Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 50

Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 50
…ferðir kynningar 6 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016 Þægindi Áætlunarferðir Gray Line Iceland milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar eru aukin þægindi fyrir ferðamenn. Lúxus Sérútbúin lúxusrúta er nýtt til ferðarinnar og lögð er áhersla á gott pláss á milli sæta, auk salernisaðstöðu og ókeypis nettengingar. Norðurland Grayline Iceland hefur mikla trú á ferðaþjónustu á Norðurlandi og stuðlar því að ferðamannastraumi þangað með ferðum frá Keflavíkurflugvelli. „Við höfum mikla trú á ferðaþjónustu á Norðurlandi og besta leiðin í dag til að koma erlend- um ferðamönnum norður er í gegnum Keflavíkurflugvöll,“ Þórir Garðarsson Stjórnarformaður Gray Line Iceland Um- ferðamið- stöð Gray Line Iceland er í Hol ta- görðum í Reyk javík en flugvallarrú tan stoppar einnig í Mjóddinni. Beinar ferðir milli Keflavíkur, Reykjavíkur og Akureyrar Áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar, Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar eru einstök nýjung í ferðaþjónustu sem byltir ferðatilhögun fólks á Norðurlandi á leið til útlanda eða til og frá höfuðborgarsvæðinu. Í rútum Gray Line geta farþegar látið fara vel um sig í þægilegum lúxussætum sem hægt er að halla vel aftur og njóta ferðarinnar. Gray Line býður jafnframt ferðir milli Keflavíkur og Reykjavíkur frá umferðarmiðstöð Gray Line í Holtagörðum og frá Mjóddinni. Unnið í samstarfi við Gray Line Iceland Gray Line Iceland er þekkt fyrir vandaða þjónustu og fjölmargir velja flug-vallarrútu Gray Line milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Í vor hóf Gray Line áætlunarferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akur- eyrar, sem er einstök þjónusta fyr- ir þá sem búa utan höfuðborgar- svæðins. Gray Line Iceland er alhliða ferðaþjónustu fyrirtæki í meirihluta- eigu æsku- og skólafélaga frá Flateyri, þeirra Þóris Garðars- sonar og Sigur- dórs Sigurðssonar. Fyrirtækið býr yfir glæsilegum bílaflota sem ekur um landið með ferðamenn á vinsæla ferða- mannastaði á svæði sem spannar Jökulsárlón í austri að Látrabjargi í vestri. „Hingað til hefur ferðalagi þeirra á Norðurlandi sem eru á leið í flug til útlanda að morgni oftast verið þannig háttað að þeir þurfa að koma sér suður deginum áður og gista eina nótt fyrir flug. Til að spara fólki kostnað og tíma sem þessu ferðalagi fylgir, býður Gray Line ferðir með lúxusrútu frá Ak- ureyri seint að kvöldi þar sem fólk getur lagt sig á leiðinni og vaknað snemma að morgni þegar rútan er komin til Keflavíkur. Fólk er mjög ánægt með þennan einfalda og þægilega ferðamáta,“ segir Þórir. Þjónustan hentar ekki bara þeim sem vilja komast til eða frá Ak- ureyri því rútan stoppar einnig á nokkrum stöðum á leiðinni. Sérútbúin lúxusrúta er nýtt til ferðarinnar og lögð er áhersla á gott pláss á milli sæta, auk salernisaðstöðu og ókeypis nettengingar. Gray Line rútan til Akureyrar leggur af stað daglega frá Keflavík klukkan fimm síðdegis kemur við í Holtagörðum þar sem farþegar geta einnig komið um borð og síðan er stoppað í Borg- arnesi, Staðarskála, Blönduósi, Varmahlíð og komið til Akureyrar um kl. 23. Frá Akureyri fer bílinn kl. 23.15, Varmahlíð kl. 00.25, Blönduósi kl. 01.05, Staðar- skála kl. 02, Borgarnesi, kl. 03.10, komið til Reykjavíkur kl. 04.10 og Keflavíkurflugvallar kl. 05. Aðeins er stoppað á þessum stöðum ef farþegar eiga pantað far. Norðurrúta Gray Line hefur mikla möguleika á auk- inni ferðaþjónustu á Norðurlandi í för með sér því hún auðveldar erlendum ferðamönn- um að komast norður, beint frá Keflavíkurflug- velli. „Við höfum mikla trú á ferða- þjónustu á Norðurlandi og besta leiðin í dag til að koma erlendum ferðamönnum norður er í gegnum Keflavíkurflugvöll,“ segir Þórir. Umferðamiðstöð Gray Line Iceland er í Holtagörðum í Reykja- vík en flugvallarrútan stoppar einnig í Mjóddinni. Allar upplýs- ingar um ferðir milli Keflavíkur og Reykjavíkur og Keflavíkur og Akureyrar er að finna á vefsíðunni airportexpress.is.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.