Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 43

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 43
„Ég fylgist mikið með íþróttum, nánast öllum íþróttum. Ég var að fylgjast með Giro d’Italia hjólreiða- keppni á Ítalíu en hún stóð yfir í 2-3 vikur og fínt að hafa kveikt á því í fæðingarorlofinu. Ég er áskrif- andi að Eurosport og þeir sýndu líka frá French Open tenniskeppn- inni og ég náði þeim leikjum sem eru mest spennandi. Nú tekur við Wimbledon og Tour de France er á næsta leiti. Ólympíuleikarnir byrja í ágúst og ég er gríðarlega spennt fyrir þeim. Að sjálfsögðu hef ég fylgst með íslenska liðinu á Evrópumótinu í knattspyrnu og ég missi ekki úr þætti af Pepsi mörkunum á Stöð2 Sport yfir sumarið. Hvað varðar þætti þá gríp ég oftast í eitthvað létt og skemmti- legt, Arrested Development og 30 Rock. Rapp í Reykjavík eru einir bestu þættir sem ég hef séð og Ghetto betur eru líka mjög góðir. Í haust, þegar það hættir að vera svona gott veður, ætla ég að horfa á allar 30 Rock þáttaseríurnar enn einu sinni. Ég er mjög dugleg að horfa á þætti aftur í stað þess að finna mér eitthvað nýtt.“ Sófakartaflan Katrín Atladóttir forritari hjá CCP TEKK COMPANY OG HABITAT | SKÓGARLIND 2 KÓPAVOGI SÍMI 564 4400 | OPIÐ MÁN-LAU KL. 10–18 OG SUN KL. 12–17 VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS ÚTSALAN ER HAFIN NÝR STAÐUR: SKÓGARLIND 2, KÓPAVOGI 20-50% AF ÖLLUM HÚSGÖGNUM 20-40% AF ÖLLUM MOTTUM 40% AF VÖLDUM STELLUM OG GLÖSUM 3 FYRIR 2 AF ÖLLUM HANDKLÆÐUM 40% AF VÖLDUM PÚÐUM OG TEPPUM VELKOMIN Í NÝJU VERSLUNINA OKKAR Í SKÓGARLIND Fylgist með öllum íþróttum Dramatísk mynd með Mark Wahlberg í aðalhlutverki Netflix Lovely Bones. Kvik- myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Alice Sebold og segir frá ungri stúlku, Susie, sem myrt var á hrottalegan hátt. Stúlkan fylgist með bæði fjöl- skyldu sinni og morðingja af himnum og flakkar myndin í raun á milli himnaríkis og hins jarðneska lífs. Susie fylgist með hvernig líf fjölskyldu hennar þróast og hversu skelfileg áhrif morðið á henni hefur á þau. Leikstjóri myndarinnar er Peter Jackson og með aðalhlut- verk fara Mark Wahlberg, Rachel Weiz og Stanley Tucci. Spennumynd með rómantísku ívafi Sjónvarp Símans Out of Sight laugardag, klukkan 23.50. Hörkuspennandi mynd frá árinu 1998 með hjartknúsaranum George Clooney og söng-, og leikkonunni Jennifer Lopez í aðalhlutverkum. Dæmdur bankaræningi strýkur úr fangelsi og á meðan hann er á flótta tekur hann lögreglukonu í gíslingu. Neistar fljúga á milli glæpamanns- ins og lögreglukonunnar og er myndin æsilegur eltingaleikur með rómantísku ívafi. Kvikmynd fyrir bæði spennufíkla og rómantíkera. Aftur til framtíðar Netflix Back to the Future I, II og III. Gamli góði þríleikurinn, Aftur til framtíðar, er kominn á Netflix, mörgum eflaust til mikillar gleði. Michael J. Fox og Cristopher Lloyd fara með aðalhlutverkin í öllum myndunum og fara á kostum. Í fyrstu kvikmyndinni ferðast Marty McFly óvart til fortíðarinnar, frá árinu 1985 til ársins 1955. Þar hittir hann foreldra sína í menntaskóla og verður móðir hans hrifin af honum. Marty verður að laga það sem hann hefur skemmt og sjá til þess að foreldrar hans felli örugglega hugi saman – jú og finna aftur leiðina heim til sín, til ársins 1985. Ofnæmi og ofnæmisvaldar RÚV Ofnæmi: Nútíminn og ég sunnudagur klukkan 15:45. Heimildarmynd frá BBC um ofnæmi og það sem því veldur í nútímasamfélagi. Rannsóknir benda til þess að breytingar á bakteríubúskap mannsins sé að valda sívaxandi ofnæmi. Í þættin- um eru venjur tveggja fjölskyldna skoðaðar til að sjá hvort þessar tilgátur á við rök að styðjast. Íþróttaáhugakona Katrín Atladóttir fylgist með Pepsi mörkunum, hjólreiðum og Rapp í Reykjavík í fæðingarorlofinu. Mynd | Hari …sjónvarp11 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.