Fréttatíminn - 02.07.2016, Blaðsíða 44
alla föstudaga
og laugardaga
Horfðu á leikinn
Hægt er að fylgjast með leik Íslands og Frakklands á sunnudag í góðri
stemningu á Arnarhóli, Rútstúni, Thorsplani og á Ráðhústorginu á Akureyri
Wayne Rooney fór beina leið í fríið
Fyrirliðinn skellti sér beina leið til Spánar í frí eftir ósigurinn á móti Íslendingum
Ungfrú EM í
Þýskalandi
Arna Ýr Jónsdóttir, ungfrú
Ísland og ungfrú EM, er um þessar
mundir stödd í
Þýskalandi að sinna
tveggja vikna vinnu
í tengslum við
sigurinn í ungfrú
EM. Hægt er að
fylgjast með ferðum
hennar á Snapchat (ungfruisland)
en vinnan felst í því að fara í
daglegar skrúðgöngur á hestvagni
í skemmtigarði í Þýskalandi. Þar
skrifar hún eiginhandaráritanir og
mætir í viðtöl. Undirbúningur fyrir
Ungfrú Ísland 2016 er í fullum gangi
hérlendis og má einnig fylgjast
með því á Snapchat.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
Wayne Rooney, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu (30)
og eiginkona hans, Coleen (30),
ákváðu að fara í frí á lúxussnekkju
við strendur Spánar eftir að lið
hans datt úr Evrópumeistara-
mótinu á mánudaginn síðast-
liðinn. Slíkur er lúxusinn á fyrirlið-
anum að hann þarf að reiða fram
hvorki meira né minna en rúmar
19 milljónir fyrir viku á þessari
dýrindis snekkju, en hann hefur
svo sannarlega efni á þess konar
munaði. Flestir liðsfélagar Rooney
hafa haldið sig til hlés og varla sést
eftir ósigurinn, en eiginkona hans,
Coleen, er þekkt fyrir að vilja vera
töluvert í fríi í sólinni, svo ekki
var við öðru að búast en að þau
myndu sleikja sólina fyrst að hann
var kominn í frí.
Mikið hefur verið talað um
hversu vandræðalegur ósigur
þeirra gegn Íslendingum hafði
verið en þjálfari liðins, Roy Hodg-
son, sagði starfi sínu lausu þegar
eftir leikinn. Hvorki hefur sést
tangur né tetur af öðrum ensk-
um landsliðsmönnum og er klárt
mál að þeir eru að taka sér tíma í
að sleikja sárin áður en þeir geta
hugsað sér að fara í frí.
Algengt er að Wayne þurfi að
hylja sitt mjallhvíta hörund fyrir
geislum sólarinnar með sérgerðum
klæðum, en Coleen er sóldýrk-
andi og klæðist bikiníi við hvert
tækifæri.
Áslaug Arna í
framboð
Ofurkvendið Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir hefur gefið kost
á sér fyrir komandi þing-
kosningar í prófkjöri
sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Nú
þegar hafa
hundruð manns
líkað við Facebook
síðu Áslaugar. Hún er
líklegast ein af fáum pólitíkusum
sem nýtir miðla á borð við
Snapchat, Instagram og Twitter.
Hún segir á Twitter síðu sinni að
hugmyndir nýrrar kynslóðar þurfi
að heyrast betur en áður og því
gefi hún kost á sér til Alþingis.
Reynir við hálft
maraþon
Edda Hermannsdóttir,
samskiptastjóri Íslandsbanka, hljóp
sinn fyrsta hlaupahring í sumar og
fannst eðlilegt í
framhaldi af því að
skrá sig í hálft
maraþon í Reykja-
víkurmaraþoninu í
ágúst. Ætlar hún að
hlaupa fyrir Akkeri
flóttahjálp. Edda greinir frá
ákvörðun sinni á facebook og tekur
fram að þessi fyrsti hlaupahringur
hafi reyndar gengið brösuglega.
Hún gerir tilraun til þess að fá
Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur,
dagskrárgerðarkonu á RÚV, til
hlaupa með sér en hún er svo
sannarlega ekki á þeim buxunum.
Allavega ekki eins og staðan er í
dag.