Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 2. júlí 2016 „Við giftum okkur fyrst að íslömskum sið fyrir rúmum tveimur árum í Þýskalandi. Svo giftum við okkur í Pakistan um jólin og þriðja giftingin verður núna í sumar í Ing- ólfsfirði,“ segir Ásdís Sigtryggsdóttir en þau Usman Ghani Virk kynntust í Kessel í Þýska- landi þar sem þau stunduðu bæði meistara- nám. „Við vorum bæði að læra alþjóðastjórn- málahagfræði og vorum saman í litlum bekk og það leið ekki á löngu þar til við felldum hugi saman. Við erum búin að vera saman í rúm þrjú ár, eigum saman soninn Karl Salman og ætlum að flytja til Íslands í haust.“ „Við fórum til Pakistan síðustu jól þar sem haldin var veisla með fjölskyldu Usmans og þegar við mættum var mamma hans búin að láta sérsauma á mig tíu mismunandi kjóla og ofboðslega fallegan brúðarkjól sem var allur útsaumaður með perlum. Og Usmann var í hefðbundnum klæðum með túrban og allt. Þetta var rosalega skemmtilegt, segir Ásdís sem er alin upp á Akranesi. „Ég eyddi samt öllum mínum sumrum á Ströndum því mamma er alin upp á Eyri við Ingólfsfjörð. Þetta er auðvitað algjört ævintýraland fyrir krakka og ég á ótrúlegar minningar frá þess- um stað, hvort sem það er úr gömlu verk- smiðjunni, af bátnum hans afa, sundlauginni á Krossnesi eða úr Kaupfélaginu á Norður- firði. Ég á alls ekki erfitt með að kalla staði heimili og hef búið um allan heim, bý í sjötta landinu núna á síðustu tíu árum, en þetta er staðurinn þar sem mér finnst ég hafa rætur.“ „Ussmann kom til Íslands um síðustu jól og þá ætluðum við að kíkja í Ingólfsfjörð en það var ekki fært svo þetta verður í fyrsta sinn sem hann sér staðinn. Það verður örugglega skrítið fyrir hann að upplifa þennan stað því hann er frá lítilli borg í Pakistan, sem telur 6 milljónir. Að það sé til svona staður þar sem er enginn og ekkert er eitthvað sem hann skilur ekki alveg.“ „Það verður pakistanskur stíll yfir athöfn- inni í Ingólfsfirði. Við, og litli strákurinn okkar og öll mín fjölskylda, munum klæðast pakistönskum hátíðarklæðum í veislunni sem verður haldin í gamla bænum sem afi byggði. Þetta verður örugglega í fyrsta sinn sem borinn er túrban á Eyri.“ Fyrsti túrbaninn í Ingólfsfirði Ásdís og Usman giftu sig fyrst að íslömskum sið í Þýskalandi en munu í júlí fagna á Eyri við Ingólfsfjörð í pakistönskum hátíðarklæðum. Mikið leynimakk í byrjun Esther og Eiríkur fluttu til Hólmavíkur stuttu eftir að hafa opinberað leynilegt ástarsamband. Þau giftu sig í Djúpuvík um síðustu helgi. „Við Eiríkur hittumst fyrst fyrir rúmum fjórum árum í Háskóla Íslands,“ segir Esther Ösp Valdimarsdóttir, tómstundafulltrúi á Hólmavík, en þau Eiríkur Valdimarsson giftu sig á Djúpuvík á Ströndum um síðustu helgi. „Við vorum að vinna þar saman sem stunda- kennarar og heilluðumst fljótlega hvort af öðru. Til að byrja með var þetta ægilega mikið leynimakk því við vildum ekki að sam- starfsfólk okkar vissi neitt á meðan við vor- um ekki viss hvað myndi verða. Við vorum saman allan daginn en enginn vissi hversu vel við þekktumst, sem var mjög gaman.“ Stuttu eftir að hafa opinberað sambandið fyrir umheiminum ákvað ástfangna parið að flytja á Hólmavík. „Ég er úr Kópavogi en Eiríkur er frá Skagafirði og okkur langaði til að prófa að búa úti á landi. Við vorum búin að skoða okkur um hér og þar en svo bauðst mér þessi skemmtilega vinna á Hólmavík og við ákváðum að prófa. Það var ekkert lang- tímaplan og við bjuggumst alveg við því að þetta yrði skelfilegt og að við kæmum strax aftur heim. En svo höfum við heldur betur fest rætur hérna, erum búin að kaupa okk- ur hús og erum hvergi á förum. Það er líka algjörlega dásamlegt að ala upp börn hérna, bara algjör snilld,“ segir Esther en þau Eirík- ur áttu bæði eitt barn þegar þau felldu hugi saman og í dag hefur lítil stúlka bæst í fjöl- skylduna. „Við höfum hvorugt nokkra fjölskyldu- tengingu við staðinn en ákváðum að gifta okkur hér því við höfum fest rætur hér. Upphaflega planið var að gifta okkur í litlu kirkjunni í Trékyllisvík en vegna allskonar ófyrirsjáanlegra aðstæðna enduðum við á að gifta okkur í Djúpuvík, þar sem veislan var plönuð. Það gekk allt á afturfótunum á síðustu stundu og við enduðum á að hafa athöfnina úti undir berum himni. Veðrið var æðislegt og staðurinn, við fossinn fyrir ofan gömlu síldarverksmiðjuna, ótrúlega fallegur. Svo þetta endaði eins og best verður á kosið.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.