Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 18
arðsins til fjár- festinga. Kerfið felur því í sér að sá stóri stækkar og hinir smærri freistast til þess að selja kvótann sinn. Söluverðið sem hinir stóru geta greitt er meira en sýnilegur samanlagður arður smáútgerðanna næstu árin. Ef ekki væri sett skilyrði í lögum um hámarkseign útgerðarfyrirtækja í heildarkvótanum myndi kerfið af sjálfu sér leiða til þess fyrr en síðar að einn stæði uppi að lokum með allan kvótann. Það má því segja kvótakerfið hafi gengið fullkomlega upp að því leyti að það dró hratt og örugglega úr offjárfestingu og það leiddi fljótt til samþjöppunar og hagræðingar. Vandinn er að þeirri spurningu var látið ósvarað hvar auðlindarentan ætti að lenda. Átti hún að safnast að fáum stórum sigurvegurum þessa kerfis, sem færði megnið af arðin- um til þeirra sem mestan höfðu hann fyrir? Eða átti að deila henni út til þeirra sem báru kostnað- inn af hagræðingunni, íbúasjávar- byggða sem hrörnuðu hratt þegar kvótinn var seldur burtu? Eða átti að láta rentuna renna í sameigin- lega sjóði til upp- byggingar sam- félagsins en ekki aðeins örfárra fjölskyldna? Auðlindarentan til útgerðarinnar Við vitum svarið. Spurningunni var látið ósvarað og því safnaðist auð- lindarentan á örfá útgerðarfyrir- tæki. Við sjáum afl rentunnar ekki bara í uppkaupum þeirra á kvóta og smærri útgerðum, á tímabilinu frá frjálsa framsalinu 1990 og fram að Hruni 2008, heldur líka í útrás stóru útgerðarfélaganna. Frá því að Útgerðarfélag Akur- eyringa keypti þýska útgerðarfélag- ið Meclenburger Hochseefisherei hafa Samherji, Grandi, Vísir, Síldar- vinnslan og fleiri útgerðarfélög fjár- fest í erlendum útgerðarfyrirtækjum víða um heim. Margar af þessum fjárfestingum hafa gengið upp, skilað hagnaði inn í móðurfélögin, en sumt hefur reynst mikil mistök. Vísi í Grindavík blæð- ir þannig vegna fjárfestinga sinna í Kanada og Grandi hefur borgað mikið með útgerð sinni í Chile. Auð- lindarentan af Íslandsmiðum hef- 18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Eins og fjallað er um sérstaklega á næstu síðu leiddi kvótakerfið, og þá sérstaklega frjálsa framsal- ið, til þess að hlutur tíu stærstu útgerðarfyrirtækjanna óx úr rúm- um fimmtungi af heildaraflanum í rúman helming. Þetta eru meginá- hrifin af kerfinu. Þau fyrirtæki sem koma þar á eftir í stærð stækkuðu sinn hlut mun minna og hlutdeild þeirra fyrirtækja sem ná ekki inn á listann yfir 25 stærstu útgerðarfé- lögin skruppu saman og allra mest þeirra minnstu. Hlutdeild lítilla útgerðarfyrir- tækja fór úr um helmingi alls afla, 49 prósent, í minna en einn sjöunda af heildinni, 14 prósent. Stórir éta smáa Þessi umbreyting var drifin áfram af kerfinu sjálfu. Auðvitað er engin ástæða til að gera lítið úr rekstrar- kunnáttu þeirra sem ráku stóru út- gerðarfyrirtækin á þessu tímabili, en það var allt annað og öflugra fyr- irbrigði sem knúði þessa breytingu áfram. Þegar útgerðinni var gert mögulegt að veðsetja kvóta og skapa með því veðhæfni úr einhverju sem áður var ekki talið til eigna öðluðust stærstu fyrirtækin afl til að kaupa upp kvóta hinna smærri. Kvótakerfið virkar auk þess eins og snjóbolti sem veltur niður hlíð. Auðlindarentan skilar stærstu út- gerðunum stærstum hluta af arðin- um af auðlindinni. Stærðarhag- kvæmnin veldur því að stóru fyrirtækin geta notað stærri hluti Ein leið til að átta sig á ógnarafli auðlindarentunnar af Íslandsmiðum er skoða þróun útgerðar á Íslandi frá því kvótakerfið var sett á. Þá sést hvernig arðurinn af auðlindinni hefur drifið áfram kaup allra stærstu fyrirtækjanna á kvóta hinna smærri, hvernig arð- urinn fjármagnaði útrás stærstu útgerðarfyrirtækjanna og gerði þeim kleift að kaupa upp útgerðarfyrirtæki og fiskveiðiheimildir í öðrum löndum og hvernig útgerðarfyrirtækin hafa snúið sér að uppkaupum á fyrirtækjum í óskyldum atvinnugreinum eftir að gjaldeyrishöft drógu úr möguleikum þeirra á að koma arðinum af auðlindinni úr landi. KVÓTAKERFIÐ SEM BREYTTI Kerfið bjó til samþjöppun, útrás og innrás Aðeins hluti auðlindarentunnar sem skapast af kvóta fyrirtækj- anna í Eyjum verð- ur eftir í Eyjum. Stór hluti hennar hefur farið til kaupa á fyrirtækj- um í Reykjavík. Mynd | Shutterstock Kvótakerfið hefur gert Guðbjörgu Matthíasdóttur, Þorstein Má Baldvins- son og aðra stóra kvótagreifa auðugri en aðra bisnessmenn og valdameiri en nokkra stjórnmálamenn. Þorsteinn er sá útgerðarmaður sem hefur nýtt auðlindarentuna til mestrar uppbyggingar erlendis en Guðbjörg hefur gengið útgerðarmanna lengst í að nota hana til uppkaupa á fyrirtækjum í óskyldum rekstri á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.