Fréttatíminn - 16.07.2016, Síða 24
Þær Kristín, Katla og Rósa
vinna í Fótboltaskóla Vals
og hefja alla morgna á stór-
fiskaleik með kátum krökkum.
„Upphitunin er venjulega stór-
fiskaleikur,“ segir Rósa. „Það er
langvinsælast.“
Stelpurnar reyna að sofa eins
lengi og þær geta áður en þær fara
í vinnuna. „Ég er með svona tólf
vekjaraklukkur,“ segir Rósa. „Já ég
reyni að sofa eins lengi og ég get,“
bætir Kristín við og þær hlæja dátt.
Þær Kristín og Katla búa í
Hlíðunum og hjóla því eða labba,
nývaknaðar, í vinnuna. „Maður
mætir bara rétt fyrir níu og þá
hefst ballið,“ bætir Katla við.“
„Ég bý í Breiðholti þannig að
ég tek strætó hingað niður eftir –
gefst því nægur tími til að vakna
almennilega fyrir fjörið í Val,“ seg-
ir Rósa.
Þær segja vinnuna í Fótbolta-
skólanum einkar skemmtilega
– ekki sé hægt að vinna fjörugra
starf. „Við erum allar Valsarar og
höfum verið hér meira og minna
frá því við vorum sjálfar börn, á
leikjanámskeiðum eins og þess-
um,“ segir Kristín. „Þetta er geggj-
uð vinna.“ | bg
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 16. júlí 2016
Þetta er slagorð sem er orðið
þekkt hér fyrir vestan,“ seg-
ir Óli aðspurður um upphafið
að ballferðum Óla Hall. „Ég var
skipstjóri í mörg ár en byrjaði að
keyra leigubíl fyrir um níu árum.
Ég auglýsti í bæjarblöðunum en
það gerðist ekkert því enginn
þekkti mig þá. Svo var einn tek-
inn hérna fullur fyrir að keyra og
þá sagði sonur minn að honum
hefði nú verið nær að fara á ball
með Óla Hall. Þetta fór að spyrjast
út og ég breytti auglýsingunni í
„Allir á ball með Óla Hall“ og það
svoleiðis gjörbreyttist bisness-
inn hjá mér. Allt í einu voru eldri
konurnar komnar með útklippta
auglýsingu á ísskápinn hjá sér
og krakkarnir sungu „Allir á ball
með Óla Hall“ í bílnum hjá mér,“
segir Óli sem keyrir ekki einung-
is hressa djammara milli staða,
heldur allskonar kúnna. „En bis-
nessinn hefur hrapað niður, ég
veit ekki hvað það er. Kannski er
fólk að skemmta sér minna.“ | hh
Allir á ball með Óla Hall
Bisnessinn gjörbreyttist með breyttri
auglýsingu Óla Hall.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Mér líður stundum eins og ég búi í fé-lagsmiðstöð,“ segir Heiða Vigdís Sigfús-dóttir sem býr hjá
foreldrum sínum ásamt bræðrum
sínum tveimur og hundi í Vestur-
bæ. „En mér semur mjög vel við
fjölskylduna mína og tek á mig að
heimilið sé stundum eins og fé-
lagsmiðstöð – ég held oft partí.“
Heiða lærir hagfræði í háskól-
anum og var í skiptinámi í Svíþjóð
seinasta vetur. „Þar fannst öllum
algjört grín að maður byggi ennþá
heima,“ hún þagnar og hugsar sig
um. „Það er líka algjört grín!“
Hún segir undarlegt að vera
komna aftur í foreldrahús eftir
að hafa verið í námi erlendis þar
sem hún stóð á eigin fótum. „En
eins og ég sagði þá fannst Svíun-
um þetta mjög skrítið og í stóra
samhenginu er þetta bara mjög
óeðlilegt ástand; bæði ég og bróðir
minn, sem er 27 ára, búum heima
hjá okkur. Íslendingar eru eilífðar-
unglingar miðað við frændur sína
á Norðurlöndum.“
Hún segir að mörgu megi
breyta. „Í Skandinavíu er stuðn-
ingur við ungt fólk miklu betri
og aðrar pælingar í gangi. Ríkið
styrkir fólk með fjárgreiðslum og
svo er mikið um að fólk eigi íbúðir
í sameignarfélögum. Ég veit alveg
að ríkið hefur ekki endilega efni
á því að styrkja ungt fólk, veit
reyndar ekki á hverju það hefur
efni á yfir höfuð, kannski engu. En
það þyrfti að koma á einhverjum
lagabreytingum um málið, byggja
fleiri íbúðir fyrir ungt fólk – núna
er verið að byggja íbúðir, rétt hjá
mér á Granda, og þær kosta 77
milljónir stykkið.“
„En ég vil ekkert vera neikvæð,
er bara „realisti“, auðvitað er líka
lúxus að fá hafragraut og kaffi á
morgnana. Heitan mat á kvöldin,“
segir Heiða.
Íslendingar
eru unglingar
að eilífu
Með hækkandi leiguverði og minnkandi fram-
boði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum
lífsins fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram
eftir aldri. Í fyrsta sinn í 130 ár er líklegra að
Bandaríkjamenn á aldrinum 18–34 ára búi á
heimili foreldra sinna, en að þeir búi í eigin
húsnæði með maka. Eru þetta ósjálfstæðir
eilífðarunglingar eða er þetta bara það sem
koma skal ef leigumarkaðurinn breytist ekki?
Heiða er að flytja í nýtt herbergi hjá foreldrum sínum. Mynd | Hari
Kristín, Katla og Rósa eru hressar í morgunsárið. Mynd | Birna
Morgunstundin
Byrja daginn á stórfiskaleik
Í Skandinavíu er stuðn-
ingur við ungt fólk miklu
betri og aðrar pælingar
í gangi. Ríkið styrkir
fólk með fjárgreiðslum
og svo er mikið um að
fólk eigi íbúðir í sam-
eignarfélögum.
Fullorðin í foreldrahúsum
Hin fagra og forna Albanía.
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum
ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðingin ekki
náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg. Þar má
sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og
kynnast einstakri gestrisni heimamanna þar sem
gömul gildi eru í hávegum höfð.
Verð 344.900 per mann i 2ja manna herbergi
Innifalið. Flug hótel í London, hótel m/hálfu fæði
í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri, skattar
og aðgangur þar sem við á.
Upplýsingar í síma 588 8900
Albanía
4. - 15. október
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Við kynnumst
stórkostlegri náttúru,
dýralíf og hinum forna
menningarheimi Maya
indíána. Skoðum m.a.
píramída,gamlar
menningaborgir, syndum
í sjónum við næst
stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn.
Endum svo á lúxus hóteli
við Karabíska, þar sem
allt er innifalið.
568.320.-
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið:
Flug, skattar, hótel með
morgunmat, islenskur
fararstjóri, allar ferðir og
aðgangur þar sem við á.
0 4 - 1 9 O k t ó b e r 2 0 1 6
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
MEXICO, BELIZE
& GUATEMALA