé í Morgunblaðinu fær hann afslátt af veiðigjaldinu, þarf að borga minna fyrir auðlindina sem sögð er sameign allrar þjóðarinnar. 18,4 milljarðar til útgerðarmanna Lækkun ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum færir útgerðar- mönnum 18,4 milljarða króna á þremur árum. Gunnar Smári Egilsson gunnarsamri@frettatiminn.is Eitt fyrsta verk núverandi ríkis- stjórnar var að lækka veiðigjöld á útgerðarmenn. Fyrsta árið nam lækkunin um 4 milljörðum króna á núvirði frá því sem verið hafði 2013. Ári síðar lækkuðu veiðigjöldin enn, þá um 5,6 milljarða króna frá því sem verið hafði 2013. Og í ár hef- ur verið boðuð enn frekari lækkun, upp á næstum 8,8 milljarða króna á núvirði miðað við það sem var 2013. Samanlögð lækkun veiðigjalda á valdatíma ríkisstjórnar Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokksins er því um 18,4 milljarðar króna á núvirði. Engin atvinnugrein nýtur viðlíka fyrirgreiðslu. Afslátturinn á næsta veiðiári, 8,8 milljarðar króna, er mun meiri en 6,6 milljarða stuðn- ingur ríkisins við mjólkurfram- leiðslu og 5,1 milljarðs króna stuðn- ingur við sauðfjárrækt. Sem kunnugt er eru útgerðarfé- lög helstu styrktaraðilar stjórnar- flokkana tveggja. Stærstu útgerðar- félögin halda úti Morgunblaðinu, málgagni Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnarinnar. Skattaafsláttur stjórnarf lokkanna til útgerðar- manna, þvert á margframkominn vilja meirihluta landsmanna til að leggja á hærri veiðigjöld, sýnir því hvernig sérhagsmunir hafa mótað stjórnarstefnuna gegn hagsmunum og vilja almennings. Ástæða lækkunarinnar er ekki versnandi afkoma útgerðarinnar. Hún er þvert á móti að koma úr mesta góðæri sem hún hefur upp- lifað áratugum saman. Lágt gengi krónunnar, lágt olíuverð og krónísk láglaunastefna á Íslandi hefur stór- bætt hag útgerðarinnar undanfar- in ár. Frá 2009 má áætla að eigið fé útgerðarfélaga að viðbættum útgreiddum arði til eigenda hafi numið um 230 milljörðum króna. Það er margfalt betri afkoma en í öðrum atvinnugreinum. Ríkisstjórn Jóhönnu lagði jafnt veiðigjald á alla og síðan sérstakt veiðigjald, þar sem heimilt var að draga frá vaxtakostnað. Ríkisstjórn Sigmundar sameinaði gjöldin og lækkaði og heimilaði frádrátt vegna vaxtakostnaðar frá öllu gjaldinu. Mikil lækkun á næsta veiðiári má að hluta skýra með þessum vaxtafrá- drætti. Aukin fjárfesting útgerðarfé- laga í óskyldum atvinnurekstri get- ur því lækkað gjaldið sem þau borga fyrir auðlindina. Útgerðarfélag sem fær lán til að kaupa heildsölu þarf að borga minni veiðigjöld. Hinsegin fólk BDSM er ekki í Samtökunum 78 Sátt hefur náðst í deilum um Samtökin 78 sem risu upp eftir aðild BDSM samtak- anna var samþykkt á aðal- fundi . Stór hópur gekk úr félaginu og 128 skrifuðu undir áskorun til stjórnar um nýjan aðalfund. Í lögfræðiáliti, sem nokkrir fé- lagsmenn í Samtökunum létu vinna, kom fram að aðalfundur Samtakanna ‘78 þar sem BDSM- -samtökin fengu inngöngu hafi ver- ið ólöglegur. Sátt hefur nú náðst um að lýsa að- alfundinn ógildan og hefja undir- búning nýs aðalfundar. Þetta þýðir með öðrum orðum að BDSM félagið er ekki hluti af Samtökunum nema nýr aðalfundur fallist á það, en hann verður haldinn 11. september. | þká Stjórnmál Fjölmiðlamenn í framboð Fjölmiðlamennirnir Gunnar Hrafn Jónsson og Kolbeinn Óttarson Proppé hyggja á pólitískan frama, þó ekki í sama flokknum. Þannig upplýsti Gunnar Hrafn í gær að hann hefði sagt upp störfum hjá RÚV, þar sem hann hefur starfað sem fréttamaður í átta ár, og ætlaði að ganga til liðs við Pírata. Eins ýjaði Kolbeinn að því að hann yrði á lista VG í Reykjavík eft- ir að hann tilkynnti um gjaldþrot sitt. Fréttamenn RÚV mega ekki tjá sig um álitamál. Gunnar Hrafn var frelsinu feginn og skrifaði á Face- book: „Þessi ríkisstjórn sökkar. Tortóla er skattaskjól. Piparfyllt- ar lakkrísreimar eru ekki alveg að gera sig. Guðni verður flottur for- seti.“ | vg Íþróttir

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.