Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 52
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Elísabet Ormslev, söng-kona og förðunar-fræðingur, farðar sig yfirleitt eitthvað alla daga, en undanfarnar vikur hefur hún verið að vinna meira með náttúrulega „lúkkið“ en hún er vön. „Hér áður fyrr var ég vön að rokka kannski grænt „smokey eye“ á þriðjudegi. Nú er ég bara með léttan, nærri gegn- sæjan farða, hyljara undir aug- um, maskara og sólarpúður.“ Hún telur ýkt instagram makeup vera hægt og bítandi að fara úr tísku á sama tíma og nátt- úrulegar farðanir verði æ vin- sælli. „Ég er allavega hætt þessu brjálaða „highlight“ og „contour“ í þessum rosalega mæli sem hef- ur verið, nema að ég sé að fara að syngja á sviði, þá set ég oftast mun meira en ég myndi annars gera.“ Elísabet hefur starfað sem förðunarfræðingur frá því hún útskrifaðist úr Mood Makeup School árið 2012. Hún hefur unnið bæði hjá MAC Cosmetics og Make Up Store en starfar núna sjálfstætt. Aðspurð segist hún líka dugleg að prófa sig áfram með nýja tækni og „look“ á eigin andliti. „Ég er alltaf að prófa mig áfram með nýja tækni og nýjar vörur og finnst fátt skemmti- legra en að leika mér í „special effects“. Þar bý ég til sár, skurði, marbletti o.fl. Svo eru „editorial fashion„ og „avant garde“ farðan- ir líka í miklu uppáhaldi.“ Er að vinna með náttúrulegt „lúkk“ þessa dagana Förðunarfræðingurinn Elísabet Ormslev deilir uppáhalds snyrtivörunum sínum SUVA Beauty Neutral Necessity Palette Frá því að ég fékk þessa palettu í hendurnar hef ég ekki getað lagt hana frá mér. Hún hentar svo vel bæði til daglegra nota og í kvöldfarðanir þar sem það eru allir „neutral“ litir til staðar. Náttúrulegri en áður Elísabet átti það til að skella á sig grænu „smokey eye look“ á þriðjudegi, en hún hefur tónað sig aðeins niður. Loréal False Lash Sculpt maskarinn Ég hef prófað alla flóruna af möskurum, hræódýra eða allt of dýra en þessi er búinn að fanga hjarta mitt undanfarna mánuði. Hann greiðir, þykkir og haggast ekki! Make Up Forever Face and Body foundation Þessi farði er svo þunnur að hann er nánast eins og vatn, enda er meirihluti innihaldsefn- anna vatn. Oftast er húðin mín í fínu standi og þá þarf ég ekki þykkan farða sem hylur allt. Frekar nota ég hyljara til þess að fela einhver vandræðasvæði. NYC Liquid Liner Þessi eyeliner kostar 3 dollara úti í Bandaríkj- unum og er snilld. Ég vissi ekki að það væri hægt að finna svona góðan og kolsvartan liner sem kostaði svona lítið. Ég næ örfínni línu og væng með núll fyrirhöfn. Anastasia Beverly Hills Gleam Glow Palette Ég er ekki enn komin með nóg af fallegu „highlighti“ á kinnbeinunum en mér finnst það gera svo mikið fyrir hvaða förðun sem er, hvort sem ég er lítið eða mikið máluð. Septemberblað breska Vogue er nú komið út en útgáfa septemberblað- anna hvert ár þykir marka upphafið af stefnum og straumum komandi misser- is. Stjarna Cara Delevingne rís hærra en nokkru sinni þessa dagana en hún prýðir forsíðuna að þessu sinni. Delevingne hóf sinn feril sem tískumódel en hefur að undanförnu verið að sanna sig sem leikkona með góðum árangri. Hún þykir með stærstu tískufyrirmyndum heims í dag og það verður ákaflega spennandi að berja myndaþáttinn augum en hann er með þeim veglegri. Leikarar og leikkonur sjónvarpsþáttarins Poldark eru teknir tali í blaðinu auk þess sem þau sitja fyrir í myndaþætti í anda Poldark þannig að búast má við því að Heiðu Rún Sigurðardóttur bregði fyrir í blaðinu. Þó að breska Vogue sé virt er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir septemberútgáfu bandaríska Vogue en það þykir vera það allra áhrifamesta í þessum bransa. Cara á forsíðunni …tíska 8 | amk… FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2016 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta L ksins komnar ftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur d glega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið má .- fös. 12- 8 ∙ laug. 11- 6 Frábær verð, smart vöru , góð þjónusta Loksins kom ar ftur *leg ings háar í mittinu kr. 5 0 . Tökum upp nýjar vörur dagle a Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur d gl ga Bláu húsin Faxafeni · S. 58 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur daglega Frábæ t úrval Full búð af nýjum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.