Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.07.2016, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 02.07.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 2. júlí 2016 FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG? HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIРDREIFING@FRETTATIMINN.IS „Við Gunnsi hittumst fyrir 47 árum síðan,“ segir Kristin Einarsdótt- ir þjóðfræðingur sem mun giftast Gunnari Jóhannssyni á heimili þeirra í Hveravík á Ströndum í júlí. Kristín er ættuð úr Borgarfirði en Gunnar er fæddur og uppalinn á Hólmavík. „Við vorum saman í skóla á Reykjum í Hrútafirði einn vetur sem unglingar og urðum mjög góðir vinir þá. Við vorum aldrei par en mér fannst hann alltaf svo ofboðslega frábær og fyndinn. Svo vorum við saman í Versló einn vetur en urðum aldrei skotin. Svo fór hann bara norður að gera sitt, Ástin sameinar á Ströndum Fjögur brúðkaup og (vonandi) engin jarðarför Fjögur ólík pör gifta sig í einni afskekktustu sveit landsins í sumar. Tenging þeirra við sveitina er ólík en það er að sjálfsögðu ástin sem sameinar þau öll. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Tók á að verða ástfangin Kristín Einarsdóttir og Gunnar höfðu þekkst í 45 ár þegar þau urðu skyndilega brjálæðislega ástfangin fyrir tveimur árum. Þau gifta sig í Hveravík í júlí. byggja sér hús og eignast fyrirtæki, fór í Sjálfstæðisflokkinn og sveitar- stjórn. Ég var á allt öðrum stað í líf- inu. Var meiri hippi, bjó í Reykjavík og vann við hitt og þetta, eignaðist börn og gifti mig.“ „Svo hittumst við á „reunioni“ á Reykjum fyrir tveimur árum, þá 63 og 64 ára, og urðum þetta kvöld svona ofboðslega ástfangin, bara um leið! Og ég hef bara aldrei lent í öðru eins, að verða allt í einu svona ástfangin af manni sem ég hef þekkt alla ævi. Það er stórkostlegt að upplifa það en líka dálítið erfitt. Þetta eru svo miklar tilfinninga- sveiflur. Þetta tók eiginlega dálítið á,“ segir Kristín og hlær. „Kannski er maður komin með stærri tilfinn- ingaskala þegar maður er komin á þennan aldur, ég veit það ekki.“ Kristín og Gunnar fóru að búa í Reykjavík stuttu síðar en fluttu svo á Strandir í vor. „Gunnsi og vinur hans keyptu sér þessa jörð fyrir nokkrum árum en ég keypti vin hans út svo nú eigum við jörðina saman. Það er ekki hægt að lýsa því hvað það er dásamlegt að búa hér. Ég er alin upp í sveit en lang- aði samt aldrei nokkurn tíma til að búa í sveit. En í fyrsta skipti sem ég kom hingað með Gunnsa langaði mig til að vera hérna alltaf. Það er auðvitað ótrúlega fallegt hérna en það er eitthvað meira. Mér finnst eins og ég finni hér einhverjar ræt- ur, ég get ekki lýst þessu almenni- lega með orðum. Ég bara á heima hérna,“ segir Kristín sem var að kenna þjóðfræði í Háskóla Íslands þegar hún ákvað að rífa sig upp með rótum og setjast að á Strönd- um. „Kannski var ég innst inni orðin þreytt á kennslunni því ég var algjörlega tilbúin að fórna öllu til að vera hér.“ Tilvonandi hjónin vita ekkert hvert nýja lífið mun leiða þau en Kristín segist ekki hafa neinar áhyggjur af því. Næsta mál á dag- skrá sé að halda veislu og fagna ástinni. „Það eru 242 á gesta- lista svo þetta verður fjölmennt. Presturinn á Hólmavík, sem er heimilisvinur, mun gifta okkur hér í Hveravík og svo verður bara opið hús.“ Braut allar reglur á fyrsta deitinu Unnsteinn og Hafþór eru mikil partídýr og hafa safnað fyrir almennilegri veislu í þrjú ár. Veislan verður haldin í félagsheimilinu á Drangsnesi í júlí. „Við Hafþór kynntumst á frekar nútímalegan hátt, í gegnum facebook. Ég hafði séð honum bregða fyrir á skemmtistaðnum Barböru og ákvað að senda hon- um skilaboð og bjóða honum á deit. Hann mætti á deitið og sex árum síðar erum við enn saman svo þetta gekk upp, segir Unn- steinn Jóhannsson. Unnsteinn og Hafþór Óskarsson munu gifta sig á Drangsnesi í sumar. „Ég braut í raun allar reglur í bókinni á fyrsta deitinu, talaði um barnanöfn, tók hann frá um verslunarmannahelgi og áramót og talaði um fyrri sambönd og allt sem maður á ekki að tala um. En talandi um ástarsam- bönd þá heyrði ég um daginn að maður á alltaf að koma heiðar- lega fram frá upphafi ef sam- bönd eiga að endast. Maður á alltaf að vera maður sjálfur því það vill gerast að fólk gifti sig of snemma og svo kemur kannski í ljós eftir eitt til tvö ár að mann- eskjan er bara einhver allt önn- ur. Enda erum við enn saman!“ Eftir þriggja ára samband bað Hafþór Unnsteins á Þorláksmes- su. „Við sátum heima og vorum að horfa á þátt í tölvunni og drekka rauðvín og borða frosna pítsu þegar ég fékk skógjöf, sem er hefð hjá okkur því ég er svo spenntur yfir gjöfum. Þá fæ ég gamalt kort frá Hafþóri sem ég hafði gefið honum þegar við vorum að byrja saman og hann hafði greinilega geymt í þessi ár. Í kortinu stóðu voðalega krúttleg skilaboð frá mér: „Viltu byrja með mér?“ en Hafþór var búinn að breyta því í „giftast mér“ og svo var hann með hringa í boxi. Þetta var bara yndislegt.“ Unnsteinn er úr Reykjavík en Hafþór er ættaður að Strönd- um og alinn upp á Drangsnesi og segir Unnsteinn aldrei hafa komið neitt annað til greina en að gifta sig á Ströndum. „Drangsnes er magnaður stað- ur. Við erum mikil partídýr og viljum gera allt mjög „grand“ svo við erum búnir að vera að safna fyrir þessu brúðkaupi í þrjú ár. Athöfnin verður úti undir berum himni og vinkona mín, sem er í Siðmennt, mun gefa okkur saman að húmanísk- um sið. Það er að koma fólk allsstaðar að, meðal annars átta manns frá Nýja Sjálandi, en á gestalistanum eru um 250 manns. Við erum með félags- heimilið og fullt af tónlistarfólki svo þetta verður eiginlega meira eins og festival en hefðbundið brúðkaup.“ Mynd | Anna Roström
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.